Karolina Fund: Bók um mikla lífsreynslu á stuttri ævi

Í und­ir­bún­ingi er útgáfa bók­ar­innar SPOR. Ævi Guðrúnar Árnýjar Guð­munds­dóttur frá Hurð­ar­baki. Höfundur bók­ar­innar er dr. Guð­mundur Sæmunds­son háskóla­kenn­ari. Hann hefur gefið út all­margar bækur, auk þess sem hann hefur skrifað mik­inn fjölda greina. Guð­mundur hefur nú ásamt eig­in­konu sinni, Ingi­björgu Jóns­dóttur Kolka, og bróður, Hreiðari Þór Sæmunds­syni, ráð­ist í að gefa út þessa bók. Kjarninn tók höf­und bók­ar­innar tali um bók­ina og til­urð hennar.

Hvers vegna vald­irðu að skrifa um móði þína, Guðrúnu Árnýju Guð­munds­dóttur frá Hurð­ar­baki í Flóa, er eitt­hvað í sögu hennar eða per­sónu­leika sem var kveikjan að því?

„ Móðir mín heitin eign­að­ist sjö börn en missti þrjú þeirra á unga aldri og varð að sjá á eftir einu í við­bót í fóstur. Hún and­að­ist svo 45 ára að aldri eftir erfið veik­indi sem staðið höfðu árum saman. Með bók­inni langar mig til þess að kynna hana fyrir þeim afkom­endum hennar sem aldrei fengu tóm til að kynn­ast henni, sem og öðrum. Þeir sem þekktu hana hafa einnig kannski gaman af að rifja upp kynnin af henni. Bókin hverf­ist að veru­legu leyti um erf­iða lífs­reynslu hennar og þá miklu sorg­ar­at­burði sem hún upp­lifði. Þeir mörk­uðu líka djúp spor í sál­ar­líf pabba og mömmu og einnig í hugum okkar afkom­enda þeirra."

Hvernig teng­ist þú aðal­sögu­per­són­unni?

„Mamma fædd­ist 27. febr­úar 1920 að Hurð­ar­baki í Flóa þar sem hún ólst upp. For­eldrar hennar voru Þuríður Árna­dóttir (1894 – 1985) og Guð­mundur Kristinn Gíslason (1890-1954) og var hún elsta barn þeirra. Ég er elstur af þeim börnum hennar sem komust til full­orð­ins­ára en bræður mínir heita Hreiðar Þór, Sigurður Rúnar og Matthías Viðar sem er lát­inn."

Breytt­ist eitt­hvað teng­ingin við það að rann­saka sögu hennar?

„Já, svo sann­ar­lega. Vissu­lega á ég góða mynd af henni sem móður því að ég var orð­inn 19 ára þegar hún lést. Hins vegar þekkti ég hana aldrei eins og full­orð­inn sonur þekkir full­orðna móður sína. Sá kunn­ings­skapur komst hins vegar á með okkur við að skrifa þessa bók. Mér finnst ég þekkja hana miklu betur en áður og skilja hana."

Eru þetta þín fyrsta ævi­sögu­skrif?

„Það má segja það. Að vísu rit­stýrði ég æviminn­inga­bók föður míns, Sæmundar Bergmann Eli­mund­ar­sonar, sem hann skrif­aði árið 2000 í til­efni 85 ára afmælis síns, Hug­leið­ingar og minn­ina­brot. Hann lést svo örfáum árum síðar. Sú bók sýndi mér hve dýr­mætt það er fyrir afkom­endur að eiga aðgang að slíkum minn­ingum um látna ást­vini og for­feður. Það var þá sem hug­myndin að bók­inni um mömmu kvikn­aði."

Hvaða merk­ingu hefur það að skrá sögu Guðrúnar Árnýjar?

„Fyrir þá sem lesa munu bók­ina verður margt að fræð­ast um hina svoköll­uðu „Hurð­ar­baksætt“ sem státar af mörgu góðu fólki. Í bók­inni er margs­konar fróð­leikur um ætt og upp­runa, niðja­tal, bernsku­heim­ili og margt fleira. En mik­il­væg­ast tel ég að geti orðið það að fólk kynn­ist betur þeirri ynd­is­legu konu sem mamma var, þrátt fyrir allt and­streymið. Hún var alveg sér­stök kona og hæfi­leik­a­rík. Meðal ann­ars hafði hún sterka mið­ils- og spá­dóms­hæfi­leika sem reynt er að gera grein fyrir í bók­inni."

[adspot]

Er ekki dýrt að gefa út slíka bók?

„Jú, það kostar mikið fé og varla hægt að búast við að bókin selj­ist í stóru upp­lagi. Mikill fjöldi mynda prýðir bók­ina sem verður prentuð hjá Sam­skiptum í Reykja­vík en form­legur útgef­andi verður Blá­Skógar ehf. Bókin verður 96 síður í B5-broti, límd í kjöl og lit­prentuð, jafnt kápa sem inn­síður. Vegna kostn­að­ar­ins stendur nú yfir söfnun á vegum fjár­mögn­un­ar­vefs­ins Karolina Fund til að fjár­magna hana. Útgáfan er háð því að þessi söfnun gangi vel."

Hér er hægt að sjá Karolina Fund-síðu verk­efn­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár