Karolina Fund: Ætla að gera bestu þungarokksplötu Íslands

Platan Blóð­bragð með þung­arokks hljóm­sveit­inni Skurk er áhuga­vert verk­efni sem birt­ist á Karolina Fund um síð­ustu helgi. Hljóm­sveitin er að vinna að verk­efn­inu með Tón­list­ar­skóla Akur­eyrar og kenn­ara skól­ans, Daníel Þor­steins­syni.

Skurk gaf út geisla­diskinn Final Gift í júní 2014 og var sá diskur eins konar upp­gjör þeirra við for­tíð­ina. „Þegar við byrj­uðum aftur völdum því nokkur gömul lög frá tíma­bil­inu 1987-1993 og upp­færðum þau örlítið, en héldum dauða­haldi í and­ann sem ein­kenndi þetta frá­bæra tíma­bil í lífi okkar,” segir Hörður Hall­dórs­son, gít­ar­leik­ari hljóm­sveit­ar­innar. Bandið er skipað Guðna Kon­ráðs­syni sem syngur og spilar á gítar, Jóni Heiðari Rún­ars­syni á bassa, og svo Krist­jáni B. Heið­ars­syni trommu­leik­ara, auk Harðar. Fljót­lega eftir útgáfu Final Gift voru með­limir Skurk komnir aftur í stúdíó, nú til að taka upp nýtt efni. Fljót­lega varð ljóst að verk­efnið yrði tölu­vert stærra en upp­haf­lega var gert ráð fyrir. „Það sem átti að vera venju­legur tíu laga diskur með hefð­bund­inni þung­arokk­sveit er nú orðið stórt verk­efni sem hátt í þrjá­tíu tón­list­ar­menn og konur taka þátt í.“

Hvaðan kemur Skurk?

„Við erum frá Akureyri. Bandið var stofnað á síð­ustu öld, og hefur verið starf­andi síðan, reyndar með rúm­lega tutt­ugu ára pásu. Mark­miðið var frá upp­hafi að spila þungt rokk, og spila hátt. Á fyrstu árunum sem við vorum starf­andi var meira en nóg um að vera í tón­list­ar­líf­inu fyrir norðan, og fjöl­margar hljóm­sveitir og tón­list­ar­menn voru að stíga sín fyrstu skref og læra hver af öðrum. Það má nefna Helga og hljóð­færa­leik­ar­ana, Baphomet - sem náðu góðum árangri á Mús­íktil­raunum ‘92, og hljóm­sveitir á borð við Tomb­stone, Hún andar, Exit, Svörtu kagg­ana, Skrokka­bandið, Uxorius frá Dalvík og Pain frá Húsavík.

Þarna voru ótal margir ung­lingar á tón­leikum og í hinum og þessum æfinga­plássum, og margir þar á meðal sem síðan hafa gert mikið fyrir íslenska tón­list og sumir t.d. komið fram fyrir Íslands hönd í Eurovision. Það má því segja að Skurk hafi sprottið úr afar frjóum jarð­vegi tón­list­ar­menn­ingar sem var svo opin að allt var í raun leyfi­legt. Tón­leika­lífið var í miklum blóma á norð­ur­hjar­anum á þessum tíma, og lang­flestir tón­leikar vel sóttir og mikil stemn­ing sem skap­að­ist. Hljóm­sveitir tóku sig saman og leigðu litlar rútur og keyrðu út um allt norð­ur­land til að spila fyrir nýja áhorf­endur. Enginn var að selja neitt, heldur sner­ist þetta ein­göngu um að spila pönk, rokk, þung­arokk, thrash metal og dauðarokk, og það eina sem leiddi böndin áfram var gleðin yfir að deila tón­list­inni.“

Hvar vinnið þið tón­list­ina?

„Þar sem Kristján býr í Mos­fellsbæ og við hinir skur­karar á Akureyri þá eru æfing­arnar svo sem ekki margar. Höddi sett­ist niður og fór að safna saman köflum og línum sem allir deildu á sam­eig­in­legum stað á net­inu í tvo til þrjá mán­uði, og smátt og smátt fóru lögin að taka á sig mynd. Þá tók Höddi upp gít­ar­inn og límdi þetta allt saman. Það var í raun furðu fljótt sem það urðu til nokkur lög. Svo haustið 2014 hitt­umst við í aðstöðu þyrlu­skíða­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Heliski­ing í Skíðadal, þar sem við stilltum upp hljóð­fær­unum og byrj­uðum að semja lögin saman út frá þessum beina­grindum sem komnar voru. Það var fárán­lega gaman að vera í þess­ari trufl­uðu nátt­úruperlu sem Skíða­dalur er, og í þess­ari frá­bæru aðstöðu Arctic Heliski­ing, og þurfa bara að hafa áhyggjur af því að spila þung­arokk.

Þarna kláruðum við um helm­ing lag­anna og svo nokkrum vikum seinna fórum við norð­an­menn suður í Kópavog til hans Jakobs í stúdíó GFG og sömdum og æfðum seinni hlut­ann. Við byrj­uðum svo strax eftir helg­ina að taka upp. Strax þá varð ljóst að við vildum hafa strengja­sveit með í nokkrum lögum. Okkur þótti strax skemmti­leg hug­mynd að fá Tón­list­ar­skól­ann á Akureyri inn í verk­efnið. Við vildum að disk­ur­inn hefði eitt­hvað meira gildi en ein­göngu þung­arokk, og vildum deila þess­ari frá­bæru gleði sem það er að vera í stúd­íói og að taka upp tón­list. Það er fátt skemmti­legra og meira hvetj­andi en að spila og taka upp skemmti­lega tón­list í stúd­íói, og við vildum kynna þetta fyrir nem­endum Tón­list­ar­skól­ans. Það var virki­lega gaman hvað for­svars­menn skól­ans og kenn­arar tóku vel í þetta strax frá upp­hafi.

Við höfum fengið ótrú­legan stuðn­ing frá skól­anum öllum og þeim nem­endum sem hafa tekið þátt. Það er í raun með ótrú­legri fram­taks­semi og opnum huga gagn­vart verk­efn­inu sem það hefur tek­ist að bræða saman þessa frá­bæru blöndu þung­arokks og klassíkrar tón­listar. Þarna má helst nefna Hauk Pálmason aðstoð­ar­skóla­stjóra. Daníel Þor­steins­son píanisti og hljóm­sveit­ar­stjóri skóla­hljóm­sveit­ar­innar hefur einnig reynst okkur stoð og stytta. Hann hefur í raun unnið tón­list­ina með okkur í frá upp­hafi og hefur komið með ótrú­lega mikið inn í bandið. Upp­tök­urnar fara að mestu fram í Kópavogi í Stúdíó GFG en strengir og kórar eru svo teknir upp á Akureyri af Hauki.“

Hvað er það við þung­arokk sem kallar svona á ykkur?

„Það er erfitt að útskýra það í fáum orðum. Við heill­uð­umst allir snemma af kraft­inum og orkunni sem fylgir þess­ari tón­list­ar­stefnu, og fundum þar eitt­hvað sem smell pass­aði við ung­lings­hug­ann sem var í mótun. Hljóm­sveitir á borð við Metallica, Anthrax, Iron Maiden, Sepultura og Overkill áttu stóran þátt í að vinna okkur á sitt band. Fyrir marga er þung­arokk frekar óað­gengi­legt, þó almenn­ings­á­litið hafi reyndar breyst mikið hér á landi á síð­ustu árum, en fyrir okkur sem lifum og hrærumst í þessu er það bæði aggresjónin og meló­díurnar sem snerta ein­hverja strengi. Þung­arokk hefur löngum ein­kennst af miklum and­stæðum, þar sem hljóm­sveitir nýta sér bæði ang­ur­værar lag­línur og svo þennan gíf­ur­lega kraft sem skap­ast þegar það koma saman raf­magns­gít­arar og háværar trommur. Svo er það vin­áttan, hjálp­semin og bræðra­lagið sem hefur ein­kennst þung­arokkið, enda er þetta fyrir marga lífstill meira en bara áhuga­mál. Andinn í þung­arokk­inu hefur alltaf verið afar vin­sam­legur, öfugt við það sem oft er haldið. Það eru meira að segja til nýlegar rann­sóknir sem hreint út sanna að fólk sem hlustar á þung­arokk sé lík­legra til að vera rólyndis mann­eskjur. Ekki má heldur gleyma slag­orði Eistna­flugs, sem segir ein­fald­lega: „Það er bannað að vera fáviti!”. Það má því kannski bara segja að þung­arokk geri okkur að betri mönnum.“

Hvert stefnið þið?

„Við ætlum að gefa út þessa plötu okkar, Blóð­bragð, og gera hana eins vel út garði og mögu­legt er. Við setjum í raun stefn­una á að gera bestu þung­arokks­plötu sem komið hefur út á Íslandi. Við setjum markið afar hátt, og vitum að það eru ófáar útgáfur sem við erum að miða okkur við. Hvort okkur tekst ætl­un­ar­verkið geta aðrir bara dæmt um, en kannski er það ekki aðal­málið þegar allt kemur til alls, enda er smekkur fólks svo mis­mun­andi, við förum úr hljóð­ver­inu vit­andi það að við lögðum allt í þetta verk­efni. Við vonum að fólk styðji verk­efnið og heiti á okkur á Karolina Fund, svo við eigum auð­veld­ara með að klára ferlið. Við vonum svo auð­vitað að þegar platan kemur út muni hún hafa sömu áhrif á ein­hverja og við upp­lifðum í byrjun, og kynni því fólk fyrir þess­ari tón­list­ar­stefnu og öllu því jákvæða sem henni fylgir. Við ætlum svo að halda ótrauðir áfram og spila á tón­leikum og halda áfram að semja skemmti­lega tón­list. Já, og svo er alltaf mark­miðið að verða heims­frægir, er það ekki?“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár