Karolina Fund: Forsetinn er alltaf einn á vaktinni

„Þetta er óvenju­leg bók en góð, er mér sagt,“ segir Karl Th. Birg­is­son sem hefur skrifað bók um for­seta­kjörið 2012. Kjarninn spurði hann um verkið.

Hvað kveikti áhuga þinn á að rann­saka og skrifa um þetta efni?

„Ég ákvað strax vorið 2012 að skrifa þessa bók enda voru framundan mjög sér­stakar for­seta­kosn­ingar, þar sem alvöru­mögu­leiki var á að sitj­andi for­seti yrði felldur. Það leit líka þannig út framan af. Kosn­inga­bar­áttan var stutt, en alveg ævin­týr­lega skraut­leg.

Bókin er byggð á opin­berum heim­ildum, sem sumar eru reyndar horfnar af inter­net­inu núna, en líka sam­tölum mínum við fjöl­marga sem koma við sögu enda tal­aði ég við fjölda fólks á degi hverjum off-the-record, þar á meðal Ólaf Ragnar. Ég hélt líka dag­bók og birti brot úr henni innan um.“

Karl seg­ist hafa sett hand­ritið niður í skúffu, en tekið það upp þegar Ólafur Ragnar Grímsson til­kynnti að hann ætl­aði þrátt fyrir allt að bjóða sig fram aftur. „Svo hætti hann aftur við, en þá var of seint að breyta káp­unni. Bókin er nefni­lega alls ekki um Ólaf Ragnar, heldur ekki síður um fram­boð Þóru Arn­órs­dóttur og kosn­inga­bar­átt­una alla. Þar gekk á ýmsu, sumu skemmti­legu og öðru mjög ljótu.“

Karl leyfði örfáum að lesa bók­ina í hand­riti og segir við­brögðin hafa verið þannig að bókin yrði að koma út. „Guðni Th. Jóhann­es­son kallar hana skyldu­lesn­ingu, Svan­hildur Hólm Vals­dóttir segir að hún sé listi­lega vel skrifuð, Margréti Tryggva­dóttur þótti hún bráð­fyndin og Davíð Þór Jónsson lýsir henni sem spennu­sögu. Betri umsagnir get ég ekki beðið um.“

Þú sagðir að bókin væri óvenju­leg – hvernig þá?

„Þetta er blaða­mennsku­bók, sam­tíma­sagn­fræði. Slíkar bækur eru algengar í Banda­ríkj­unum og Bret­landi, en eig­in­lega óþekktar hér. Forlögin eru treg til að gefa út slíkar bækur og þá er Karolina Fund rétti vett­vang­ur­inn til að koma bók­inni til sinna. Að því leyti er bókin óvenju­leg, en efnið er líka óvenju­legt.

Flestir tengja mig lík­lega við póli­tík hin seinni ár, en mér fannst gott að finna aftur í mér blaða­mann­inn. Það er langt síðan síð­ast. Einn yfir­les­ari sagði að bókin væri skrifuð af sann­girni, en brú­tal hrein­skilni. Ég er sáttur við þann dóm.“

Söfnun fyrir bók Karls lýkur á Karolina Fund í kvöld, en miðað við umsagn­irnar virð­ist vera eftir tals­verðu að slægj­ast.

Verk­efnið er að finna hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár