Lamaður fyrir neðan háls en flýgur um í flugstól á svifvæng - myndband

„Félagi minn, sem er lamaður fyrir neðan háls, bað mig fyrir um ári síðan að fljúga með hann. Ég sagði fyrst nei við hann, en hann tók það ekk­ert í mál. Á end­anum sam­þykkti ég því að gera þetta. Við settum í kjöl­farið af stað söfnun fyrir að búa til stól fyrir hann svo að hann gæti flogið.“ Þetta segir Gísli Steinar Jóhann­es­son hjá True Adventure, fyr­ir­tæki sem flýgur með far­þega á svif­vængjum (e. paragli­ding).

Gísli og félagar flugu með Brand Bjarna­son, sem er lamaður fyrir neðan háls, í nýjum flug­stól sem þeir hafa búið í lok síð­ustu viku.

Össur gaf vinnu, hönnun og hluta af efninu

Þótt Gísli hefði góða hug­mynd um hvernig hann vildi að útbún­að­ur­inn myndi líta út þá vildi hann fá fleiri að verk­inu. „Ég setti mig fyrst í sam­band við Össur en það gekk illa að fá svör. Ég var því búinn að tala við aðra um að koma að þessu. Skömmu síðar var ég úti á landi að gera mig til­bú­inn með að fljúga með far­þega þegar sím­inn hringdi. Þá var það maður frá Össuri, Magnús Jónsson, sem hafði séð umfjöllun um verk­efnið í sjón­varp­inu, en hafði aldrei fengið skila­boðin sem við höfðum sent fyr­ir­tæk­inu og vildi ræða við mig um aðkomu. Ég hafði ekki tíma til að tala við hann, skellti í raun nán­ast á hann, og bað mann­inn um að senda mér tölvu­póst. Í kjöl­farið hófust sam­skipti og við komumst í kynni við mann­inn hjá Össuri sem varð aðal­hönn­uð­ur­inn að stólnum, Haf­steinn Jónasson.“

Boltinn fór að rúlla hratt eftir þetta og Össur ákvað að gefa alla vinnu, hönnun og hluta af efn­inu sem fór í stól­inn. Hann var síðan klár í sept­em­ber í fyrra, en þá voru aðstæður til að fljúga á Íslandi ekki boð­legar. „Það var skíta­veður,“ segir Gísli. Því var ákveðið að bíða fram á þetta sumar til að fljúga með Brand, vin sinn.

„Við höfðum ákveðið að Haf­steinn, sem hann­aði stól­inn, myndi fljúga fyrstu ferð­ina í honum og fórum í þá ferð fyrir nokkrum vikum. Ég próf­aði síðan að fljúga einn með hann og það fór allt eftir plani. Þannig að síð­asta föstu­dag, fyrir viku síðan, flaug Brandur með mér.“

Arnar Helgi Lárusson, for­maður SEM sam­tak­anna og er lamaður fyrir neðan mitti, flaug einnig með öðrum flug­manni, Samúel Alex­and­ers­syni, á sama tíma.

Hóparnir frá True Adventure og Össuri sem stóðu að gerð stóls­ins fyrir fyrsta flugið.[/caption]

Vilja gefa tekningarnar, en geta það ekki

Til­gangur verk­efn­is­ins var ekki ein­ungis sá að fljúga með Brand. Gísli og félagar hans vildu líka gefa hönn­un­ina. Gera hana að aðgengi­lega hverjum sem er (e. open source). Það er hins vegar ekki jafn ein­falt mál að gefa hönnun sem á að hjálpa öðrum og það hljómar. „Haf­steinn hringdi í mig í síð­ustu viku, þegar við vorum að fara að fljúga, og sagði að Össur gæti ekki gefið teikn­ing­arnar. Hann var mjög leiður yfir því en ástæðan er sú að það myndi skapa áhættu á mál­sóknum í Banda­ríkj­unum. Það er of dýrt fyrir þá að tryggja sig gagn­vart þeim. Þeir eru ekki hræddir um að tapa mál­sóknum, heldur er svo dýrt að verja sig. Áhættu­þætt­irnir eru þeir að það er einka­leyfa­iðn­aður í Banda­ríkj­unum. Það eru fyr­ir­tæki sem gera bara út á að safna einka­leyfum og fara síðan í mál við fyr­ir­tæki sem finna upp það sem þau eiga einka­leyfi að. Síðan er það hitt að ef ein­hver hlýtur skaða af vegna hönn­unar sem verið er að nota þá er líka hætta á mál­sókn. Við skiljum þessa afstöðu Össurar auð­vitað mjög vel.“

Það er því verið að reyna að finna leiðir til að gefa hönn­un­ina og Gísli er bjart­sýnn á að það tak­ist.

Brandur Bjarna­son í fyrsta flug­inu sínu.

Einstakur stóll

Gísli segir að verk­efnið hafi undið mjög mikið upp á sig. „Upp­haf­lega ætl­uðum við bara að fljúga með Brand. Síðan sog­að­ist hæfi­leika­fólk að þessu, sér­stak­lega innan Össurar. Þetta var bæði tækni­lega spenn­andi og sam­fé­lags­lega gef­andi verk­efni. Við vildum því koma stólnum víðar og þess vegna var ákveðið að reyna að gefa teikn­ing­arnar. Það hafa verið búnir til stólar víða erlendis áður, en engin sem ég vildi nota. Þessi stóll er því ein­stakur."

Það er tölu­vert fyr­ir­tæki að fljúga með hreyfi­hamlað fólk og til að fyllsta öryggis sé gætt þá þurfa að vera nokkrir aðstoð­ar­menn. Gísli og félagar hans hjá True Adventures ætla sér að fljúga með nokkra sem óskað hafa þess til við­bótar og leita síðan leiða til að bjóða upp á leiðir fyrir fólk sem vill gera það, meðal ann­ars í sam­vinnu við Öryrkja­banda­lag Íslands. Hægt er að nálg­ast allar upp­lýs­ingar um flug­stól­inn á heima­síðu True Adventure.

Tengill á stutt­mynd um verk­efnið í keppni þar sem hægt er að kjósa hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár