Karolina Fund: Flotið burt frá streitu og áreiti

Að verk­efn­inu Flot­stofan standa þeir Hrafn Þrá­ins­son, Daníel Monzon og Stefán Arn­órs­son. Áhuginn á floti kvikn­aði hjá þeim fyrir nokkrum árum eftir að þeir heyrðu um notk­un­ar­mögu­leika tankanna í vin­sælu hlað­varpi. Þeir félagar vinna nú að því að koma á fót Flot­stofu í Reykja­vík. Slíkar stofur hafa verið til víða um heim í fjölda ára en með auknum rann­sóknum hafa vin­sældir þeirra auk­ist gríð­ar­lega og þá sér­stak­lega á síð­ustu 5-10 árum. Kjarninn tók Hrafn Þrá­ins­son tali.

Hvers konar stofa er flot­stofan?

„Flot­stofan er stofa byggð á erlendri fyr­ir­mynd og býður upp á aðgang að svoköll­uðum flot­tönkum. Þetta er stað­ur­inn sem við og margir höfum leitað að með ólíkum hætti. Það þekkja sjálf­sagt allir hvernig streita safn­ast upp í dag­legu lífi. Nútíminn okkar er fjöl­breyttur og spenn­andi en gríð­ar­lega krefj­andi.

[adspot]

Það getur verið erfitt að finna jafn­vægi til að vinda ofan af sér. Þannig sjáum við Flot­stof­una fyrir okkur. Sem stað þar sem maður getur átt stund með sjálfum sér án nokk­urs áreitis. Til að vinna úr öllu því sem dynur á, leyfa því að líða úr sér og takast end­ur­nýj­aður og ferskur á við lífið.

Þetta er staður sem þú getur heim­sótt hvort sem þú þarft nauð­syn­lega á hvíld að halda frá verkjum, ábyrgð og streitu eða bara líf­inu og öllum þeim erf­ið­leikum sem geta fylgt því að vera til í nútíma­sam­fé­lagi. Flot getur einnig reynst ótrú­lega vel til að und­ir­búa þig fyrir erf­iðar áskor­anir, stóra fundi, próf, kynn­ingar, sýn­ingar eða hvað sem er.

Hvert sem til­efnið er þá verður alltaf tekið vel á móti þér og þú munt ganga út í dag­inn, jákvæð­ari, sátt­ari og til­bún­ari til að takast á lífið.

Sam­an­lagt höfum við flotið á mis­mun­andi stofum í 5 löndum og komum auga á ýmis­legt sem hefði mátt gera betur. Við munum reyna að nýta okkur þá reynslu með því að til­einka okkur það besta frá hverjum stað og gera Flot­stof­una þannig að upp­á­halds staðnum þínum.
Áherslan okkar verður lögð á kyrrð, kósí og per­sónu­legri þjón­ustu. Við munum reyna að leiða þig að bestu upp­lifun­inni með góðum ráðum.
Margir eru eflaust hræddir um að fá inni­lok­un­ar­kennd en við höfum ýmis ráð til að eyða þeim ótta og hvetjum við því alla til að koma og prufa.
Við getum sjálfir ekki beðið eftir að geta haft greiðan aðgang í flott­ankanna. Við viljum að sem flest okkar fái að njóta þess að fljóta þyngd­ar­laus í ein­angr­uðu umhverfi og upp­lifa ekk­ert áreiti í fyrsta sinn!

Við hvetjum fólk til að kynna sér þetta nánar og jafn­vel hafa sam­band við okkur á Facebook ef það hefur ein­hverjar spurn­ingar."

Segjum að ég myndi vilja koma og fljóta hjá ykkur, hvernig færi það fram?

„Þú bókar tíma, mætir í mót­tök­una og færð hand­klæði og eyrnatappa hjá okkur, best er að fljóta án klæða og þarftu því ekki að taka neitt með þér. Við förum yfir vissa hluti með þér og gefum leið­bein­ingar um hvernig má fá sem mest útúr tím­anum í tanknum. Að því loknu slekkur þú á sím­anum og stígur inn í tankin

Þegar þú stígur í fyrsta sinn inn í flott­ank­inn mun þér eflaust bregða örlítið við kyrrð­ina og þyngd­ar­leysið. Að öllum lík­indum ertu að upp­lifa algjör­lega áreit­is­laust umhverfi í fyrsta sinn. Fyrir suma er það erfitt í fyrstu en eftir 2-3 skipti verður þetta ómissandi partur af líf­inu fyrir flesta ef ekki alla sem gefa því séns.

Hver flott­ankur verður í sér­rými með sturtu sem skapar per­sónu­lega upp­lifun fyrir alla sem koma. Her­bergin eru vel hljóð­ein­angruð til að tryggja að ekk­ert rjúfi slök­un­ina og þú getir átt ómet­an­lega og nauð­syn­lega stund með sjálfri/sjálfum þér í algjöru næði.

Hvert flot er 60 mín­útur að lengd en við reiknum með 90 mín­útum á hvern kúnna, 15 mín­útur fyrir flot og 15 mín­útur til þess að fara í sturtu að floti loknu, einnig yrði annað rými fyrir fólk sem þarf lengri tíma til að taka sig til með hár­þurrkum og spegli.

Þegar þú ert síðan klár get­urðu komið þér fyrir í sóf­anum, slakað á, fengið þér fría hress­ingu og spjallað um upp­lifun­ina áður en þú heldur af stað út í lífið end­ur­nærð/ur."

Er eitt­hvað fleira jákvætt sem getur komið út úr því að fljóta hjá ykkur, annað en ein­fald­lega að fá hvíld og frið í smá tíma?

„Já alveg klár­lega. Svíar hafa lík­lega verið hvað fremstir í rann­sóknum á áhrifum flot­með­ferðar í flot­tönkum en í Svíþjóð er flot við­ur­kennt með­ferð­ar­úr­ræði gegn bæði streitu og verkjum, og því nið­ur­greitt svipað og sjúkra­þjálfun.
Við von­umst til að fá þessa með­ferð við­ur­kennda hér í landi og teljum þetta úrræði nauð­syn­lega við­bót við aðrar lyfja­lausar með­ferðir gegn hinum ýmsu kvillum.

Einnig hafa nýlegar rann­sóknir sýnt fram á jákvæð áhrif flots í flot­tönkum á kvíð­arask­anir, bak­verki og vefja­gigt svo eitt­hvað sé nefnt.

Með auknum áhuga og frek­ari rann­sóknum munu eflaust fleiri jákvæðir kostir koma í ljós. Þegar í dag eru til margar reynslu­sögur af ein­stak­lingum sem hafa notað flot til að takast á við kvilla eins og: áfallastreituröskun, vefja­gigt, mígreni, verki og van­líðan í kjöl­far krabba­meins­með­ferðar.

Nú þegar hafa heil­brigð­is­starfs­menn sent okkur skila­boð og lýst yfir áhuga á með­ferð­inni og tökum við því fagn­andi. Þetta verður von­andi til þess að flýta því að með­ferðin verði við­ur­kennd hér á landi og von­andi með árunum komumst við Íslend­ingar úr fyrsta sæti yfir mestu lyfja­not­endur heims."

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár