Karolina Fund: Fjallageit kynnir Austurland sem fjallgöngusvæði

Bókin 101 Aust­ur­land – Tindar og toppar er nú á loka­stigi vinnslu. Höfundur bók­ar­innar er Skúli Júl­í­us­son. Skúli er Aust­firð­ingum að góðu kunnur og er í raun­inni „fjalla­geit,“ bæði að atvinnu og áhuga. Hann starf­rækir fjall­göngu­klúbb­inn Fjall­hress auk þess sem hann hefur starfað sem fjalla­leið­sögu­maður und­an­farin sjö ár. Kjarninn ræddi við Skúla.

Út á hvað gengur bókin 101 Aust­ur­land – Tindar og toppar?

Að kynna Aust­ur­land sem fjall­göngu­svæði. Hér fyrir austan eru gíf­ur­lega mörg fjöll sem gaman er að ganga á en lýs­ingar á fjall­göngu­leiðum á Aust­ur­landi hafa lítið birst í útgefnu efni.

Hverjir eru kost­irnir við að hafa göngu­leiða­bók með sér í stað þess að ana bara eitt­hvert út í busk­ann?

Ekki er víst að þessi fjöll séu kleif eða aðgengi­leg hvaðan sem er. Með leið­ar­bók­inni ertu með ýmsar upp­lýs­ingar, s.s. hæð, hækkun, vega­lengdir, göngu­tíma o.fl. Einnig er aðkom­unni lýst eftir vega­kerf­inu, gjarnan með veg­núm­erum, og mælt með heppi­legum stað til að hefja göng­una. Hverri göngu­leið er lýst og minnst á áhuga­verða staði í næsta nágrenni. Hverri göngu­leið fylgir kort með helstu örnefnum og er leiðin teiknuð gróf­lega inn á það. Hægt verður að skanna strik­a­merki hverrar göngu­leiðar með snjall­síma eða spjald­tölvu til að nálg­ast gps fer­il­inn með auð­veldum hætti.

Getur hver sem er nýtt sér göngu­leið­irnar í bók­inni?

Bókin ætti að koma göngu­fólki til góðs, sér­stak­lega þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref til fjalla og þeim sem minna þekkja til svæð­is­ins.
Leið­irnar eru af öllum erf­ið­leika­stigum, allt frá þægi­legum „fjöl­skyldu­fjöllum“ yfir í krefj­andi tinda fyrir reynslu­meira fjalla­fólk. Erf­ið­leika­stigin eru skil­greind svo fólk geti valið göngu­leið við hæfi sem er mjög mik­il­vægt atriði.

Það er nýtt for­lag á Egils­stöðum, Bók­stafur, sem gefur bók­ina út og Perla Sig­urð­ar­dóttir hjá sprota­fyr­ir­tæk­inu PES sem sér um útlits­hönnun. Við erum mjög ánægð með útkom­una. Upp­bygg­ing­ar­sjóður Aust­ur­lands og Alcoa hafa lagt verk­efn­inu lið.

Bókin er langt komin, umbrotsvinnu er lokið og nú á aðeins eftir prenta. Það er hins vegar ansi dýrt og þess vegna erum við með söfnun í gangi á Karolina Fund sem von­andi gerir okkur kleift að leysa bók­ina út þegar hún rennur úr prent­vél­unum í lok júní. Söfn­un­ina er að finna hér og hún stendur til og með sunnu­dags­ins 5. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár