Karolina Fund: Bökubíll landsliðsfyrirliðans og Valla flatböku

Á bak­við Böku­bíl­inn eru bræð­urnir Valgeir og Guð­mundur Gunn­laugs­synir ásamt Guðjóni Vali Sig­urðs­syni, lands­liðs­fyr­ir­liða í hand­bolta. Þeir reka einnig saman Íslensku Flat­bök­una í Bæj­ar­lind, Kópavogi. Valgeir, eða Valli Flatbaka eins og hann er gjarnan kall­aður, er hug­mynda­smið­ur­inn að Flat­bök­unni og Böku­bílnum.

Hann hætti í kvik­mynda­iðn­að­inum og elti lang­þráðan draum að opna pizzastað. Valli sann­færði bróðir sinn og Guðjón Val að taka þátt. Í dag er stað­ur­inn tæp­lega árs gam­all og gengur mjög vel. Kjarninn ræddi við Valla.

Hvaðan kom hug­myndin að böku­bílnum og hvernig teng­ist þið sem standið að verk­efn­inu?

„Hug­myndin að Böku­bílnum kvikn­aði fljót­lega eftir að stað­ur­inn opn­aði í febr­úar á þessu ári. Mikið af við­skipa­vinum okkar var að koma langar leiðir til þess að fá sér pizzu og það helsta sem var spurt um var: hvenær ætliði að opna nær mér? Í fyrstu var þetta skemmti­legt að heyra og það var ekki inn í plönum að opna annan stað. En þegar það leið á þá og þessi spurn­ing hélt áfram að koma þá fórum við að hugsa hvað við gætum gert. Svarið var aug­ljóst. Böku­bíll­inn!

Við ákváðum að fara þá leið að hóp­fjár­magna bíl­inn til þess að geta komið honum á göt­urnar sem fyrst. Við fórum af stað með söfnun á Karolina Fund í byrjun nóv­em­ber og mark­miðið er að safna 3,5 millj­ónum króna fyrir 4. des­em­ber. Ef söfn­unin gengur eftir mun Böku­bíll­inn vera kom­inn á göt­urnar í mars eða apríl.

Með Böku­bílnum náum við að þjón­usta við­skipta­vini okkar nær þeim. Mark­miðið er að þjón­usta úthverfin vel á kvöldin og um helgar. Í hádeg­inu liggur beint við að leggja nálægt vinnu­stöðum þar sem fáir veit­inga­staðir eru. Einnig verður hægt að bóka bíl­inn í hvaða til­efni sem er."

Hvað ætlið þið að bjóða uppá í böku­bílnum?

„Böku­bíll­inn verður eins og smækkuð útgáfa af Flat­bök­unni. Í bílnum verður alvöru eldofn og ekk­ert til sparað í að halda gæð­unum eins og þær eru á staðnum. Mat­seð­ill­inn verður svip­aður þótt að lík­lega verði aðeins vin­sæl­ustu pizzurnar í boði. En það verður einnig hægt að fá vin­sæla rétti eins og berna­ise brauð­stang­irnar og eftirréttapizzuna Sú Sanna. Á henni er Nutella súkkulaði, ban­anar, jarða­ber, kara­mella og flór­sykur. Við erum alltaf að finna upp á nýjum, skemmti­legum réttum og Böku­bíll­inn mun aðeins gefa okkur frek­ari tæki­færi til þess að vera frum­leg."

Við hvaða til­efni væri hent­ugt að panta böku­bíl­inn?

„Það er alltaf til­efni til þess að fá sér pizzur! En Böku­bíll­inn hentar ein­stak­lega vel fyrir fyr­ir­tæki sem eru að halda starfs­manna­dag eða vilja vera með öðru­vísi borð­hald á árs­há­tíð­unum. Fyrir ein­stak­lega þá passar Böku­bíll­inn full­kom­lega í stóraf­mæli eða jafn­vel í brúð­kaupið. Einnig fyrir íþrótta­fé­lög sem vilja gera vel við stuðn­ings­menn eða iðk­endur.

Þótt allt sé hand­gert í bílnum, þá er afkasta­getan mikil. Ofninn ræður við hátt í 100 pizzur á klukku­tíma, þannig það er hægt að dæla þeim út. Bíllinn hentar í hvaða til­efni sem er þar sem stór hópur ætlar að hitt­ast."

Hvað er hægt að fá í stað­inn fyrir að styrkja verk­efnið ykkar?

„Það er nóg í boði fyrir þá sem styrkja. Það eru 5 og 10 pizzu klippikort sem veita mjög mik­inn afslátt af pizzunum, sem hægt er að leysa út bæði í Böku­bílnum og á Flat­bök­unni. Ef það blundar í ein­hverjum pizzahönnuður, þá er hægt að fá að ger­ast slíkur: Hanna eina pizzu, gefa henni nafn og hún verður í boði á Böku­bílnum í einn mánuð, þar sem 10% af söl­unni á henni mun fara til góð­gerða­mál­efnis að eigin vali. Það er hægt að fá lands­lið­s­treyju árit­aða af íslenska lands­lið­inu í hand­bolta og Barcelona árit­aða af Guðjóni Vali sjálfum.

Þeir sem eru að plana atburð í byrjun næsta sum­ars geta bókað Böku­bíl­inn á ótrú­lega góðu verði, ann­ars vegar fyrir 50 manna veislu og hins vegar 100 manna veislu.

Topp­ur­inn er svo auð­vitað árs­birgðir af bökum! Ein pizza á dag í heilt hár. Það á tæp­lega 500 kr. pizzuna. Allir sem styrkja fara svo á hetju­list­ann sem verður hengdur upp í bílnum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár