Karolina Fund: Íslensku jólasveinarnir túlkaðir upp á nýtt

Ný bók um íslensku jóla­svein­ana, skrifuð að Íslend­ingi og teiknuð af Búlgara, er vænt­an­leg árið 2016. Baldur heitir ný og lítil barna­bóka­út­gáfa sem starfar frá Prag í Tékk­landi og þeirra mark­mið er að blanda saman ólíkum menn­ingum, með því að virkja unga rit­höf­unda og lista­menn all­staðar að úr heim­inum til þess að vinna saman að gerð barna­bóka. Sagan af íslensku jóla­svein­unum er því búl­görsk túlkun á bræðr­unum þrettán.

Kjarninn ræddi við aðstand­endur verk­efn­is­ins, sem safna nú fyrir því á Karolina Fund.

Hvaða fólk stendur á bak­við Baldur og jóla­sveina­bók­ina?

„Við erum María Elín­ar­dóttir frá Íslandi og Martin Atanasov frá Búlgaríu. Við kynnt­umst fyrir fimm árum í námi í Prag og höfum unnið saman að mörgum mis­mun­andi verk­efnum tengd bókum og sýn­ingum en okkur hefur lengi langað til að búa til almenni­legar barna­bækur. Fyrir tveim árum fórum við að leita að sögum og lista­mönnum. Okkur bár­ust margar sögur héðan og þaðan en ákváðum að ein­beita okkur að alþjóð­legum þjóð­sögum, goð­sögum og ævin­týrum. Íslensku jóla­svein­arnir voru hátt á list­anum hjá okkur og áður en við vissum af þá var lista­maður frá Búlgaríu búinn að senda okkur nokkrar teikn­ingar í bók­ina. Fyrir utan hvað lista­mað­ur­inn okkar Hristo Neykov var áhuga­samur um sög­una, þá var hann einnig ótrú­lega góður í að túlka útlit bræðr­anna og anda jóla­svein­anna."

Hvaðan kom sagan í bók­inni?

„Sagan hefur auð­vitað verið til heil­lengi og María hefur hlustað á hana frá því hún var lítil. En í hvert skiptið sem hún sagði útlend­ingum frá þess­ari skrýtnu jóla­sveina hefð, þá kom í ljós að nán­ast eng­inn vissi af henni. Síðan reynd­ist erfitt að finna almenni­legar myndir af þeim og okkur datt í hug að búa bara til bók og túlka þá sjálf."

Hvaða mark­hóp eru þið að miða bók­ina að?

„Við erum barna­bóka­út­gáfa sem í raun reynir að höfða til allra. Sögurnar okkar eru fyrir alla ald­urs­hópa. Sögurnar sem við segjum tengj­ast alltaf ein­hverjum stað, landi eða borgum. Þótt bæk­urnar séu barna­bækur, þá eru allar sög­urnar þjóð­sögur sem hafa borist manna á milli í hund­ruði ára. Næsta bókin okkar á eftir jóla­svein­unum kemur frá Gdansk í Póllandi og fjallar um hvernig borgin breytt­ist eftir heim­sókn frá trölli. Fyrir okkur er mik­il­vægt að börn lesi um heim­inn og kynn­ist ólíkum menn­ingum. Við erum rétt að byrja og ákváðum því að nýta okkur Karolina Fund, sem er íslensk hóp­fjár­mögn­un­ar­síða og vonum að Íslend­ingar kaupi bók­ina eða styrki verk­efnið. Auðvitað vonum við nú líka að nýja túlkun okkar á jóla­svein­unum slá í gegn."

Hér er hægt að styrkja verk­efnið og kaupa bók­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár