Karolina Fund: Frímann gengur nakinn til að safna fé fyrir dansverki

Þann 27. des­em­ber er áætlað að halda hátíð­ar­styrkt­ar­sýn­ingu á VIVID, nýju dans­verki eftir Unni Elísa­betu Gunn­ars­dóttur, til þess að safna fyrir launum lista­fólks­ins sem tekur þátt í verk­inu sem svo fer á sviðið í Þjóð­leik­hús­inu. Þessi sýn­ing verður ein­göngu haldin fyrir þá sem styrkja verk­efnið á Karolina Fund.

Óhætt er að lofa veislu fyrir augu og eyru. Bóheminn Frímann Gunn­ars­son leggur sitt lóð á voga­skál­arnar með því að bjóð­ast til að ganga nak­inn með aug­lýs­inga­skilti eitt sér til hlífðar. Auk þess sem Frímann verður gest­gjafi og flytur skemmti­dag­skrá fyrir sýn­ing­una.


Nú er rétti tímapunkturinn


Unnur Elísabet, getur þú sagt okkur frá VIVID. Hvers vegna ákvaðstu að búa það til og hvert er þemað?

„VIVID er sam­starfs­verk­efni lista­manna, ég sem dans­inn, Viktor Orri Árnadon (úr Hjalta­lín) semur tón­list­ina og rúm­enska lista­konan Raluca Grada hannar bún­inga og leik­mynd. Svo taka fimm atvinnu­dans­arar þátt í sýn­ing­unni. Þemað í VIVID er að þora að brjót­ast út úr kass­anum, að brjóta rammann sem maður getur verið fastur í. Að þora að taka áhættur, að þora að lifa! Mig hefur lengi langað til að fram­kvæma þessa hug­mynd og gera þetta verk. Nú var rétti tíma­punkt­ur­inn, þá var bara látið vaða. Þjóð­leik­húsið var svo gott að leyfa okkur að sýna í Kassanum, en við þurftum að fjár­magna laun lista­fólks­ins, þess vegna leit­uðum við til Karolina Fund."

https://vimeo.com/113934252

 

Er nekt hin nýja söfnunarleið


Frímann Gunn­ars­son ætlar að ganga nak­inn niður Skóla­vörðu­stíg­inn, ein­ungis hul­inn aug­lýs­inga­spjöldum frá fyr­ir­tæki sem borgar 500 þús­und í söfn­un­ina. Er þetta kannski hin nýja leið lista­manna til þess að fá fyr­ir­tæki til að koma með fjár­magn inn í list­ræn verk­efni?

„Já, það er spurn­ing. Að minnsta kosti var nógu erfitt að fá styrki og fjár­magn í fram­leiðsl­una, en um leið og þessi hug­mynd kom upp þá fengum við athygli og það eru þreif­ingar með að þetta verði að veru­leika, þannig að það er varla hægt að svara þess­ari spurn­ingu neit­andi. Þó að við séum ekki endi­lega að mæl­ast til þess að allir fari þessa leið. Frímann myndi orða það þannig að þetta sé tákn­rænt fyrir stöðu lista­manns­ins, hann er nak­inn og ber­skjald­aður og má sín lít­ils gagn­vart mark­aðs­öfl­unum. Hann ætlar lík­leg­ast þó að vera í skóm og sokkum og sam­kvæmt mínum heim­ildum er hann byrj­aður að hita upp sokk­ana."

Hvað er á döf­inni næst hjá þér? Hvað mun verk­efnið taka stóran part af lífi þínu og hvar getur fólk séð það?

„Það er nú það, það er ekk­ert ákveðið með fram­haldið eftir VIVID, svo­leiðis er stundum starf freelance lista­manns­ins, maður flýtur niður ána og sér hvað lífið færir manni næst. Við erum að æfa VIVID núna á fullu fram að frum­sýn­ingu, þannig að jóla­haldið verður meira og minna í Kassanum í Þjóð­leik­hús­inu í þetta sinn. En í anda verks­ins náum við mögu­lega að brjót­ast útúr Kassanum eftir ára­mót. Það sem tekur við kemur þá í ljós, við erum spennt að kom­ast að því hvað það verður. Vonanid mun ég takast á við fleiri svona skemmti­leg og krefj­andi verk­efni í fram­tíð­inni!"

Nánari upp­lýs­ingar og leið til þess að styrkja verk­efnið má nálg­ast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár