Karolina Fund: Finnst þér plötur asnalegar?

Páll Ivan frá Eiðum fékk fyrir ein­hverju síðan skila­boð frá ókunn­ugum manni (Dr. Gunna) sem spurði hann hvers vegna hann hefði ekki gefið út plötu, og hvort honum fynd­ist plötur asna­legar? Nú, nokkrum vikum síðar er Páll Ivan búinn að mixa og mastera 15 laga plötu (LP vín­yll). Það eina sem honum vantar upp á er að hanna og prenta umslagið, fram­leiða plöt­urnar og borga fólki fyrir vinn­una. Kjarninn tók Pál Ivan tali.

Segðu okkur frá mynd­list­inni þinni og þér sem mynd­lista­manni?

„Ég hef lengi daðrað við mynd­list­ina í ein­hverri mynd en það var í raun árið 2012 sem ég byrja af ein­hverri alvöru. Ég var þá í fæð­ing­ar­or­lofi en barns­móðir mín hún Elín Anna Þór­is­dóttir er mál­ari og mynd­list­ar­maður þannig að heim­ilið var fullt af máln­ingu, penslum, og öðru sem þarf til þess að mála.

Ég var svo skelfi­lega vansvefta að ég gat ekki með nokkru móti búið til tón­list eða hugsað eða gert nokkuð vit­rænt, en að mála - það gat ég. Það var æðis­legt að byrja bara að sulla með liti, dreifa þeim yfir flöt­inn án skipu­lags eða vænt­inga. Unaður. Svo hef ég bara ekki hætt. Er að teikna mjög mikið um þessar mundir, voða mikið typpi og píkur en allt voða krútt­legt bara. Kæru les­endur: Ekki hika við að byrja að mála og teikna! Ekki vera feimin! Það geta það allir, það mega það allir og það má alveg vera lélegur og hafa gaman!"

[adspot]

Hvað er þessi plata búin að vera lengi í bígerð?

„Tja platan hefur í raun aldrei form­lega verið í vinnslu fyrr en fyrir örfáum mán­uðum síðan. Lögin eru sum orðin ansi gömul en ég hef bara sett þau á soundcloud og ekki hugsað um þau mikið meir. Svo fyrir stuttu sendir hann Dr. Gunni mér skeyti: Afhverju ertu ekki búinn að gefa út plötu? Eru plötur asna­legar? Örfáum vikum síðar var búið að mixa og mastera plötu, fá FM Belfast remix af einu lag­anna og henda í Karolina Fund fjár­öflun."

Ertu einn að vinna að þessu verki eða eru ein­hverjir góðir með þér?

„Hann Dr. Gunni hefur verið að hjálpa mikið við að velja lögin og ákveða röð­ina á þeim og svo hefur hann Albert Finn­boga­son verið að mixa aðeins og mastera allt. Það eru ein­hverjir lík­legir sam­starfs­að­ilar í tengslum við útgáf­una sjálfa en það verður að koma í ljós aðeins seinna. Ef ég verð ekki neyddur til að gera umslagið sjálfur að þá væri frá­bært að fá frá­bæran lista­mann í verkið! Ef þið hafið hug­myndir að mögu­legum umslags­gerð­ar­lista­mönnum þá megið þið endi­lega láta mig vita."

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár