Karolina fund: Setja á stofn fæðingastofu

Björkin er fyr­ir­tæki sem var stofnað árið 2009 og er rekið af tveimur ljós­mæðrum, þeim Arney Þór­ar­ins­dóttur og Hrafn­hildi Hall­dórs­dóttur. Þær hafa síð­ustu fimm árin sinnt yfir 200 fjöl­skyldum í heima­fæð­ingu. Björkin býður einnig uppá nám­skeið, ráð­gjöf, nála­stungur o. fl. fyrir verð­andi og nýja for­eldra í Lygnu fjöl­skyldu­mið­stöð, þar sem Björkin hefur aðstetur.

Starf­semi Bjark­ar­innar er í stöðugri þróun og nú eru fjórar ljós­mæður að bæt­ast í hóp­inn, þær Harpa Ósk Val­geirs­dóttir, Emma Swift, Gréta Matth­í­as­dóttir og Jenný Árna­dóttir. Björkin und­ir­býr nú opnun fæð­inga­stofu fyrir hraustar konur í eðli­legri með­göngu. Fyrst og fremst er fæð­inga­stofan hugsuð fyrir konur sem koma utan af landi til að fæða börnin sín þar sem ekki er fæð­inga­þjón­usta þar sem þær búa. Konur sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og kjósa að fæða í heim­il­is­legu umhverfi með ljós­móður sem þær þekkja, verða að sjálf­sögðu líka vel­komnar. Kjarninn hitti þær Arneyju og Hrafn­hildi og tók þær tali.

Hver er hugmyndin og sagan á bak við fæðingarstofuna Björkina?

Víða á nágranna­löndum okkar eru starf­andi ljós­móð­ur­rekin fæð­inga­heim­ili. Konur geta þar valið milli þess að fæða á sjúkra­húsi, heima hjá sér eða á fæð­inga­heim­ili í umsjá ljós­móður. Hér á landi hefur ekki verið starf­andi fæð­inga­heim­ili síðan 1996 þegar fæð­inga­heim­ilið við Eiríks­götu var lagt niður. Okkur hefur lengi þótt vanta þennan val­kost fyrir barns­haf­andi konur á íslandi. Það sem varð til þess að við ákváðum nú að fara af stað og opna fæð­inga­stofu var að á und­an­för­unum árum hefur fæð­inga­stöðum á lands­byggð­inni verið að fækka. Barns­haf­andi konur búsettar út á landi hafa í auknum mæli þurft að koma til Reykja­víkur til að fæða börnin sín. Konur sem eru í þessum sporum hafa verið að óska eftir þjón­ustu frá okkur þegar þær koma til Reykja­víkur. Sumar hafa leigt íbúð sem þær fæddu í, ein­hverjar hafa fætt heima hjá ætt­ingjum en svo hafa aðrar ekki haft aðstöðu þar sem þær gátu hugsað sér að fæða og gátu því ekki valið heima­fæð­ingu.

Okkur finnst því mik­il­vægt að opna fæð­inga­stofu til að mæta þess­ari þörf. Með opnun fæð­inga­stof­unnar getum boðið stærri hóp kvenna uppá sam­fellda þjón­ustu á með­göngu, í fæð­ingu og sæng­ur­legu. Samfelld þjón­usta er þannig að sama ljós­móð­irin fylgir kon­un­inni í gegnum lok með­göngu, fæð­ing­una og svo þegar barnið er fætt. Fæð­inga­stöðum á lands­byggð­inni hefur ekki bara fækkað, því fæð­inga­stöðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur líka fækkað. Fyrir tveimur árum voru Hreiðrið og fæð­inga­deildin á Land­spít­al­anum sam­einuð. Hreiðrið var ljós­móð­ur­rekin fæð­inga­deild innan Land­spít­al­ans þar sem hraustar konur í eðli­legri með­göngu gátu valið að fæða börn sín. Með lokun Hreið­urs­ins var því val­kostum fæð­andi kvenna enn fækkað. 

Fjöl­margar rann­sóknir benda til þess að örugg­ara sé fyrir hraustar konur í eðli­legri með­göngu að fæða utan hátækni­sjúkra­húss, annað hvort á heim­ilum sínum eða á fæð­ing­ar­heim­ilum með aðstoð ljós­móður. Haustið 2014 voru gefnar út nýjar NICE leið­bein­ing­arnar um með­göngu og fæð­ing­ar­hjálp í Bret­landi. Þar er mælt með því að hraustar konur í eðli­legri með­göngu, sér­stak­lega þær konur sem áður hafa fætt, fæði heima hjá sér eða á fæð­inga­heim­ilum í umsjá ljós­móð­uri því útkoma þeirra sé betri þar en á hátækni­sjúkra­húsum. Íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa löngum stuðst við þessar leið­bein­ingar og því er nú tíma­bært að fæð­inga­heim­ili á íslandi verði að veru­leika.

Hvað þurfið þið að gera til að koma fæðingarstofunni Björkinni á laggirnar?

Við erum að gera breyt­ingar á hús­næð­inu þar sem fæð­inga­stofan verður. Þegar fram­kvæmdum er lokið tekur við að inn­rétta fæð­inga­stof­una sem mun verða mjög heim­il­is­leg og þægi­leg. Þar verður allt til staðar fyrir eðli­legar fæð­ingar. Við höfum þegar fjár­magnað breyt­ing­arnar á hús­næð­inu, en ákváðum að nýta hóp­fjár­mögnun til þess að geta inn­réttað stof­una þannig að hún mæti sem allra best þörfum kvenna um þæg­indi og nota­leg­heit. Hóp­fjár­mögn­un­ina notum við líka til að kaupa nauð­syn­legan útbúnað sem þarf við eðli­legar fæð­ingar.

Söfnunin er í gangi á Karolina Fund en henni lýkur nú í dag, sunnu­dag. Hún hefur gengið mjög vel og við­brögðin við fæð­inga­stof­unni hafa verið mjög jákvæð. Við munum nota það sem safn­ast umfram tak­markið til þess að útbúa þægi­lega setu­stofu fyrir fjöl­skyld­urnar og aðstand­endur þeirra. Við áætlum að stofan verði til­búin til notk­unar í júní á þessu ári og hlökkum mikið til að taka á móti fyrstu fjöl­skyld­unni í nýju fæð­ing­ar­stof­unni. Það verður stór stund þegar fyrsta barnið fæð­ist. Það segir sig sjálft að svona starf­semi þarfn­ast þess að við fylgjum ýmsum reglu­gerðum og hún þarf m.a. starfs­leyfi heil­brigð­is­eft­ir­lits og land­lækn­is­emb­ætt­is­ins. Þessu fylgir mikil papp­írs­vinna, en allt gengur þetta vel og við mætum hvar­vetna miklum vel­vilja. Allt verður þetta þess virði að lokum, og gaman að vinna að því að láta drauma kvenna og okkar um fæð­ing­ar­stofu verða að veru­leika.

Hvernig þjónustu komið þið til með að veita konum og aðstandendum þeirra?

Konur sem koma til með að velja að fæða í fæð­inga­stofu Bjark­ar­innar fá sam­fellda þjón­usta ljós­móður á með­göngu, í fæð­ingu og sæng­ur­legu. Konurnar verða í mæðra­vernd á sinni heilsu­gæslu­stöð í byrjun með­göngu en sækja þjón­ustu frá ljós­mæðrum Bjark­ar­innar frá 32. viku með­göngu. Konan og fjöl­skyldan ef vill koma í 3-5 í mæðra­skoð­anir til okkar fram að fæð­ingu. Þegar fæð­ingin fer að stað eru kon­urnar í sam­bandi við ljós­móð­ur­ina sína sem tekur á móti henni á fæð­ing­ar­stof­unni þar sem barnið svo fæð­ist. Eftir fæð­ing­una dvelur fjöl­skyldan fyrstu tím­ana eftir fæð­ing­una á fæð­ing­ar­stof­unni en fer svo heim, og fær svo heima­þjón­ustu frá ljós­móð­ur­inni sinni fystu dag­ana eftir fæð­ing­una.

Ef konan er utan af landi fær hún heima­þjón­ustu þar sem hún hefur aðsetur á meðan hún dvelur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ljós­mæður munu vinna í pörum eða þrjár saman og sinna ákveðnum fjölda kvenna. Þannig tryggjum við að það að verði alltaf ljós­móðir sem konan þekkir með henni í fæð­ingu. Við leggjum áherslu á að allar ljós­mæð­urnar sem vinn hjá Björk­inni vinni eins og munum vinna eftir bestu bestu þekk­ingu hverju sinni. Rann­sóknir benda til að ef konur fá þjón­ustu sömu ljós­móður í gegnum með­göngu fæð­ingu og sæng­ur­legu, styttir það legu­tíma á spít­ala, fækki inn­gripum og bæti útkomu fæð­inga auk þess sem konur eru ánægð­ari með fæð­ing­una sína. Við vonum að með því að opna fæð­ing­ar­stof­una munum við bæta þjón­ustu við barns­haf­andi konur og fjöl­skyldur þeirra með þarfir þeirra að leið­ar­ljósi. Við erum sann­færðar um mik­il­vægi þess að konur hafi val og geti valið þann fæð­ing­ar­stað sem best hentar þörfum þeirra og fjöl­skylda þeirra. Best af öllu væri að konur gætu út um allt land fætt börnin sín sem næst heim­ilum sínum.

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár