Karolina Fund: Hópfjármagna frumkvöðlavettvang fyrir fatlaða

Hópur, sem sam­anstendur af fötl­uðu hags­muna­bar­áttu­fólki og öðrum áhuga­sömum ein­stak­lingum sem vilja efla frum­kvöðla­starf á Íslandi, stendur nú að hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund til þess að fjár­magna upp­bygg­ingu frum­kvöðla­vett­vangs innan Sjálfs­bjargar.

Það er vert að minn­ast á að hönn­un­ar­fyr­ir­tækið UENO hefur heitið því ad mæta hverju fram­lagi krónu fyrir krónu á meðan að á söfn­un­inni á Karolina Fund stendur. Söfn­un­inni lýkur 31. des­em­ber nk. Kjarninn ræddi við Brand Karlsson, sem stendur fyrir verk­efn­inu. Kjarninn hefur áður fjallað um Brand, en í sumar flaug hann í ein­stökum flug­stól á svif­væng þrátt fyrir að vera lamaður fyrir neðan háls.

Hvað felst í starfi Sjálfs­bjargar?

,,Sjálfs­björg lands­sam­band fatl­aðra, eru sam­tök hreyfi­haml­aðra á Íslandi. Í 3. grein laga sam­tak­anna segir að hlut­verk þeirra sé meðal ann­ars „að vinna að full­kominni þátt­töku og jafn­rétti hreyfi­haml­aðra og ann­arra fatl­aðra, á öllum sviðum þjóð­lífs­ins, með því að hafa áhrif á ríkis- og sveit­ar­stjórnir, hags­muna­sam­tök og ein­stak­linga og með því að vekja áhuga almenn­ings á mál­efnum þeirra með útgáfu og kynn­ing­ar­starf­semi“.

Hvað er Frum­björg?

,,Alltaf beita upp í vind­inn, eygja, klífa hæsta tind­inn,” eru ein­kunn­ar­orð Sjálfs­bjargar. Í þessum anda var Frum­björg, Frum­kvöðla­mið­stöð Sjálfs­bjargar, stofnuð fyrr á þessu ári. Frum­björgu er ætlað að takast á við mörg óleyst verk­efni er tengj­ast hags­munum fatl­aðra á sviði heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mála, einnig nýsköpun sem aukið getur atvinnu­mögu­leika fatl­aðra og eflt sam­skipa­mögu­leika þeirra innan þjóð­fé­lags­ins.

Óánægja fatl­aðra og aldr­aðra með hnign­andi stoðir heil­brigð­is­kerf­is­ins hefur vænt­an­lega ekki farið fram­hjá neinum og lítið hefur borið á áþreif­an­legum úrræðum til úrbóta í þessum málum.

Af nýlegum við­tölum við fjár­mála­ráð­herra og for­mann fjár­laga­nefndar er ljóst að þau eru með­vituð um þann fjöl­þætta vanda sem felst í tak­mörk­uðum atvinnu­tæki­færum fatl­aðra og öryrkja. Innan Frum­bjargar er ætl­unin að byggja upp jákvætt og hvetj­andi umhverfi þar sem fatl­aðir geta fengið stuðn­ing til að skapa sín eigin atvinnu­tæki­færi. Ætlunin er einnig að veita frum­kvöðlum sem vinna að verk­efnum sem lík­leg eru til að bæta heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mál fatl­aðra aðstöðu og aðgengi að vax­andi tengsla­neti sam­starfs­að­ila Frum­bjargar. Frum­björg er þegar í sam­starfi við Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands, Klak Innovit, Háskóla Reykja­víkur og Karolina Fund og unnið er að því að koma á tengslum við fleiri stofn­anir og fyr­ir­tæki með reynslu á sviðum nýsköp­unar innan atvinnu­lífsl­ins."

Hverju sjáið þið fyrir ykkur að Frum­björg eigi eftir að áorka?

,,Á vegum Frum­bjargar mun verða efnt til nýsköp­un­ar­keppna þar sem afmörkuð vanda­mál verða tekin fyrir og kallað eftir hug­myndum að lausn þeirra. Tillögur að lausnum við­kom­andi vanda­mála verða síðan próf­aðar innan Sjálfs­bjargar sem þannig verður þró­un­ar­vett­vangur fyrir inn­leið­ingu nýrra úrbóta til hags­bóta fyrir fatl­aða sem og sam­fé­lagið í heild. Á vegum Frum­bjargar mun verða efnt til nýsköp­un­ar­keppna þar sem afmörkuð vanda­mál verða tekin fyrir og kallað eftir hug­myndum að lausn þeirra. Tillögur að lausum við­kom­andi vanda­mála verða síðan próf­aðar innan Sjálfs­bjargar sem þannig verður þró­un­ar­vett­vangur fyrir inn­leið­ingu nýrra úrbóta til hags­bóta fyrir fatl­aða sem og sam­fé­lagið í heild.

Einnig eru í gangi við­ræður um upp­setn­ingu aðgengi­legrar Fablab aðstöðu þar sem frum­kvöðlar fá aðgengi að hátækni­fram­leiðslu­tækjum og öðrum nýj­ungum sem þeim gætu nýst til atvinnu­sköp­unar.

Við treystum á stuðn­ing fólks í gegnum hóp­fjár­mögnum á Karolina­fund. Með fjár­fram­lögun til Frum­bjargar stuðlum við að sam­fé­lags­úr­bótum í þágu fatl­aðra. Með bestu óskum um gleði­leg jól og far­sælt kom­andi ár."

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár