Topp tíu - Kvikmyndir ársins 2015

Hvað myndir vinna til Ósk­arsverð­launa? Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur og kvik­mynda­á­huga­maður fjallar um bestu myndir árs­ins 2015.

Aðfar­arnótt næst­kom­andi mánu­dags verða ósk­arsverð­launin veitt og kvik­mynda­árið 2015 þar með gert upp. Árið hefur verið ein­stak­lega gott á flestum sviðum líkt og árið 2014 og má segja að kvik­mynda­gerð sé að rísa úr öskustónni eftir mörg mögur ár þar áður. Lítum á rjómann af bíó­ár­inu 2015.

10. Grandma

Grandma er með snjöll­ustu gam­an­myndum sein­ustu ára. Myndin fjallar um ung­lings­stúlk­una Sage og ömmu hennar sem rúnta um í leit að 630 doll­urum svo hin fyrr­nefnda kom­ist í fóst­ur­eyð­ingu. Hún er stutt og gerð fyrir lít­inn pen­ing en segir þó heil­mikla sögu. Þetta er mynd sem fjallar í raun um þrjár kyn­slóðir kvenna og þrjár mjög ólíkar týpur. Sage er sjálf­hverfur ung­lingur sem hugsar lítið um fram­tíð­ina og reiðir sig alfarið á aðra. Móðir hennar er dæmi­gerð frama­kona, ákveðin og hvöss. Amman er svo fyrrum hippi og fem­inískur fræði­maður með kjark á við hnefa­leika­mann. Á ferð þeirra í leit að pen­ing­unum hitta þær margar skraut­legar per­sónur en engin þeirra er þó skraut­legri en amman sjálf sem leikin er óað­finn­an­lega af Lily Tomlin. Myndin fjallar að miklu leyti um kven­rétt­indi og fóst­ur­eyð­ingar en sam­kyn­hneigð er einnig mik­il­vægt þema í henni. Tomlin, sem er sam­kyn­hneigð sjálf, hefur einmitt verið virk í bar­áttu sam­kyn­hneigðra í gegnum tíð­ina. En þó að við­fangs­efni mynd­ar­innar séu þung og mik­il­væg þá er Grandma fyrst og fremst gam­an­mynd og kjána­skap­ur­inn aldrei langt undan.

9. Le Tout Nouveau Testament

Glænýja testa­mentið er belgísk mynd þar sem ímynd­un­ar­aflið fær að leika lausum hala. Myndin fjallar um Eu sem er dóttir guðs almátt­ugs og býr með honum og móður sinni (sem er ekki nefnd á nafn) í annarri vídd. Ea er ein­ungis barn að aldri og ekki mik­ils metin á heim­il­inu enda hafði hitt barnið (Jésú Kristur) ein­ungis skapað vanda­mál fyrir guð. Myndin kann að stuða marga þar sem sjálfur guð er settur fram sem hálf­gerður skít­hæll. Hann er ofbeld­is­fullur keðjureyk­ing­ar­maður sem kemur illa fram við fjöl­skyldu sína og jafn­vel verr fram við gjör­vallt mann­kynið. Ea ákveður því að hrista upp í ver­öld­inni með því að senda öllum jarð­ar­búum SMS með áætl­uðum dán­ar­degi þeirra. Svo flýr hún til jarðar í gegnum þvotta­vél til að finna nýja læri­sveina og skrifa glæ­nýtt guð­spjall. Eðlilegt, ekki satt? Myndin er vissu­lega frum­leg en þrátt fyrir atburð­ar­rás­ina verður hún aldrei óskilj­an­leg. Hand­ritið er gott og leik­ar­arnir afbragð, sér­stak­lega franska stór­leik­konan Catherine Denevue sem leikur einn af læri­sveinum Eu (….og er ást­fangin af gór­illu­apa). Myndin er einnig algert augna­konfekt. Hún er lit­rík, fal­leg, vel tekin og ákaf­lega skemmti­lega klippt.

8. Sicario

Sicario er spennu­mynd af bestu sort sem ger­ist í miðju eit­ur­lyfja­stríð­inu á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó. Sagan er séð frá sjón­ar­horni hinnar ungu lög­reglu­konu Kate Macer sem starfar fyrir alrík­is­lög­regl­una í Arizona en er fengin til þess að fara í sér­verk­efni með leyni­þjón­ust­unni CIA yfir landa­mærin til Mexíkó. Ástandið er hrika­lega í mexíkósku borg­inni Juárez, rétt sunnan við Texas, sem virkar á mann eins og her­setin borg. Hrotta­skapur er stund­aður af bæði eit­ur­lyfja­hringj­unum og lög­regl­unni og laga­bók­staf­ur­inn er að engu hafður. Leik­konan Emily Blunt stendur sig með prýði sem Macer en bestu frammi­stöðu mynd­ar­innar á Benicio Del Toro sem virð­ist loks­ins kom­inn aftur í sitt besta form. Drunga­legt og þrúg­andi and­rúms­loft ein­kennir mynd­ina ásamt löngum spennu­þrungnum atriðum. Þetta and­rúms­loft er magnað upp með frá­bærri tón­list Jóhanns Jóhanns­sonar sem er til­nefndur til ósk­arsverð­launa annað árið í röð. Annars lagið eru sýnd atriði sem fjalla um mexíkóska lög­reglu­mann­inn Silvio, sem vinnur á laun fyrir eit­ur­lyfja­hring, og fjöl­skyldu hans. Þessi atriði virð­ast í fyrstu alls ótengd sögu­þræði mynd­ar­innar en þau gefa henni mann­legan tón.

7. Going Clear: Scientology and the Prison of Belief

Alex Gibney er einn besti heim­ild­ar­mynda­gerð­ar­maður sam­tím­ans. Hann hefur á sein­asta ára­tug gert myndir á borð við Enron: The Smartest Guys in the Room, Taxi to the Dark Side og Client 9: The Rise and Fall of Eliot Spitzer. Í Going Clear skyggn­ist hann inn í heim hinnar umdeildu vís­inda­kirkju. Það er farið yfir sögu kirkj­unnar frá upp­hafi og ein­blínt á tvo mik­il­væg­ustu menn­ina sem hafa verið tengdir henni. Annars vegar stofn­and­ann L. Ron Hubbard sem þekktur var fyrir að skrifa lélegan vís­inda­skáld­skap og að vera úr tengslum við raun­veru­leik­ann. Hins vegar núver­andi leið­tog­ann, David Miscavige , sem breytti illa stæðum og lít­il­megn­ugum sér­trú­ar­söfn­uði í fjár­mála­veldi sem hefur veru­leg ítök í sam­fé­lag­inu þrátt fyrir til­tölu­lega fáa safn­að­ar­með­limi. Í mynd­inni fær maður að fylgj­ast með hvernig sér­trú­ar­söfn­uðir ná taki á með­limum sínum og hvernig sál­fræðin á bak við þá virka. Myndin er að miklu leyti byggð upp á við­tölum við fyrrum safn­að­ar­með­limi sem sluppu úr kirkj­unni. Þeir hafa þurft að sæta ofsóknum og hót­unum af hálfu kirkj­unnar og hafa misst tengsl við fjöl­skyldu­með­limi og vini sem ennþá eru virkir. Það kemur því ekki á óvart að vís­inda­kirkjan hefur beytt sér af hörku gegn dreif­ingu mynd­ar­innar.

6. The Big Short

The Big Short er gam­an­mynd byggð á sam­nefndri met­sölu­bók hag­fræð­ings­ins Michael Lewis. Handrit mynd­ar­innar eru í raun þrjár sam­hang­andi sögur sem fjalla allar um sama hlut­inn, fast­eigna­bóluna á mán­uð­unum og árunum fyrir hrunið 2008. Myndin er einnig sann­sögu­leg eða að minnsta kosti að ein­hverju leyti byggð á alvöru fólki, fyr­ir­tækjum og atburðum. Sögurnar þrjár fjalla allar um menn sem sáu hvað var í vændum og tóku stöðu gegn fast­eigna­mark­að­inum, þ.e. veðj­uðu á að mark­að­ur­inn myndi á end­anum hrynja. Munurinn á sög­unum felst því aðal­lega í pen­inga­magn­inu sem menn­irnir hafa til umráða. The Big Short sýnir glöggt sturlun­ina og með­virkn­ina sem átti sér stað á þessum tíma og fyr­ir­litn­ing kvik­mynd­ar­gerð­ar­mann­ana á öllu fjár­mála­kerf­inu leynir sér ekki. Það fólk sem tók þátt í hruna­dans­inum er sýnt sem heimskt, hroka­fullt, hégóma­fullt og montið. Engu að síður virð­ast aðal­per­sónur mynd­ar­innar heyja óvinn­an­legt stríð gegn kerf­inu. Myndin hefur súran und­ir­tón en er þó bráð­fyndin. Hún skartar einnig ein­vala liði leik­ara á borð við Brad Pitt, Ryan Gosling og Christian Bale. Það er þó gam­an­leik­ar­inn Steve Carell sem skarar algjör­lega fram úr, hann virð­ist vera á barmi tauga­á­falls alla mynd­ina.

5. Room

Kanadíska myndin Room hefur komið mörgum á óvart í ár. Hún er byggð á sam­nefndri skáld­sögu eftir írska rit­höf­und­inn Emmu Donoghue sem fékk hug­mynd­ina eftir að hafa fylgst með hinu hrylli­lega máli mann­ræn­ingj­ans Josefs Fritzl í Aust­ur­ríki. Room fjallar um Joy, unga konu sem hefur verið læst inni í mörg ár með syni sínum Jack í kofa sem þau kalla “her­bergið” og mann­ræn­ing­inn er faðir drengs­ins. Hún hefur gert margar til­raunir til þess að sleppa úr prís­und­inni og leyfir mann­ræn­ingj­anum ekki að koma nálægt Jack. Það sem er athygl­is­verð­ast við kvik­mynd­ina er sál­fræðin á bak við hana. Bæði hvernig Joy bregst við því að vera tekin úr blóma lífs­ins og haldið í ánauð og hvernig Jack upp­lifir ver­öld sína sem er ein­ungis örfáir fer­metrar að flat­ar­máli. Myndin er að vissu leyti heill­andi en hún vekur einnig hjá manni veru­legan óhug. Fyrir utan sög­una sjálfa er helsti styrkur mynd­ar­innar leik­ur­inn. Brie Larson sem fer með hlut­verk Joy er ákaf­lega sann­fær­andi og hefur bæði unnið Golden Globe og BAFTA verð­launin fyrir leik í aðal­hlut­verki. Hún þykir lang­sig­ur­strang­leg­ust til að hreppa ósk­ars­stytt­una. En hinn ungi Jacob Tremblay sem fer með hlut­verk Jacks á ekki síður heiður skilin. Það er ekki oft sem maður sér barn leika svona vel.

4. Krigen

Danska kvik­myndin Krigen (Stríðið) fjallar um danska liðs­for­ingj­ann Claus M. Pedersen sem stýrir her­deild í suð­ur­hluta Afghanistan. Þema mynd­ar­innar er fyrst og fremst ábyrgð her­manna í stríðs­á­tökum og ger­ist myndin bæði á víg­stöðv­unum í Afghanistan og í rétt­ar­sal í Danmörku. Pedersen lendir í vanda þegar hann tekur ranga ákvörðun í miðjum bar­daga. Ýmsum sið­ferði­legum spurn­ingum er varpað fram í mynd­inni og ekk­ert virð­ist alger­lega svart eða hvítt. Til að mynda veltir maður því fyrir sér hvort að dóm­stólar séu yfir höfuð færir um að skera úr um mál sem koma upp í stríðs­á­tökum. Að auki er fylgst með fjöl­skyldu Peder­sens og hvaða áhrif fjar­vera hans og lífs­hætta hefur á hana. Pedersen er lysti­lega leik­inn af Pilou Asbæk sem er Íslend­ingum að góðu kunnur úr sjón­varps­þáttum á borð við For­brydel­sen, Borgen og 1864. Krigen var ein af þeim kvik­myndum sem sýnd var á RIFF-hátíð­inni nú í haust þar sem sér­stök áhersla var lögð á danska kvik­mynda­gerð. Myndin er einnig til­nefnd til ósk­arsverð­launa nú í ár sem besta kvik­myndin á erlendu tungu­máli.

3. The Walk

Þann 6.ágúst árið 1974 laum­uð­ust hinn franski Philippe Petit og sam­verka­menn hans upp á efstu hæðir tví­bura­t­urn­anna svoköll­uðu í New York sem þá voru nýbyggðir og ekki opn­aðir. Þeir strengdu vír á milli turn­anna um nótt­ina og um morg­un­inn gekk Petit á milli turn­anna án örygg­i­s­kap­als í um 400 metra hæð yfir mal­bik­inu. Þessu afreki (eða fífldirfsku) var gerð góð skil í heim­ild­ar­mynd­inni Man on a Wire sem kom út árið 2008 og hlaut sú mynd ósk­arsverð­laun það árið. The Walk er leikin mynd um göngu­ferð­ina frægu og þykir nokkuð sögu­lega rétt enda var Petit sjálfur þáttak­andi í gerð hennar. Hann þjálf­aði aðal­leik­ar­ann Joseph Gordon-Levitt í að ganga á vír en hefði reyndar mátt taka hann í tal­þjálfun líka því að franski hreim­ur­inn er hreint út sagt skelfi­legur. Myndin hefur langan aðdrag­anda þar sem þjálfun og und­ir­bún­ingur Petits er sýndur og maður getur hrein­lega ekki beðið eftir göng­unni sjálfri. Gangan sjálf er svo hreinn kvik­mynda­galdur þar sem maður heldur niður í sér andandum og getur vart blikkað augum. Myndin var sér­stak­lega gerð fyrir þrí­víddar og IMAX áhorf og fregnir hafa borist af því að víða hafi fólk kastað upp í bíó­sölum. The Walk er ekki bara hefð­bundin kvik­mynd um sögu­legt afrek, að horfa á hana er reynsla.

2. Mad Max: Fury Road

Fury Road er fjórða inn­leggið í áströlsku ser­í­unni Mad Max en fyrstu þrjár mynd­irnar komu út á árunum 1979-1985 og skört­uðu Mel Gibson sem hinum brjál­aða Max. Myndin ger­ist í áströlsku eyði­mörk­inni í hörmu­legri fram­tíð þar sem fólk lifir við ánauð og skort og vatn er verð­mætasta auð­lindin sem til er. Sögu­þráður mynd­ar­innar er ekki flók­inn, hún fjallar um her­for­ingj­ann Furiosu, sem leikin er af Charlize Theron, sem stelur eig­in­konum stríðs­herr­ans Eilífa Joe til þess að frelsa þær. Furiosa flýr með þær á bryn­vörðum vöru­bíl en Joe og banda­menn hans elta. Hinn brjál­aði Max, nú leik­inn af Tom Hardy, flæk­ist svo inn í elt­inga­leik­inn. Myndin er hörku­spenn­andi frá fyrstu mín­útu og áhorf­endur hafa fá augna­blik til að ná and­anum. En helsti styrkur mynd­ar­innar er hversu glæsi­leg hún er. Leik­myndin, bún­ing­arnir, förð­unin, kvik­mynda­takan og fleiri þættir eru óað­finn­an­legir og ákaf­lega frum­legir. Myndin tekur það útlit sem var skapað í annarri og þriðju mynd­inni og færir það upp á annað plan. Jafnvel hræði­legur ljót­leiki verður augna­konfekt í Fury Road.

1. The Revenant

Mexíkóski leik­stjór­inn Alej­andro González Inárritu var sig­ur­veg­ari sein­ustu ósk­arsverð­launa þegar mynd hans Birdman var valin besta myndin og hann besti leik­stjór­inn. Inárritu er nú aftur lík­leg­astur til að vinna tvenn­una fyrir The Revenant sem er mun betri kvik­mynd. Einnig þykir stór­leik­ar­inn Leonardo DiCaprio lík­leg­astur til að verða val­inn besti leik­ar­inn en hann hefur 5 sinnum áður verið til­nefndur sem leik­ari en aldrei unnið. The Revenant er byggð á óförum feld­dýra­veiði­manns­ins Hugh Glass snemma á 19. öld sem var skil­inn eftir af félögum sínum í óbyggðum Montana eftir bjarn­ar­árás. Myndin er dimm og harð­neskju­leg og líkt og í Birdman ein­kenn­ist hún af löngum sam­felldum tökum. Kvik­mynda­takan sem hinn marg­verð­laun­aði Emmanuel Lubezki stýrði er einmitt einn helsti styrkur mynd­ar­innar. Myndin hefur tvö megin þemu. Annars vegar er það vilj­inn til þess að lifa af og þar koma hæfi­leikar DiCaprio best í ljós þar sem hann túlkar raunir Glass af stakri snilld, mest­megnis án þess að segja stakt orð. Hins vegar er það hefndin eins og tit­ill mynd­ar­innar gefur til kynna. Þar koma hæfi­leikar leik­ar­ans Tom Hardy, sem fer með hlut­verk ill­menn­is­ins, ber­sýni­lega í ljós. Hardy fékk einnig til­nefn­ingu til ósk­arsverð­launa sem kom mörgum á óvart en er engu að síður verð­skuldað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár