22 milljónir án vinnu í ESB-ríkjunum

Atvinnu­leysi fer almennt minnk­andi í Evr­ópu­sam­bands­ríkj­unum. Vandi ungs fólks er ennþá gríð­ar­legur í sumum ríkjum, til að mynda í Grikk­landi þar sem helm­ingur fólks undir 25 ára er án vinnu.

Ungt fólk í Evrópu hefur orðið verst úti vegna atvinnuleysis.
Ungt fólk í Evrópu hefur orðið verst úti vegna atvinnu­leysis. Mynd: EPA

Atvinnu­leysi í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins mæld­ist 8,9 pró­sent í jan­úar síð­ast­liðnum, en það hefur ekki mælst lægra frá því í maí árið 2009. Meðal evru­ríkj­anna nítján var atvinnu­leysið 10,3 pró­sent í jan­úar, en það er lægra en mælst hefur síðan í ágúst 2011. Þetta kemur fram í tölum Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Tæplega 22 millj­ónir manna eru án vinnu í 28 ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins, sam­kvæmt mati Eurostat. Þar af eru 16,6 millj­ónir atvinnu­lausra innan evru­ríkj­anna. Minnst mælist atvinnu­leysið í Þýska­landi, 4,3%, Tékk­landi, 4,5%, Möltu og Bret­landi, þar sem það mælist 5,1%. Mest er atvinnu­leysið í Grikk­landi og á Spáni, 24,6% og 20,5%.

Hér að neðan má sjá atvinnu­leys­is­þró­un­ina í Evr­ópu­sam­band­inu, innan evru­svæð­is­ins og á Íslandi und­an­farin ár.

[adspot]

Atvinnu­leysi í ESB ríkj­unum var að með­al­tali 9,8% í jan­úar fyrir ári síðan, en mælist nú 8,9 pró­sent eins og áður kom fram. Í 24 af 28 ríkjum minnk­aði atvinnu­leysið milli ára, en það stóð í stað í Eist­landi og jókst í Lett­landi, Aust­ur­ríki og Finn­landi. Mest minnk­aði atvinnu­leysið á Spáni, í Slóvakíu, Írlandi og Portúgal.

Ungt fólk áfram í mestum vanda

Atvinnu­leysi ungs fólks hefur lengi verið mikið í Evrópu. Samkvæmt nýj­ustu tölum frá Eurostat eru 4,4 millj­ónir ungs fólks án vinnu í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins, þar af eru rúm­lega þrjár millj­ónir innan ríkja evru­svæð­is­ins. Hlutfall ungs fólks undir 25 ára án vinnu er 19,7 pró­sent innan ESB og 22 pró­sent innan evru­svæð­is­ins, sem er þó minna en á sama tíma í fyrra, þegar hlut­fallið var 21 pró­sent innan ESB ríkja og 22,8 pró­sent á evru­svæð­inu.

Þrátt fyrir að almennt dragi úr atvinnu­leysi er hlut­fall ungs fólks án vinnu ennþá gríð­ar­lega hátt í sumum ríkjum. Þannig er tæpur helm­ingur ungs fólks í Grikk­landi án vinnu, eða 48 pró­sent. Á Spáni er þetta hlut­fall 45 pró­sent, það er 44,1 pró­sent í Króatíu og 39,3 pró­sent á Ítalíu.

Hér að neðan má sjá sam­an­burð á atvinnu­leysi fólks undir 25 ára í Evr­ópu­sam­bands­ríkj­unum og á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár