Karolina Fund: Kostnaðarsöm umgjörð á leikriti eftir Beckett

Leik­hóp­ur­inn Svipir, hafa haf­ist handa við að svið­setja Endatafl eftir Samuel Beckett, sem er annað hans fræg­asta leik­rit. Kristín Jóhann­es­dóttir stýrir hópnum með aðstoð skálds­ins og drama­t­úrgs­ins, Sigurðar Páls­sonar. Leikarar eru meðal ann­ars Þor­steinn Bachmann, Þór Tulinius og Harpa Arn­ar­dóttir. Þórunn María Jóns­dóttir sér um bún­inga, en Kristín hannar leik­mynd. Halldór Örn Ósk­ars­son er ljósa­hönn­uður. Frum­sýn­ing er áætluð í byrjun maí í Tjarn­ar­bíó. Umgjörðin er kostn­að­ar­söm og því eru þau að leita til almenn­ings um að for­kaupa miða á sýn­ing­una til þess að aðstoða þau við að fjár­magna sviðs­mynd verks­ins.

Við tókum Þór Tulinius tali.

Full ástæða til að dusta rykið af meistarastykki


Segðu okkur frá leik­sýn­ing­unni Endatafl. Hvers vegna ákváðuð þið að setja það á svið?

„Endatafl ásamt Beðið eftir Godot er það verk sem haldið hefur nafni Nóbelskálds­ins írska hvað mest á lofti. Það hefur aðeins verið sýnt tvisvar á Íslandi áður og síð­ast fyrir næstum þrjá­tíu árum, svo okkur í leik­hópnum Svipum fannst full ástæða til að dusta rykið af þessu meist­ara­stykki. Harpa Arn­ar­dóttir og ég sendum inn umsókn til Mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins og erum þakk­lát fyrir að hafa hlotið styrk úr þeim ranni. Síðan hefur hver stór­stjarnan á fætur annarri lað­ast að verk­efn­inu. Kristín Jóhann­es­dóttir leik­stýrir, Sigurður Pálsson er ráðu­nautur, Þor­steinn Bachmann bregður sér í aðal­hlut­verkið, Hamm, ég leik Clov, Harpa er Nell, Þórunn María Jóns­dóttir sér um bún­inga og Halldór Örn Ósk­ars­son um ljós. Við erum með frá­bært lið í öllum póstum, því allir vilja vinna með Beckett."

https://vimeo.com/120701522

„Endatafl er talið til absúr­dverka en eins og títt er um leik­rit úr þeim flokki er það barma­fullt af fárán­leikakímni. Eins og skáld­bróðir hans Tsjékhov, vildi Beckett að leik­verk hans vektu kátínu en ekki þann drunga, sem margir vilja sjá í þeim. Endatafl er nefni­lega eins og öll leik­rit Becketts leikur, leikur að leik­húsi, leikur per­són­anna við hvor aðra, leikur til að leika á tím­ann, til að leika á lífið, sem væri óbæri­legt ef ekki væri fyrir leik­inn og þótt það fáist við fánýti til­ver­unnar betur en nokkur önnur leik­verk gera, þá fjallar það með hjart­an­legri kímni og djúpri hlýju um ódrep­andi hvöt manns­ins til að halda samt áfram, gef­ast aldrei upp, jafn­vel þótt hann sé löngu búinn að gef­ast upp. Þeir sem þekkja til Enda­tafls muna vænt­an­lega helst eftir aldr­aða par­inu; þau búa í sitt hvorri rusla­tunn­unni, sem hefur verið komið þannig fyrir að það er akkúrat nógu mikil fjar­lægð á milli þeirra svo að gömlu hjónin ná ekki að kyss­ast. Þeirra senur eru óborg­an­lega kómískar ..., eða réttar væri kannski að segja tragík­ó­mískar, því sam­hliða glettn­inni er auð­vitað stór og djúpur und­ir­tónn."

Í skugga þrúgandi ógnar


Okkur finnst verkið eiga sterkt erindi í dag og sjáum í því við­vörun til okkar um ástand heims­ins og hvert við stefnum í lofts­lags­málum. Það er álit manna að fyrir akkúrat sex­tíu árum, eða 1955, hafi Beckett byrjað að kokka Endatafl upp í kolli sínum eftir ótrú­legar vin­sældir Beðið eftir Godot sem frum­sýnt var í París 1953. Endatafl ber þess merki að hafa orðið til í skugga þrúg­andi ógnar og lýsir heimi þar sem allt líf er á hverf­anda hveli eftir miklar ham­farir. Sú ógn sem vofði yfir heim­inum 1955 var kjarn­orku­váin, en í dag, 2015, er það umhverf­is­váin, eins og allir vita auð­vitað, en vilja samt helst gleyma. Við erum mjög spennt fyrir þess­ari lesn­ingu leik­stjór­ans á verk­inu, sem sagt að leggja áherslu á umhverf­is­málin, og eins með frá­bæra leik­mynd­arpæl­ingu sem Kristín kom með. Við erum búin að setja í gang söfnun á Karolina Fund fyrir leik­mynd­inni og fyrir því sem vantar uppá til að við getum gert verk­inu þau skil sem Beckett og áhorf­endur okkar eiga skilið. Þrátt fyrir vel­vilja styrkt­ar­að­ila erum við ennþá fjár­þurfi, því leik­listin lifir ekki á and­anum einum, hún kostar líka pen­inga.

Hægt er að skoða verk­efnið nánar og leggja því lið hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár