FME um The Big Short - Mynd um hvernig á ekki að gera hlutina

Kvik­myndin The Big Short er kvik­mynd sem fjallar um hvernig eigi ekki að gera hlut­ina. Af henni má draga mik­inn lær­dóm og allir sem eru við­loð­andi fjár­mála­geir­ann ættu að gefa sér tíma til að horfa á hana. Þetta kemur fram í kvik­mynda­dómu um The Big Short sem birt­ist í Fjár­málum, vefriti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem kom út í dag. Dóminn skrifar Andri Már Gunn­ars­son, sér­fræð­ingur í mark­aðs­grein­ingu hjá eft­ir­lit­inu. Þetta er í fyrsta sinn sem kvik­mynda­dómur er birtur í vefriti Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Það stað­festir Sigurður Val­geirs­son, upp­lýs­inga­full­trúi þess.

The Big Short er gam­an­mynd byggð á sam­nefndri met­sölu­bók hag­fræð­ings­ins Michael Lewis. Handrit mynd­ar­innar eru í raun þrjár sam­hang­andi sögur sem fjalla allar um sama hlut­inn, fast­eigna­bóluna á mán­uð­unum og árunum fyrir hrunið 2008. Myndin er einnig sann­sögu­leg eða að minnsta kosti að ein­hverju leyti byggð á alvöru fólki, fyr­ir­tækjum og atburðum. Sögurnar þrjár fjalla allar um menn sem sáu hvað var í vændum og tóku stöðu gegn fast­eigna­mark­að­inum, þ.e. veðj­uðu á að mark­að­ur­inn myndi á end­anum hrynja. Munurinn á sög­unum felst því aðal­lega í pen­inga­magn­inu sem menn­irnir hafa til umráða.

Í umfjöllum Kristins Hauks Guðna­sonar sagn­fræð­ings um The Big Short í Kjarn­anum fyrr á þessu ári segir að myndin sýni glöggt „sturlun­ina og með­virkn­ina sem átti sér stað á þessum tíma og fyr­ir­litn­ing kvik­mynd­ar­gerð­ar­mann­ana á öllu fjár­mála­kerf­inu leynir sér ekki. Það fólk sem tók þátt í hruna­dans­inum er sýnt sem heimskt, hroka­fullt, hégóma­fullt og montið. Engu að síður virð­ast aðal­per­sónur mynd­ar­innar heyja óvinn­an­legt stríð gegn kerf­inu. Myndin hefur súran und­ir­tón en er þó bráð­fyndin.“

Á meðal leik­ara í mynd­inni eru stór­stjörnur á borð við Brad Pitt, Ryan Gosling og Christian Bale. Auk þess fer gam­an­leik­ar­inn Steve Carell með burð­ar­hlut­verk.

Svona á ekki að gera hlutina

Í dómi starfs­manns Fjár­mála­eft­ir­lits­ins er sagt að sagan sé svo ótrú­leg að hún gæti virst vera skáld­skapur frá byrjun til enda. Það sé hún hins vegar ekki og leik­stjóra mynd­ar­innar tekst að koma frá­bærri bók á hvíta tjaldið á meist­ara­legan hátt. „Það eina sem ég kynni að setja út á við mynd­ina er hvernig fjár­mála­af­urð­irnar sem menn voru að versla með eru kynntar fyrir áhorf­endum. Í mynd­inni er farin sú leið að þekktir ein­stak­lingar taka fyrir til­tekin hug­tök og útskýra þau með mynd­lík­ingum. Ég verð bara að við­ur­kenna að mér þótti þær ein­fald­lega ekki nægi­lega góðar og eftir að hafa hlustað á þær var ég litlu nær um hvað var verið að reyna útskýra. Það sem varð mér til happs í þessu er að vegna ald­urs og fyrri starfa hef ég ágætis þekk­ingu á þessum málum en ég get vel ímyndað mér að hinn venju­legi starfs­maður á plani sem ekki býr yfir nauð­syn­legri þekk­ingu hafi verið litlu nær um hvað málið snérist.

Heilt yfir er þetta þó stór­góð kvik­mynd sem ég mæli ein­dregið með að allir þeir sem eru eitt­hvað við­loð­andi fjár­mála­geir­ann taki sér tíma til að horfa á. Þetta er saga sem vekur mann til umhugs­unar og margur mætti draga af henni mik­inn lær­dóm enda fjallar hún að miklu leyti um hvernig á ekki að gera hlut­ina.“

Áhorfandinn ætlaði heim að ná í heykvíslina

Kvik­mynda­gagn­rýnd­andi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins segir í nið­ur­lagi dóms síns að við enda mynd­ar­innar sitji áhorf­and­inn eftir og velti því fyrir sér hvernig í fjár­anum þetta gat allt saman gerst. „Maðurinn sem sat við hlið­ina á mér í bíó­inu hafði það á orði að hann ætl­aði að skella sér heim, ná í heykvísl­ina, taka fyrsta strætó niður á Aust­ur­völl og fara að mót­mæla. Ég veit svo sem ekki hverju nákvæm­lega, enda erfitt að ætla sér að benda á ein­hvern einn til­tek­inn söku­dólg, en mér fannst þetta þó lýsa ágæt­lega þeim til­finn­ingum sem myndin kann að vekja upp hjá fólki. En þrátt fyrir að kvik­myndin sé stór­kost­leg skemmtum sem ég mæli hik­laust með sleppir hún ýmsum áhuga­verðum atriðum sem dýpka sög­una og gefa betri inn­sýn inn í þær aðstæður þarna voru uppi. Af þeim sökum kemst ég ekki hjá því að segja að lokum... Þú verður að lesa bók­ina!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

FME

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár