Karolina Fund: Vísindaskáldsaga sem gerist í geimnum árið 2190

Pétur Haukur Jóhann­es­son stendur fyrir verk­efn­inu Nýlenda A0-4 sem hægt er að finna á Karolina Fund. Nýlenda A0-4 er vís­inda­skáld­saga sem ger­ist í geimnum árið 2190. Hún mun telja um 300 blað­síður út prentuð. Það má í raun segja að þetta sé blandað af vís­inda­skáld­skap og spennu­trylli því í bók­inni er að finna þó nokkun hasar sem ætti að halda les­and­anum vel við efnið. Búið er að teikna myndir af nokkrum per­sónum bók­ar­innar sem finna má á heima­síðu Nýlendu A0-4.

Höf­und­ur­inn Pétur er 29 ára gam­all. Hann hefur búið mesta alla tíð á Fáskrúðs­firði en síð­ast­liðin 8 ár hefur hann búið í Reykja­vík. Hann lauk BSc gráðu í tölv­un­ar­fræði árið 2013 og starfar sem hug­bún­að­ar­sér­fræð­ingur hjá Advania. Þar áður útskrif­að­ist hann úr Lög­reglu­skóla rík­is­ins og starf­aði sem lög­reglu­maður í um tvö ár þar á eftir, og á sumrin með tölv­un­ar­fræð­inni.

Pétur er trú­lof­aður Tinnu Hrönn Ósk­ars­dóttur og eru þau barn­laus, en eiga von á stelpu í lok febr­úar. Kjarninn hitti Pétur og tók hann tali.

Um hvað fjallar Nýlenda A0-4?

„Árið er 2190 og mann­kynið hefur fundið orma­göng úti í geimnum sem liggja á ókortl­aðar slóðir. Pláneta hefur fund­ist hinu megin við göngin og er mann­kynið búið að koma sér þar fyrir og farið að nýta þar auð­lindir. Plánetan heitir Jodess. Öll starf­semi sem telst eyði­leggj­andi fyrir Jörðina er flutt á nýju plánet­una hægt og rólega því mengun á Jörðinni er orðið risa­vaxið vanda­mál.

Nýlenda A0-4 fjallar um flug­stjór­ann Ewin og und­ir­menn hans á flutn­inga­skip­inu Freka. Skipið ferð­ast á milli Jarð­ar­innar og Jodess, nánar til­tekið Nýlendu A0-4 sem er ein af nokkrum borgum sem risið hafa á Jodess. Þar búa um 1,6 millj­ónir. Þau leggja af stað frá Jörðinni þann 14. jan­úar 2190 í enn einn leið­ang­ur­inn. Áætlaður ferða­tími til Jodess eru um 30 dagar. Þegar þau koma á Nýlendu A0-4 sjá þau að ekki er allt eins og það var síð­ast. Þau þurfa að takast á við nán­ast óyf­ir­stíg­an­legt verk­efni ef þau vilja upp­lifa eðli­legt líf aftur. Ewin kynn­ist sjálfum sér sem nýjum manni eftir gjörðir sem hann hefði aldrei órað fyrir að geta gert, allt til að halda lífi. Uppgjör, blóð, sviti, byssur, svik og sökn­uður koma við sögu í þess­ari ferð."

Hvenær er útgáfan áætluð?

„Útgáfan er áætluð um miðjan des­em­ber, í síð­asta lagi. Ég ætla þó að reyna að prenta hana fyrr svo ég nái að selja eitt­hvað af ein­tökum, fyrir utan þau sem eru fyr­ir­fram pöntuð á Karolina Fund, fyrir jólin."

Hvað kom til að þú fórst að skrifa vís­inda­skáld­sögu?

„Ég byrj­aði í raun fyrst að skrifa sög­una árið 2007, þó ég tali alltaf um að ég hafi byrjað 2010. Ég var ekki með inter­netið í nokkra mán­uði og leidd­ist stundum svo ég ákvað að byrja bara að skrifa ein­hverja sögu sem ég gæti haft gaman að. Þá var engin spurn­ing að velja sögu sem gerð­ist í geimnum, því ég hef oft mjög gaman að þeim. Ég skrif­aði þó bara ein­hvern hálfan kafla og hætti svo, enda hafði ég nóg að gera í vinn­unni en þá var ég lög­reglu­nemi í starfs­námi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Árið 2010 missti ég svo vinn­una í ein­hverja fjóra mán­uði. Þá varð ég að finna mér eitt­hvað að gera. Ég vildi geta skapað eitt­hvað. Ekki kunni ég að teikna, smíða eða for­rita. En ég kunni að skrifa. Svo ég ákvað að halda áfram með sög­una sem ég byrj­aði á 2007. Um sum­arið fékk ég svo vinnu í lög­regl­unni aftur og eftir það byrj­aði ég í Háskól­anum í Reykja­vík. Ég vann í bók­inni af og til með námi og vinnu. Það gekk mjög hægt en hafð­ist að lokum."

Hvað er það við vís­inda­skáld­sögu­heim­inn sem heillar þig mest?

„Mér hefur alltaf fund­ist heill­andi hvað það er margt í boði þegar kemur að vís­inda­skáld­sögum. Sögu­þráð­ur­inn getur verið alla­vega. Það er hægt að gera vís­inda­skáld­sögu sem ger­ist á Jörðinni, úti í geimi eða þess vegna á stað sem er ekki til. Út frá því er svo hægt að spinna hvað sem er.

Það er eitt sem mér finnst nauð­syn­legt að allar sögur inni­haldi til þess að geta talist skemmti­legar, og þarna er ég svo­lítið að hugsa þetta út frá bíó­myndum því ég hef ekki lesið mikið af vís­inda­skáld­skap, því saga er alltaf saga, hvort sem hún er túlkuð á hvíta tjald­inu eða í bók. Það er per­sónu­sköpun í sög­unum sem mér finnst skipta mestu máli. Ef per­sónu­sköpun er léleg, þá verður allt lélegt, og það á líka við um vís­inda­skáld­skap. Fyrst þarf auð­vitað að kynna per­són­urnar svo maður geti fundið til með þeim. Næst þurfa þær að vera raun­veru­legar, þ.e.a.s. ef þær bregð­ast ekki við aðstæðum eins og fólk bregst við þeim í raun­veru­leik­anum, þá finnst mér mikið upp á vanta. Þá er ég að tala um þegar per­sónur missa t.d. vin eða maka. Þá eiga þær að vera sorg­mætar og gráta, nema þær eigi við ein­hver and­leg veik­indi að stríða, en þá þarf veikin að skína í gegn alla sög­una. Ef saga upp­fyllir þetta ekki, þá fellur hún fljótt í áliti hjá mér, sama hvort hún sé vís­inda­skáld­skapur eða ekki."

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár