Karolina Fund: Reykjavik Media vinnur fyrir lesendur

Panama­skjölin, sem Reykja­vík Media hefur unnið úr, hafa ollið straum­hvörfum í íslensku sam­fé­lagi. Söfnun fyr­ir­tæk­is­ins á Karolina Fund lýkur á mið­nætti. Það hefur þegar safnað nær 100 þús­und evrum.

Jóhannes Kr. Krist­jáns­son er marg­verð­laun­aður rann­sókn­ar­blaða­maður og einn íslenskra blaða­manna sem er félagi í International Consortium of Investigative Journalists. Hann hefur und­an­farna mán­uði unnið að því að koma á fót nýju fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, að nafni Reykja­vik Media. Sam­starfs­maður Jóhann­esar er Aðal­steinn Kjart­ans­son blaða­maður. Hann starf­aði fyrir DV í um fimm ára skeið og síðan Vísi, þar sem hann setti sér að skrifa frétta­greinar með aðferðum gagna­blaða­mennsku. En þar kaf­aði hann dýpra í málin en yfir­leitt er gert í íslenskum fjöl­miðlum.

Rann­sóknir Jóhann­esar á svoköll­uðum Panama­skjölum sem hófust fyrir tæpu ári síðan ollu straum­hvörfum í íslensku sam­fé­lag­inu eftir að Kast­ljós­þáttur RÚV, sem unn­inn var í sam­starfi við Reykja­vik Media, fór í loftið þann 3. apríl síð­ast­lið­inn. Í kjöl­farið fundu þeir Jóhannes Kr. og Aðal­steinn fyrir miklum stuðn­ingi og ákváðu að setja af stað söfnun til að geta komið nýjum frétta­miðli Reykja­vik Media á kopp­inn. Kjarninn hitti Aðal­stein og tók hann tali.

[adspot]

Hvers vegna völdu þið að fara þessa leið til að fjár­magna Reykja­vik Media?

„Við sáum tæki­færi til að tengj­ast beint við les­endur og áhorf­endur okkar. Við erum að vinna fyrir þá og því fannst okkur rök­rétt að reyna að fara þessa leið til að treysta grunn fyr­ir­tæk­is­ins."

Verk­efnið ykkar sló öll met í hóp­fjár­mögn­un­ar­sam­hengi Karolina Fund, var þetta eitt­hvað sem þið áttuð von á?

„Nei þetta kom okkur skemmti­lega á óvart. Við fundum fyrir miklum áhuga frá fólki eftir að fyrsta fréttin okkar var birt í sam­starfi við Kastljós. Við opn­uðum söfn­un­ina dálítið fyrr en við höfðum ætlað okkur vegna þessa. Við náðum svo mark­mið­inu á fyrsta sól­ar­hringnum, sem sýnir áhug­ann sem við fundum fyrir."

Hvaða áhrif hefur það á starf­semi Reykja­vik Media að söfn­unin hefur gengið framar öllum vonum?

„ Við stöndum á sterk­ari fótum en við hefðum ann­ars gert. Mark­miðið sem við settum okkur var algjört lág­mark til að tryggja áfram­hald­andi frétta­vinnslu Reykja­vik Media."

Verk­efnið er að finna hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár