Karolina Fund: Hefur verið líkt við James Blake og Bon Iver

Tón­list­ar­mað­ur­inn ein­ar­Indra stefnir á útgáfu í næsta mán­uði og er þessa dag­ana að hóp­fjár­magna hana inná Karolina Fund. Í gær var nýtt lag frum­flutt á tón­list­ar­síð­unni Vulture Magazine og kemur platan út staf­rænt 10. mars á íslensku plötu­út­gáf­unni Möller Records og svo í fram­hald­inu kemur geisla­diskur og vinyl-plata.

Ein­ar­indra er solo verk­efni tón­list­ar­manns­ins þar sem hann fléttar saman raf­tón­list og söng í dáleið­andi hljóð­heim sem gagn­rýnendur hafa líkt við tón­list á borð við James Blake og Bon Iver.

Hann hóf ungur að braska í tón­list­inni og var þá til­rauna­kennd raf­tón­list mest áber­andi en seinna meir, þá fór hann að feta sig inn á önnur svið án þess þó að stíga mikið fram á sjón­ar­sviðið. Það tók all­nokkur ár fyrir hann að full­móta þann hljóð­heim sem nú er kom­inn, en það var fyrir þremur árum sem fyrsta lagið birt­ist með honum á safn­skíf­unni „Helga“ hjá hinni íslensku raf­tón­list­ar­út­gáfu Möller Records. Ári seinna eða árið 2004 gaf ein­ar­Indra svo út fjög­urra laga plötu hjá sömu útgáfu sem fékk góða dóma hér­lendis og erlendis.

Nú er hann kom­inn með efni í nýja plötu og verður hún tví­skipt þar sem hún inni­heldur ann­ars­vegar lögin hans en einnig munu fjórir íslenskir raf­tón­list­ar­menn, þeir Futuregrap­her, Bistro Boy, Gunnar Jónsson Collider og Brilli­ant­inus, end­ur­hljóð­blanda eitt lag hver.

Þá mun umslag plöt­unnar prýða mál­verk eftir breska list­mál­ar­ann Nikhil Kirsh sem mun eflaust njóta sín vel á stórri vinyl-plötu.

Eins og gengur og ger­ist með slíkar hóp­fjar­magn­anir þá hljóta stuðn­ings­menn gjafir og má þar nefna staf­rænt ein­tak af plöt­unni, geisla­diskinn, árit­aða vinyl­plötu eða jafn­vel tón­leika heima í stofu hjá sér. Einnig munu allir sem styðja við gerð plöt­unnar fá aðra plötu í fullri lengd sem er óút­gefin og inni­heldur sveimtón­list sem Einar hefur verið að vinna að und­an­farin ár og prófað sig áfram með í yoga.

Söfnunin er á Karolina Fund þessa dag­anna og hægt er að styrkja verk­efnið með því að fara inná www.karolinafund.com.

Kjarninn hitti ein­ar­Indra og tók hann tali.

Hver er bak­grunnur þinn í list­inni og hvaðan kemur áhug­inn?

„Ég ólst upp á Húsavík og var meira að spá í að verða bóndi, dýra­læknir eða ofur­hetja heldur en að gera eitt­hvað í tón­list. Var þó í tón­list­ar­skól­anum sem var góður grunnur og ynd­is­legt að hafa haft kost á því en það var ekki fyrr en á mennta­skóla­ár­unum sem áhug­inn á að semja tón­list fór að kvikna og var ég þá far­inn að grúska í raf­tón­list­inni tals­vert. Það hefur tekið nokkur ár að slípa þetta til sem ég er að gera þessa dag­ana og er ég stöðugt að læra nýja hluti. Það er líka mikið af flottri tón­list í gangi í heim­inum, sem hefur stöðug áhrif á mann, þú getur nán­ast fundið 20 nýjar flottar tón­list­ar­mann­eskjur/bönd á hverjum degi ef þú leggur þig smá fram við það.“

Hvers konar tón­list ertu að vinna að?

„Það er mjög mis­jafnt hvað ég er að gera dags­dag­lega. Það getur verið eitt­hvað klúbba hús tón­list, d&b, sveim, hip hop eða hvað sem er. En lögin sem ég klára og gef frá mér eru aðal­lega tvenns­konar þessa dag­anna. Það sem er á þessarri plötu mætti flokka sem ein­hvern sam­bræð­ing á raf­tón­list og indie, indietronica eða sálar raf­tón­list. Laglínur eru yfir­leitt unnar á píanó eða í gegnum söng sem er síðan unnið lengra með synt­hum og trommu­heilum. Það er ákveð­inn ein­fald­leiki í þeim til að byrja með sem síðan fær á sig nokkur lög af raf­hjúpum.

Tón­listin er dálítið eins og kaffi­boð sem ég býð vinum í, oft koma kunn­ingjar sem ég kann­ast við í heim­sókn sem eru eins og lag­línur sem poppa upp, ég vil ekk­ert endi­lega fá þá og losna ekki auð­veld­lega við þá heldur en stundum stundum reyn­ast þeir ansi góðir. Góðu vin­irnir eru hlut­arnir í lög­unum sem eru ávallt í ein­hverju formi, bara mis­mun­andi bún­ingum og takt­arnir eru kaffið, alger­lega nauð­syn­legir til þess að halda partý­inu gang­andi, og ég er mis­háður þeim eftir dögum.“

Er ein­hver rauður þráður í tón­list­inni á plöt­unni eða ein­hver boð­skapur sem þig lang­aði að koma út í kosmósið?

„Til þess að ég sé sáttur við tón­list­ina þá þarf að vera ákveðið hjarta í henni, ákveðin til­finn­ing, að þetta er teng­ing við eitt­hvað meira en hvers­dags­leik­ann. Það er mun meiri texti í lög­unum á þessarri plötu, þetta eru allt ein­hvers­konar sögur sem má túlka á ýmsa vegu. Ég tengi einnig mikið við hljóð­heima og flott hljóð þannig að ég nota mikið til hljóð sem ég bý til í tölv­unni eða koma úr synt­hum sem mér þykir vænt um. Held að það komi einnig ákveð­inn kraftur úr hlið­rænum synt­hum, það er ein­hvers­konar æðri kraftur sem flæðir um í raf­rás­unum eins og Bob Moog heit­inn vildi meina. En rauði þráð­ur­inn á plöt­unni er svo sem ekk­ert bylt­ing­ar­kenndur eða friður á jörð dæmi, meira bara að langa að gera töff tón­list sem er þó ekki til­gerð­ar­leg og kemur frá hjart­anu.“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár