Karolina Fund: Teiknuð myndabók um Borgarfjörð eystri

Elín Elísabet Ein­ars­dóttir stendur þessa dag­ana að útgáfu bók­ar­innar Onyfir, sem er teiknuð mynda­bók um Borg­ar­fjörð eystri. Elín er að ljúka diplóma­námi við teikni­deild Mynd­lista­skól­ans í Reykja­vík og Onyfir er loka­verk­efni hennar þaðan. Við gerð bók­ar­innar dvaldi Elín í nokkrar vikur á Borg­ar­firði eystri við að teikna og skrá­setja þannig hvers­dag­inn á staðnum. Hún hefur sett teikn­ing­arnar saman í bók sem kemur út í maí og nú stendur því yfir hóp­fjár­öflun fyrir bók­inni á Karolina Fund.

Hvernig teng­ist þú Borg­ar­firði eystri?

„Ég hafði engin tengsl þangað fyrr en haustið 2011. Mig og vin­konu mína vant­aði vinnu í smá tíma og eftir nokkur sím­töl í fisk­verk­anir um allt land fengum við vinnu í Fisk­verkun Kalla Sveins á Borg­ar­firði eystri. Við þekktum engan á staðnum fyrst um sinn en mættum mjög vina­legu og hlý­legu við­móti og ég hef farið aftur austur að vinna á hverju ári síðan. Ég hef eign­ast góða vini og kunn­ingja þar og þykir vænna um stað­inn með hverju skipt­inu sem ég kem þangað.

[adspot]

Hug­myndin að verk­efn­inu kvikn­aði þegar ég kom örstutt til Borg­ar­fjarðar síð­asta haust til þess að teikna fyrir kvik­mynd­ina Hjarta­stein sem var tekin upp þar. Ég var veð­ur­teppt í einn auka dag og nýtti tím­ann meðal ann­ars til þess að teikna í fisk­verk­un­inni. Það var um það leyti sem hug­myndin að bók­inni fædd­ist."

Hvað er það sem heillar þig við hvers­dags­leik­ann í Borg­ar­firði eystri?

„Það er fyrst og fremst mann­lífið, sem er svo ein­stakt og ólíkt því sem ég á að venj­ast. Yfir vet­ur­inn eru bara u.þ.b. 100 manns á Borg­ar­firði svo allir vita allt um alla og það skilar sér oft í mjög langsóttum einka­brönd­urum. Stundum þegar ég veit ekk­ert hvað fólk er að fara kemur upp úr dúrnum að þau eru að vísa í sex ára gam­alt grín­at­riði frá þorra­blóti.

Þetta er líka sam­heldið og hjálp­samt sam­fé­lag og ég upp­lifi það sterkt, hvort sem það er í formi aðstoðar þegar springur á bílnum eða þess að vera skyndi­lega boðið í fondú.

Það var virki­lega gef­andi að koma þarna sem teikn­ari og kynn­ast þessu þannig frá öðru sjón­ar­horni. Ég varð virkur áhorf­andi að fleiri þáttum lífs­ins á Borg­ar­firði, t.d. með því að fara út í höfn að morgni til þess að fylgj­ast með löndun og að fá að vera fluga á vegg á fundi Félags eldri borg­ara - alltaf með skissu­bók­ina og vatns­lita­settið við hönd­ina."

Hvað stendur til með bók­ina eftir að hún kemur úr prentun? (hér er ég t.d. að vísa í útskrift­ar­sýn­ingu Mynd­lista­skól­ans í Reykja­vík og sýn­ing­una á Borg­ar­firði eystri)

„Næst á dag­skrá er að sýna afrakst­ur­inn! Ég mun sýna bók­ina og teikn­ingar úr henni, auk valdra verka úr nám­inu mínu, á útskrift­ar­sýn­ingu Mynd­lista­skól­ans í Reykja­vík sem opnar í JL-hús­inu þann 12. maí.

Í lok júlí kom­ast teikn­ing­arnar svo aftur heim - þá verð ég svo með einka­sýn­ingu í félags­heim­il­inu Fjarð­ar­borg á Borg­ar­firði eystri, um það leyti sem tón­list­ar­há­tíðin Bræðslan er haldin í þorp­inu. Það verður gaman að sjá við­brögð Borg­firð­inga við þessu öllu saman!"

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár