Karolina Fund: „Popup“ fótboltaÓpera á nýrri hátíð

Óperu­dagar í Kópavogi er ný óperu­há­tíð sem verður haldin dag­ana 1.­til 5. júní 2016 í Kópavogi. Hún er skipu­lögð af ungu tón­list­ar­fólki í nánu sam­starfi við Kópa­vogsbæ en mark­miðið er að breyta Kópa­vogsbæ í óperu­ og leik­svið í nokkra daga. Gestum og gang­andi verður boðið upp á fjöl­breytta dag­skrá á sem flestum stöðum þar sem flytj­endur og áhorf­endur munu eiga í fjör­ugu sam­tali við óperu­formið. S tað­setn­ing við­burða verða á ýmsum stöðum, í Salnum, í Leik­fé­lagi Kópavogs við Funalind, í Smára­lind og víðs­vegar um bæinn.

Óperu­dagar í Kópavogi eru unnir í sam­starfi við Menn­ing­ar­húsin í Kópavogi með Örnu Schram í far­ar­broddi. Kópa­vogs­bær er aðal­bak­hjarl Óperu­daga og hátíðin er styrkt af Lista­ og menn­ing­ar­sjóði bæj­ar­ins. L ist­rænn stjórn­andi Óperu­daga er Guja Sandholt og verk­efna­stjóri er Jóhanna Kristín Jóns­dóttir. Hönnun vef­síðu var í höndum Jóns Inga Stef­áns­sonar. Kjarninn ræddi við Guju og Jöhönnu.

Hvernig fara Óperu­dagar í Kópavogi fram?

„Fjöldi ungs lista­fólks kemur að hátíð­inni sem verður sú fyrsta sinnar teg­undar á Íslandi og mikil áhersla verður lögð á sam­fé­lags­lega nánd og þátt­töku. F jöl­margir við­burðir verða í boði og eru þeir nær allir ókeypis. Aðeins þarf að greiða fyrir aðgang að hádeg­is­tón­leikum hátíð­ar­innar. Á hátíð­inni verður boðið upp á Óperu­göngu og Krakka­göngu þar sem gestir verða leiddir um hjarta Kópavogs og munu ýmsar óvæntar óperu­legar upp­á­komur bíða þeirra. Göng­urnar hefj­ast við Garð­skál­ann, kaffi­húsið í Gerð­ar­safni.

Svo má nefna að ný íslensk Fót­bolta­ópera eftir Helga R. Ingv­ars­son verður frum­flutt og tvær stuttar óperu­upp­færslur líta dags­ins ljós. Önnur þeirra er Poppea Remixed þar sem ný og gömul tón­list mæt­ast. Sýningin byggir á óper­unni Krýning Poppeu eftir ítalska tónkáldið Monteverdi (1567­1643) en auk þess spilar hol­lenska popp­dúóið Sommer­hus eigin lög í bland. Hin er S els­ham­urinn sem er ný, íslensk sýn­ing eftir Árna Krist­jáns­son sem verður flutt í Leik­fé­lagi Kópavogs en hann leik­stýrir henni jafn­framt. Hand­ritið er skrifað í kringum þekktar óperu­ar­íur og klass­ísk ljóð sem fá nýtt sam­hengi á svið­inu.

Einnig má nefna Kaffi­kan­töt­una eftir J.S.Bach sem fyr­ir­tæki geta pantað í kaffi­pásur til að brjóta upp dag­inn fyrir starfs­menn og/eða við­skipta­vini. Frekari upp­lýs­ingar um hana má nálg­ast á heima­síð­unni.

Fyrir utan skipu­lagða við­burði munu ýmsar upp­á­komur eiga sér stað sem munu gleðja gesti og gang­andi. Lista­fólkið heim­sækir skóla og hjúkr­un­ar­heim­ili og þau fyr­ir­tæki sem hafa áhuga á að taka þátt. Þá verður boðið upp á kamm­er­tón­leika í heima­húsum og fimm vand­aðir hádeg­is­tón­leikar verða haldnir í Salnum og Leik­fé­lagi Kópavogs og eru gestir hvattir til að tryggja sér miða á þá við­burði."

Hverjir standa á bak­við hátíð­ina?

„Auk ofan­greindra aðila taka um 40 ungir lista­menn þátt í hátíð­inni Mark­miðið er að búa til hátíð með sterkum sam­fé­lags­legum und­ir­tóni og um leið skapa ný atvinnu­tæki­færi fyrir söngv­ara, tón­list­ar­menn og aðra sem vinna náið með óperu­söngv­urum og í mús­ík­leik­húsi. Margir söngv­ar­anna starfa nú þegar á sínu sviði erlendis og kynna sig nú til leiks á Íslandi. Má þar til dæmis nefna Aron Axel Cortes, barítón, Magnús Hall Jónsson, tenór, Rann­veigu Kára­dóttur, sópran, Elísa­betu Ein­ars­dóttur, sópran, Ragn­heiði Lilju Óla­dóttur, sópran Önnu Völu Ólafs­dóttur, alt og Pétur Oddberg Heim­is­son, bass­barítón. Nokkrir langt komnir söng­nemar koma einnig fram sem hyggja á fram­halds­nám erlendis er fram líða stundir. For­sprakkar hóps­ins hafa af þessu til­efni stofnað ný félaga­sam­tök sem nefn­ast Óperu­kollek­tífið PERA en vonir standa til um að þau sam­tök muni í fram­tíð­inni koma að fleiri metn­að­ar­fullum við­burðum á ýmsum stöðum.

Kópa­vogs­bær er aðal­bak­hjarl hátíð­ar­innar en auk hafa nokkur fyr­ir­tæki og stofn­anir séð sér fært um að leggja okkur lið. Má þar helst nefna Salinn í Kópavogi, Þýska sendi­ráðið á Íslandi, Herra­menn Rak­ara­stofu, Smára­lind, GA Smíða­járn og Svans­prent. Von okkar er sú að fleiri fyr­ir­tæki taki við sér í aðdrag­anda hátíð­ar­innar og styðji við verk­efnið með því að til dæmis að panta tón­list­ar­flutn­ing eða með því að bjóða starfs­fólki eða við­skipta­vinum á hádeg­is­tón­leika."

Hvers­konar ópera er Fót­bolta­Óperan?

„Fót­bolta­Óperan er glæ­nýtt „pop­up“ verk eftir Helga R. Ingv­ars­son sem hægt er að flytja hvar sem er. Hug­myndin að óper­unni kvikn­aði vegna Evr­ópu­móts­ins í fót­bolta og þeim mikla fót­bolta­á­huga sem ríkir nú í sam­fé­lag­inu. Verkið er stutt og skemmti­legt þar sem tvö ástríðu­full form eru látin mæt­ast. Við sjáum oft útrás sterkra til­finn­inga á báðum sviðum, í óperu­form­inu en einnig meðal áheyr­enda sem missa sig yfir spenn­andi leik. Flutn­ingur er í höndum sex ein­söngv­ara, fimmtán barna úr Skólakór Kársness og slag­verks­leik­ara.

Mikill list­rænn metn­aður ein­kennir Óperu­daga í Kópavogi og má segja að þetta sé til­raun til að færa óperu­formið nær almenn­ingi með skemmti­legum og skap­andi hætti. Það er von okkar sem stöndum að hátíð­inni að um árlegan við­burð verði að ræða og áheyr­endur sem alla jafna velja að sækja aðra list­við­burði en óperu­upp­færslur sjái þarna eitt­hvað nýtt, lif­andi og nær­andi í dags­ins önn.

Allar nán­ari upp­lýs­ingar um óperu­daga í Kópavogi má finna á vef­síðu ÓK, www.operudagar.is og Fés­bók­ar­síð­unni Óperu­dagar í Kópavogi. Söfnun hefur verið sett af stað á Karolina Fund 
og óskum við eftir fleiri styrkt­ar­að­ilum til að standa undir þessu viða­mikla verk­efn­isem Óperu­dagar í Kópavogi eru."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár