Sanders ætlar að kjósa Clinton

Hillary Clinton mun að öllum líkindum hljóta útnefningu Demókrataflokksins. Bernie Sanders styður hana en er ekki hættur í framboði.
Hillary Clinton mun að öllum lík­indum hljóta útnefn­ingu Demókra­ta­flokks­ins. Bernie Sanders styður hana en er ekki hættur í fram­boði. Mynd: EPA

Bernie Sanders, sem hefur sóst eftir útnefn­ingu Demókra­ta­flokks­ins sem for­seta­fram­bjóð­andi í Banda­ríkj­unum, seg­ist ætla að kjósa Hillary Clinton í for­seta­kosn­ing­unum þar í landi í nóv­em­ber. Clinton hefur verið með mikið for­skot á Sanders í kapp­hlaup­inu um útnefn­ingu Demókrata síðan það hófst.

„Já,“ sagði Sanders þegar hann var spurður að því í við­tali á MSNBC-sjón­varp­stöð­inni í Banda­ríkj­unum, hvort hann muni greiða Clinton atkvæði sitt í kosn­ing­unum í nóv­em­ber. „Ég held að það rétta í stöð­unni sé að gera allt sem í mínu valdi stendur til að fella Donald Trump.“

Það verði hræði­legt ef Trump verði kjör­inn for­seti. „Við þurfum ekki for­seta sem elur á for­dómum, gerir lítið úr Mexíkóum og konum, og trúir ekki á lofts­lags­breyt­ing­arnar, jafn­vel þó allir vís­inda­menn bendi á að hér sé um alheims­vanda­mál,“ sagði Sanders.

Sanders hefur hins vegar ekki gef­ist upp þó Clinton hafi mikið for­skot. Hann hefur sótt á í þeim ríkjum sem kosið hefur verið í und­an­farið en vantar samt ennþá um það bil þús­und kjör­menn til að hljóta útnefn­ing­una. Það eru aðeins 75 kjör­menn enn í boði. Hann við­ur­kennir að það sé nær ómögu­legt fyrir hann að hljóta útnefn­ing­una.

Sanders tjáði sig einnig um Brexit og ákvörðun Breta að segja sig úr Evr­ópu­sam­band­inu. „Ég hef áhyggjur af því að sam­starf á alþjóða­vett­vangi sé að brotna niður,“ sagði Sanders. „En það sem þessi nið­ur­staða sýnir er að efna­hags­kerfi heims­ins er ekki að virka fyrir alla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetakosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár