Karolina Fund: Smásögur, ljóð, örsögur og allt þar á milli

Tíma­skekkjur er afrakstur nám­skeiðs innan Háskóla Íslands sem nefn­ist Á þrykk, þar sem rit­listar- og rit­stjórn­ar­nemar kynn­ast öllum hliðum bóka­út­gáfu, frá hug­mynd að prent­grip. Hópurinn sam­anstendur af tíu höf­undum og fimm rit­stjórum og starfar undir leið­sögn Sig­þrúðar Gunn­ars­dóttur, rit­stjóra hjá For­lag­inu, sem kennt hefur nám­skeiðið und­an­farin þrjú ár. Uppskera þessa sam­starfs var útgáfa bókanna Hvísl (2013), Flæð­ar­mál (2014) og Upp­skrifta­bók – Skáld­verk (2015). Í ár lítur síðan bókin Tíma­skekkjur dags­ins ljós.

Verk­efnið er í hóp­fjár­mögnun hjá Karolina Fund. Þar er hægt að velja úr ýmsum mögu­leikum við fjár­mögnun. Vin­sæl­ast er að kaupa árit­aða bók og per­sónu­lega hæku, en það kostar ein­ungis um 4500 kr. Kjarninn ræddi við Fjalar Sig­urð­ar­son og Jóhönnu Maríu Ein­ars­dóttur skáld sem eru á meðal þeirra sem standa að verk­efn­inu.

Fjalar, hvað eru Tíma­skekkjur?

„Tíma­skekkjur er íslenskt skáld­verk, unnið af tíu rit­höf­undum og fimm rit­stjórum sem sam­eina krafta sína með það að mark­miði að gefa út auð­uga bók sem inni­heldur smá­sögur, örsögur, ljóð og allt þar á milli. Þegar vinna við bók­ina hófst var ákveðið að þema bók­ar­innar væri tím­inn. Síðan fóru höf­und­arnir af stað að semja og fann hver sinn vinkil á þemað. Þegar afrakstur þeirrar vinnu var síðan skoð­aður var fljót­lega ljóst að Tíma­skekkjur væri nafn sem hæfði efni bók­ar­innar. Bæði ger­ast sög­urnar og ljóðin á mis­mun­andi tímum auk þess sem sumar sög­urnar spanna löng tíma­bil innan síns söguramma."

Hverjir standa á bak­við bók­ina?

„Höf­und­arnir eru af öllum stærðum og gerðum, ef svo má segja, en það er einmitt einn af skemmti­leg­ustu þáttum náms­ins okkar hvað hóp­ur­inn er fjöl­breyttur. Við erum með stjörnu­skoð­ara, nörda, femínista sem þarf ekki að nota gler­augu, bylt­ing­ar­sinna, atvinnu­mann­eskju í gúmmí­skóm, vík­ing, orða­grín­ara, Panama ferða­lang, tíma­ferða­lang og svo lengi mætti telja. En þessi marg­breyti­legi hópur höf­unda hefur gefið út eða er að vinna að skáld­verkum eða þýð­ingum á ljóðum og sögum sam­hliða nám­inu.

Í ár er vænt­an­legt verk eftir Jóhönnu Maríu Ein­ars­dóttur sem hún hefur unnið und­an­farið sem meist­ara­verk­efni sitt. Um er að ræða póst­módernískt skáld­verk án sögu­þráðar. Það hefur því miður ekki enn hlotið end­an­legt nafn en það er á döf­inni. Fyrr á þessu ári birt­ist smá­saga eftir hana í bók­mennta­tíma­rit­inu Stínu. Sagan heitir End­ur­tekin sæla.

Þóra Björk Þórð­ar­dóttir er einnig tón­list­ar­kona og gaf út geisla­plöt­una I Am a Tree Now með frum­sömdum lögum og textum árið 2009. Hún er með aðra plötu í smíðum.

Sigrún Elí­as­dóttir hefur þegar gefið út nokkur rit af ýmsum gerðum; Söguleg ævi­saga alþýðu­manns­ins afa hennar með sjálfsævi­sögu­legu ívafi; Kallar hann mig, kallar hann þig - í leit að afa, gefin út af Upp­heimum. Þar að auki hefur hún skrifað fyrir Mennta­stofnun; létt­lestr­ar­bók­ina Kött­ur­inn sein­heppni um feita gula heim­il­is­kött­inn hennar sem hún mynd­skreytti sjálf; end­ur­sögn á Ódysseifs­kviðu sem Kristín Ragna mynd­list­ar­kona var fengin til að mynd­skreyta en það vill svo til að hún er líka rit­list­ar­nemi. Við þetta má bæta tveimur þema­heftum í sam­fé­lags­fræði og það þriðja er á vænt­an­legt. Þetta pár varð til þess að hin góðu sam­tök Rit­höf­unda­sam­band Íslands buðu Sigrúnu í faðm sinn.

Ásdís Ing­ólfs­dóttir hefur gefið út kennslu­efni í efna­fræði fyrir fram­halds­skóla, hún hefur birt ljóða­þýð­ingu í bók­mennta­tíma­rit­inu Stínu og stefnir að því að gefa út þýtt verk síðar á árinu eftir sænska verð­launa­höf­und­inn Jonas Hassen Khemiri.

Einar Leif gaf út vís­inda­sög­una Hvítir múrar borg­ar­innar vorið 2013. Þetta er fram­tíð­ar­tryllir sem tekur á sam­fé­lags­vanda­málum sam­tím­ans. Hann hefur einnig gefið út nokkuð af smá sögum, sem allar mætti flokka sem furðu­sögu. Helstar af þeim eru Aldur sem kom út í Tímariti Máls og menn­ingar 2014, Kvið­dóm­and­inn sem kom út í Tíma­rit­inu Stínu 2015 og Hin langa nótt sem kom út í Skíð­blaðni 2016.

Ég (Fjalar), líkt og Einar Leif og fleiri rit­list­ar­nemar, fékk birta smá­sögu eftir mig í Tímariti Máls og menn­ingar 2014 sem heitir Hinn rétt­sýni for­ingi.

Á hverju ári í des­em­ber gefur Blek­fjelagið, nem­enda­fé­lag rit­list­ar­innar, út jóla­bók með safni af textum eftir rit­list­ar­nema. Það skemmti­lega við bók­ina er að orða­fjöld­inn er ávallt tak­mark­aður. Í fyrra var fjöldi orða í hverjum texta tak­mark­aður við 97 orð og á hverju ári er tak­markið lækkar um eitt orð. Margir af höf­undum Tíma­skekkja hafa tekið þátt í þessu skemmti­lega verk­efni og ef fram­tíðin brosir björt þá mun síð­asta jóla­bók rit­list­ar­nema koma út eftir 95 ár og inni­halda sögur upp á eitt orð.

Svo við nefnum höf­undana nú, þá eru þetta; Ásdís Ing­ólfs­dóttir, Birta Þór­halls­dóttir, Einar Leif Nielsen, Fjalar Sig­urð­ar­son, Jóhanna María Ein­ars­dóttir, Jóhannes Ólafsson, Sigrún Elí­as­dóttir, Tryggvi Steinn Sturlu­son, Una Björk Kjerúlf og Þóra Björk Þórð­ar­dóttir

Rit­stjór­arnir sem að sjá um að halda okkur á spor­inu eru Dýrfinna Guð­munds­dóttir, Erna Guð­munds­dóttir, Kristinn Pálsson, Sandra Jóns­dóttir og Svan­hildur Sif Hall­dórs­dóttir."

Er ljóðið, örsagan og smá­sagan ávallt tengt höf­undi sínum, og öfugt, eða verður ein­hvern tím­ann rof milli höf­undar og texta?

Jóhanna er til svara:

Fræði­lega séð þá já. Það er frekar erfitt að aftengja texta og höf­und þegar höf­undur er þekktur. En það má vel, eins og snill­ing­ur­inn Roland Barthes segir. Því sam­kvæmt honum er höf­und­ur­inn dauður og les­and­inn á bara að lesa texta eins og þeir séu ekki afurð höf­undar. Sem er samt kannski svo­lítið útópísk hugsun, alla­vega út frá bók­mennta­fræði­legu sjón­ar­horni.

Ef spurn­ingin er hins vegar ekki fræði­legs eðlis heldur á við upp­setn­ingu bók­ar­innar, þá já, text­arnir eru feðraðir/mæðraðir. Einu text­arnir sem ekki eru sér­stak­lega höf­und­ar­merktir er tit­ill bók­ar­innar, upp­lýs­inga­síða varð­andi útgáfu bók­ar­innar, efn­is­yf­ir­lit, þakk­ar­texti og kápu­texti.

En Jóhanna, hvaða erindi á ljóðið, örsagan og (eða) smá­sagan við nútím­ann?

„Klisju­kennd­ast en lík­lega sann­ast væri að segja að stuttir textar eins og ljóð, smá­sögur og örsögur eru hent­ugar fyrir nútímales­endur þar sem þeir þjást flestallir af áunnum athygl­is­bresti. Nútíminn elskar Twitter af því að þar er bara hægt að tjá sig í ákveðið mörgum slögum. Oftast lesum við bara fyr­ir­sagnir greina og stækk­aða text­ann í dag­blöð­unum af því að við erum alltaf að flýta okkur. Það er eig­in­lega full­kom­lega óskilj­an­legt að fólk lesi ennþá 300 síðna doðranta en svo sjaldan ljóða­bækur.

Hins vegar er alltaf verið að spá fyrir dauða ákveð­inna bók­mennta­greina eða menn­ing­ar­miðla. Menn eru alltaf að bíða eftir dauða leik­húss­ins eða að óperan gefi upp önd­ina. En það ger­ist ekki. Svo lengi sem fólk hefur eitt­hvað að segja og þekk­ingu á notkun mis­mun­andi miðla þá deyja þeir ekki. Það er nefni­lega oft þannig að efni velur miðil, og það sem hentar í leik­verki gerir það kannski alls ekki í kvik­mynda­húsi. Og það sem hentar sem stöðu­upp­færsla á Twitter er kannski lélegur efni­viður í ljóð, og öfugt.

Hvaða nútími er þetta ann­ars sem fólk er alltaf að nefna og hvaða fólk til­heyrir honum?"

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár