Karolina Fund: Hreyfispjöld fyrir eldri borgara

Gerður Jóns­dóttir og Anna Björg Björns­dóttir eru tvær í teymi sem hafa mik­inn áhuga á hreyf­ingu og heil­brigðum lífs­stíl. Báðar eru þær íþrótta­konur, Anna Björg hefur stundað knatt­spyrnu nán­ast allt sitt líf og Gerður kemur fyrst og fremst úr fim­leikum, dansi og ýmsum bar­daga­listum. Leiðin lá því bein­ast við hjá þeim báðum að mennta sig í íþrótta­fræðum og eru þær báðar með Bs. gráðu og M.ed. í þeim fræðum.

Í nám­inu fengu þær mik­inn áhuga á hreyf­ingu eldri borg­ara og komust að því að lítið er til af aðgengi­legu efni fyrir þennan hóp í sam­fé­lag­inu. Þar má segja að áhugi þeirra hafi kviknað að hanna hentug hreyfi­spjöld fyrir eldri borg­ara til þess og styðja og hvetja til hreyf­ingar. Kjarninn hitti Gerði og Önnu Björg og tók þær tali.

1. Fyrir hvern eru hreyfi­spjöldin?

Hreyfi­spjöldin eru hönnuð með eldri borg­ara í huga en þrátt fyrir það geta allir nýtt sér spjöldin. Þetta eru ein­föld æfing­ar­spjöld sem auka styrk, þol, lið­leika og jafn­vægi. Æfing­arnar eru fram­kvæmdar með eigin lík­ams­þyngd og án útbún­aðs. Hreyfi­spjöldin eru í hent­ugri stærð og ekki nauð­syn­legt að hafa reynslu af hreyf­ingu þar sem á spjöld­unum eru myndir og full­nægj­andi útskýr­ingar. Öll eld­umst við og einn óum­flýj­an­legur þáttur öldr­unar er að öll lík­ams­starf­semi okkar skerð­ist, sem hægt er að koma í veg fyrir með reglu­bund­inni hreyf­ingu.

[adspot]

2. Hvernig er almennt lík­am­legt ásig­komu­lag eldri borg­ara á Íslandi?

Samkvæmt Hagstofu Íslands hefur með­al­aldur eldri borg­ara hækkað síð­ustu ár og lík­am­legt ásig­komu­lag þeirra því betra en áður.

Aukin tækni­þróun og betri lækn­is­þjón­usta hefur hjálpað til og mikil vit­und­ar­vakn­ing átt sér stað hvað varðar áhrif hreyf­ingar. Hreyfing er mik­il­vægur hluti heil­brigðs lífs­stíls og dregur úr hnignun tengdri öldrun.

Eldri borg­arar eru því sér­stak­lega hvattir til þess að stunda reglu­lega hreyf­ingu til þess að við­halda góðri heilsu og sjálf­stæð­ara lífi.

3. Lengir eða bætir hreyf­ing lífið?

Með því að stunda reglu­bundna hreyf­ingu er verið að við­halda góðri heilsu, auka lík­am­legan og and­legan styrk til að takast á við dag­leg verk­efni. Hreyfing hefur marg­þætt áhrif eins og auka þol og vöðva­styrk, aukin bein­þéttni betri svefn, minna hætta af ýmsum sjúk­dómum eins og syk­ur­sýki af teg­und 2, kransæða­sjúk­dómum, háþrýst­ingi, heila­blóð­falli, sumum krabba­meinum og einnig minni hætta á ótíma­bærum dauða. Styrkt­ar­þjálfun getur verið gíf­ur­lega gagn­leg fyrir ein­stak­linga komin á sín efri ár hún við­heldur vöðvamassa sem gerir það að verkum að hreyfi­færni við­helst betur, göngu­ör­yggi verður meira og ein­stak­lingur nær því að lifa sjálf­stæðu lífi mun lengur en ella. Jafn­vægisæf­ingar eru einnig mik­il­vægar þar sem þær geta komið í veg fyrir ótíma­bært fall sem getur haft skelfi­legar afleið­ingar í för með sér.

Það má því segja með góðu móti að reglu­leg hreyf­ing lengi lífið.

Við höfum lagt mikla vinnu í að búa til þessi spjöld og langar okkur að þetta verk­efni verði af veru­leika. Við biðlum til ykkar að styrkja þetta verk­efni svo við getum lagt loka­hönd á það og stuðlað að heilsu­efl­ingu eldri borg­ara.

Söfnunin fer nú fram hér á karolina­fund.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár