Karolina Fund 2014: 65 verkefni sóttu sér rúmlega 40 milljónir

Árið hefur verið við­burð­ar­ríkt hjá íslensku hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­unni Karolina Fund sem hefur vaxið úr því að vera til­tölu­lega lítið til­raun­ar­verk­efni í að vera ein veltu­mesta hóp­fjár­mögn­un­ar­síðan á Norð­ur­lönd­unum.

Alls náðu 65 verk­efni að sækja sér yfir 40 millj­ónir króna. Þetta fé fjár­magn­aði meðal ann­ars 19 bækur, 22 hljóm­plötur og tólf kvik­myndir svo eitt­hvað sé nefnt.

Við ákváðum að stikla á stóru í gegnum árið og fara yfir það helsta.

Hæsta upphæðin


Dúnd­ur­fréttir safn­aði 3,6 millj­ónum í DVD útgáfu af tón­leikum þeirra í Eldborg. Á eftir þeim kom Dul­dýra­safnið sem safn­aði rúm­lega 1,5 millj­ónum króna.

[caption id="attachment_15424" align="alignnone" width="600"] Hljóm­sveitin Dúnd­ur­fréttir.[/caption]

 

Hæsta prósenta fram yfir takmark


Bók eftir Jón B. K. Ransu, Mál­verkið sem slapp úr ramm­anum safn­aði 383% af sínu mark­miði. Mark­miðið náð­ist strax tíu klukku­stundum eftir að söfn­unin hófst. Þar á eftir kom Dul­dýra­safnið með 332% af sínu mark­miði, en 100% markið náð­ist á nákvæm­lega 24 klukku­stundum.

[caption id="attachment_15425" align="alignnone" width="600"] Mál­verkið sem slapp út úr ramm­anum náði að safna næstum fjórum sinnum því mark­miði sem stefnt var að upp­haf­lega.[/caption]

Flottasta kynningarmyndbandið


Per: Seg­ul­svið fjár­magn­aði bók­ina Smiður finnur lúður á karolina­fund.com og bjó til kynn­ing­ar­mynd­band sem fékk væg­ast sagt góðar und­ir­tektir.

https://vimeo.com/111052441

Mest áberandi kynningartrixið


Frímann Gunn­ars­son gekk nak­inn niður Skóla­vörðu­stíg­inn fyrir söfnun fyrir VIVID, með aug­lýs­inga­skilti frá Macland til þess að skýla sér, til þess.

[caption id="attachment_14352" align="alignnone" width="800"] Frímann Gunn­ars­son gekk nak­innn niður Skóla­vörðu­stíg­inn fyrir VIVID.[/caption]

Hægt er að sjá umfjöllun í Kast­ljós­inu hér.

Karolina Fund og Kjarninn þakka ykkur öllum sem styrkt hafa verk­efni á árinu 2014 með von um enn skemmti­legra kom­andi ár!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár