Karolina Fund: Ris og fall vídeóspólunnar

Óli Gneisti Sól­eyj­ar­son, þjóð­fræð­ingur og áhuga­maður um kvik­mynda­gerð, er að safna fjár­magni til að fram­leiða heim­ild­ar­mynd um þá menn­ingu sem varð til þegar víd­eó­spólan komst í hendur almenn­ings á Íslandi. Um „ris og fall víd­eó­spól­unnar“, eins og hann kallar það. Kjarninn hitti Óla Gneista og tók hann tali.

Um hvaða leyti kemur víd­eó­spólan til Íslands?

„Ein fyrstu merkin um komu víd­eó­spól­unnar til Íslands er þegar skemmti­staðir fóru að aug­lýsa sýn­ingar á tón­list­ar­mynd­böndum. Þá var tekið sér­stak­lega fram hvaða tón­list­ar­menn yrðu spil­aðir. Þetta var um 1978 sem það gerð­ist.

[adspot]

Annar gleymdur þáttur í sögu víd­eó­spól­unnar á Íslandi eru víd­eó­kerfin sem voru í raun kap­al­sjón­varps­stöðvar. Oft var þetta bara mynd­bands­tæki í kjall­ar­anum á fjöl­býl­is­húsum en það voru líka til stærri kerfi og það voru til að mynda tölu­verðar fram­kvæmdir í Breið­holt­inu þegar verið var að grafa strengi í jörð. En þar sem leyfi skorti frá rétt­höfum þá hurfu þessi kerfi.

Frægasti hluti upp­hafs­ára mynd­bands­tækn­innar var stríð VHS og Betamax. Það stríð teygði sig auð­vitað til Íslands. Gæðin voru Betunnar en nota­gildið lá í VHS. Ég man sem krakki eftir því að hafa þurft að læra mun­inn svo ég veldi ekki óvart Beta­spólu.

Líklega var það árið 1981 sem mynd­bands­spólan varð hluti af íslenskri dæg­ur­menn­ingu. Það áttu ekki nærri því allir tæki en það virt­ust allir vera að tala um spól­urnar.

Fólk reyndi að berj­ast gegn víd­eó­spól­unni og ýmsu sem henni tengd­ist. Það voru búnir til bann­listar og efni var gert upp­tækt. Fólk var líka hrætt um að mynd­bands­tækið yrði barnapía og sá ótti var örugg­lega á rökum reistur þó mín kyn­slóð hafi lík­lega kom­ist alveg merki­lega ósködduð í gegnum það."

Hvenær tel­urðu að hápunktur víd­eó­spól­unnar hér á landi hafi verið?

„Mér finnst eig­in­lega að hápunkt­ur­inn hafi verið árin áður en DVD kom á mark­að­inn. Þá var spólan kjarn­inn í afþrey­ing­ar­menn­ing­unni. Það var komið gott úrval á leig­unum og það var líka hægt að kaupa sér kvik­myndir og sjón­varps­þætti á boð­legu verði og maður gat því byggt upp sitt eigið safn. Það var hægt að kaupa tómar spólur á boð­legu verði og taka upp efni.

Nú gæti ég verið að ýkja þetta upp af því að þarna er ég rétt innan við tví­tugt en fyrir kvik­mynda­á­huga­mann eins og mig þá var þetta alveg dásam­legur tími."

Telur þú að það hafi átt sér stað ein­hverjar sam­fé­lags­breyt­ingar með komu víd­eó­spól­unnar?

„Ef heim­ild­ar­myndin á sér ein­hverja rann­sókn­ar­spurn­ingu þá er þetta lík­lega hún. Spólan breytti miklu. Hún rauf auð­vitað að miklu leyti rík­is­ein­ok­un­ina. Það er eitt­hvað sætt við sam­fé­lagið sem beið næstum í heild sinni árið 1983 eftir því að vita hver skaut J.R. en að flestu öðru leyti er það frekar óspenn­andi í augum okkar í dag. Það er ekki bara fjöl­breytnin sem varð til að lífga upp á afþrey­ing­ar­menn­ing­una heldur þurftum við ekki lengur að beygja okkur jafn mikið undir dag­skrá sjón­varps­ins. Við gátum tekið upp þátt á þriðju­dags­kvöldi og sparað okkur hann fram á sjón­varps­laust fimmtu­dags­kvöld.

Kvik­mynda­húsin voru fyrst mjög ósátt við spól­urnar en tóku þær seinna upp á arma sér og ráku sínar eigin leigur. Það var líka þannig að Íslend­ingar höfðu þurft að bíða lengi eftir að myndir kæmu í bíó. Í því villta vest­urs ástandi sem ríkti fyrstu árin þá voru myndir oft komnar á leig­urnar áður en þær komu í bíó. Mig grunar að það hafi orðið til þess að Ísland fékk myndir fyrr í bíó en áður hafði þekkst.

En auð­vitað var víd­eó­spólan líka snar þáttur í því að auka hlut banda­rískrar afþrey­ing­ar­menn­ingar á Íslandi og um leið að gera ensk­una enn stærri hlut af íslenskri menn­ingu. Þá var textun á mynd­bands­spólum mik­il­vægt skref til að við­halda íslensk­unni. Slíkar tak­mark­anir voru mögu­legar þegar um raun­veru­legar landamæra­hindr­anir var að ræða. Í dag erum við í allt öðrum sporum og við getum verið sátt eða ósátt við það.

Kannski er stóra breyt­ingin samt sú að afþrey­ing­ar­menn­ing hætti allt í einu að vera einnota. Flestar bíó­myndir komu í bíó og síðan mögu­lega í sjón­varp­inu. Myndir og sjón­varps­þættir eign­uð­ust fram­halds­líf. Það að bíó­myndir og sjón­varps­þættir í dag geta byggt á enda­lausum vís­unum í eldra efni er mögu­legt vegna þess að eldra efnið var til taks. Á Íslandi birt­ist þetta kannski helst í því að fólk horfði aftur og aftur á ára­mótaskaup og gat vitnað í þau fram og til baka. Mig grunar að það end­ur­tekn­ingin sé stór hluti af ástæð­unni fyrir því að margir telja skaupin 1984-1986 vera þau bestu. Þau voru nefni­lega tekin upp á öðru hverju heim­ili."

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár