Karolina Fund: Maðurinn sem minnkaði vistsporið sitt

„Ágangur manna á jörð­ina er orðin slíkur að hún hefur ekki lengur undan að fram­leiða hin nátt­úru­legu gæði sem menn­irnir nýta. Fólks­fjölgun og aukin neysla ræður hér mestu um og er neyslan nú orðin slík að talið er að mann­kynið sem heild noti nú auð­lindir sem jafn­ist á við eina og hálfa jörð á ári," segir Sigurður Eyberg. Í bígerð er heim­ild­ar­mynd um sjálf­bærni í ósjálf­bæru sam­fé­lagi og þar er fylgst með honum og til­raunum hans til að minnka vist­spor sitt. Kjarninn hitti Sigurð Eyberg í til­efni þessa verk­efnis og tók hann tali.

Hvaða hópur stendur á bak­við heim­ilda­mynd­ina „Maðurinn sem minnk­aði vistsporið sitt“?

„Bros­bræður eru menn­irnir á bak­við mynd­ina en hún hefði aldrei getað orðið ef ekki hefði komið til gríð­ar­lega óeig­in­gjarnt starf margra góðra aðila. Þar ber hæst fram­lag klipp­ar­ans Atla Þórs og hreyfi­mynda­mann­ins Arnars Fells Gunn­ars­sonar.

Þá er fjöldi tón­list­ar­manna sem leyfir okkur að nota tón­list­ina sína og þar eru Hinir Guð­dóm­legu Neand­er­dals­menn fremstir í flokki en tón­list þeirra setur mik­inn svip á mynd­ina. Aðrir eru Gálan, Þröstur Jóhann­es­son, Digital Joe og Hálf­tíma­gangur.

Annars vorum við flest að gera hluti sem við höfðum ekki gert mikið af áður – alla­vega ekki í svona stóru verk­efni."

Hvað er vist­spor?

„Vistspor er mæli­kvarði á sjálf­bærni. Vistsporið gengur út frá því að hægt sé að rekja alla neyslu mann­kyns til þess frjósama lands sem veitir okkur nátt­úru­auð­inn sem við notum til að fram­leiða vör­urnar sem við erum að neyta. Með sama hætti er hægt að meta hversu mikið land­svæði þarf til að taka við sorp­inu og meng­un­inni sem neysla okkar veldur. Þetta gerir okkur kleift að meta umhverf­is­á­hrif neyslu ein­stak­lings eða stærri heildar eins og fyr­ir­tækis, sveit­ar­fé­lags eða þjóðar. Því meiri sem neyslan er því meira þarf af frjósömu landi til að standa undir henni og því stærra verður Vistsporið."

Hvaða spurn­ingum eru þið að reyna að svara með þess­ari heim­ilda­mynd?

„ Aðal spurn­ingin sem lagt var upp með var: Er hægt að lifa sjálf­bæru lífi í íslensku, nútíma sam­fé­lagi? Aðrar spurn­ingar sem svo óhjá­kvæmi­lega koma upp snú­ast svo um hvað maður þarf að gera til að nálg­ast þetta mark­mið, þ.e.a.s. á hverju er best að byrja, hvað vegur þyngst o.s.frv.

Þessum spurn­ingum er svo öllum svarað í mynd­inni eftir því sem Siggi upp­götvar þetta sjálfur við það að reyna lifa sjálf­bæru lífi.

Myndin verður frum­sýnd í sam­starfi við Umhverfis- og auð­linda­fræði við Háskóla Íslands mið­viku­dag­inn 20. apríl klukkan 15.00, í Háskóla­bíói í Reykja­vík, sal 2. Enginn aðgangs­eyrir og allir vel­komnir."

Söfnun er hafin á Karolina Fund til að koma mynd­inni á DVD diska, sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár