Karolina Fund: Nýsköpun í klassískri tónlist

Karolina Fund-verk­efni vik­unnar er Gekk ég aleinn, geisla­diska­út­gáfa á vegum Kúbus-hóps­ins, sem reynir að safna nægu fé til að gefa út lög Karls Ottós Run­ólfs­sonar í nýjum útsetn­ingum. Kúbus hefur vakið athygli fyrir nýstár­lega aðferða­fræði, meðal ann­ars á nýlegum tón­leikum þar sem áður­nefnd lög voru leikin með frum­legri sviðs­fram­komu en unn­endur klass­ískrar tón­listar eiga að venj­ast.

Ingrid Karls­dóttir fiðlu­leik­ari og Melkorka Ólafs­dóttir flautuleik­ari sátu fyrir svörum fyrir hóp­inn.

Hvernig varð Kúbus-hóp­ur­inn til?

Ingrid: Mig lang­aði til að vera í tón­list­ar­hópi þar sem maður hefði frelsi til að gera til­raunir með tón­leika­formið, þar sem ólíkar list­greinar gætu mæst og myndað nýja heild. Við hitt­umst fyrst í Berlín árið 2010, ég, Júlía Mogensen og Grímur Helgason, og lögðum þar fyrstu drögin, fengum svo til liðs við okkur Guðrúnu Dalíu Salómons­dóttur og okkar fyrsta verk­efni sem hópur var flutt á tón­leikum haustið 2013.

Við bjuggum í sitt hvoru land­inu á ­þessum tíma og því tók það okkur ­nokkur ár að láta þetta smella. Stuttu eftir fyrstu tón­leik­ana okkar þar sem við fluttum Kvartett um enda­lok tím­ans fyrir fullu húsi í Tjarn­ar­bíói flutti Melkorka aftur til lands­ins frá Japan og hún slóst í hóp­inn.

Hvernig hafið þið verið að gera til­raunir með tón­leika­formið?

Melkorka: Fyrir tón­leik­ana í Iðnó unnum við með Frið­geiri Ein­ars­syni leik­stjóra í ferli sem var í raun meira í ætt við vinnu í leik­húsi, spuna­vinnu og hug­mynda­vinnu. Tón­leik­arnir voru hálf­kóreograffaðir. Við vorum með lág­marks leik­muni og hreyfð­umst til á svið­inu.

Ingrid: Já, við í raun­inni nýttum okkur ein­föld elem­ent sem yfir­leitt sjást mest í leik­húsi. Við höfum líka unnið mikið með lýs­ing­una, og unnið frá upp­hafi með ljósam­ann­inum Jóhanni Bjarna Pálma­syni.


Er nýsköpun á klassík þverstæða?


Kúbus hefur verið lýst sem nýsköp­un­ar­verk­efni í klass­ískri tón­list, er þetta ekki þver­stæða, nýsköpun á ein­hverju klass­ísku?

Melkorka: Nei, ég held að þessi skil­grein­ing, klass­ísk tón­list, sé svoldið vill­andi. Það sem heftir miðlun tón­listar sem telst til þessa forms er einmitt þessi þörf fyrir boxið. Það er svo algengt að fólk segi eitt­hvað á þessa leið: „Æ ég veit ekk­ert um þetta“ og þá gefur það því heldur ekki sjens. Það er eins og við þurfum að taka það út úr box­inu svo fólk þori að hafa skoðun, eða bara ekki skoðun, svo það þori yfir­leitt að gefa þessu sjens. Ætli það sé ekki ein ástæða fyrir því að setja tón­list af þessu tagi í nýtt sam­hengi til að koma svo­lítið aftan að fólki, ef svo má segja. Hefðin í kringum klass­íska tón­leika er líka að sumu leyti heft­andi, og kannski ekki í takt við nútím­ann og því á þessi nýsköp­un­ar­stimp­ill vel við.

Ingrid: Mér finnst mjög gaman að heyra að það sé talað um Kúbus sem nýsköp­un­ar­verk­efni. Ég tel það ekki vera þver­stæðu, alla­vega ekki í okkar til­felli. Efni­við­ur­inn sem er útgangs­punkt­ur­inn hjá okkur er klass­ískur en að mínu mati, það sem við höfum gert og viljum gera, er að nýta hinn klass­íska efni­við og setja hann í nýtt sam­hengi. Ef maður horfir til ann­arra list­greina, eins og leik­húss­ins, þá sér maður þetta vera gert aftur og aftur. Verk eftir Shakspe­are, Kafka, Ibsen og fleiri meist­ara brotin upp og færð í nútíma­legt sam­hengi, því hinn klass­íski efni­viður á alltaf erindi og er tíma­laus en það erum við sem njótum list­ar­innar eða fremjum hana sem hættir til að fest­ast í viðjum van­ans.


Menningararfur sem þarf fram í dagsljósið


Hvernig kom það til að þið réð­ust í að vinna með verk Karls Ottós Run­ólfs­sonar?

Melkorka: Það kom í raun­inni frá Guðrúnu Dalíu, píanist­anum okkar sem hefur verið heilluð af sönglög­unum hans um tíma. En þessi hug­mynd, að fá Hjört Ingva Jóhanns­son til að útsetja fyrir okkur, var einmitt leið til að færa þau nær. Stundum lenda þessi „klass­ísku“ sönglög í því að vera of „hefð­bundin“ í flutn­ingi. Það er svo rosa­lega mikið lit­róf, bæði í text­unum og tón­list­inni sem hægt var að vinna með í útsetn­ing­unum, í flutn­ingnum, leik­gerð­inni og ljós­unum.

Ingrid: Þetta er menn­ing­arfur sem okkur langar að draga enn frekar fram í dags­ljósið og nú í nýjum og ferskum ­bún­ingi Hjartar Ingva.

Hvernig datt ykkur í hug að fara þessa leið, að hóp­fjár­magna verk­efnið?

Melkorka: Það var í raun­inni raun­hæf­asta leiðin. Við höfum sótt um alls konar styrki en fengið fá já. Karolina Fund er bara alveg frá­bært fyr­ir­bæri, nýlega fóru heild­ar­á­heit í gegnum vef­inn yfir 300.000 evrur.

Ingrid: Sammála. Og það eru frá­bærir aðilar sem standa á bak­við það sem eru enda­laust til­búnir að ausa úr reynslu­banka sínum.

Melkorka: Hug­sjóna­fólk.

Nú eruð þið enn í miðju söfn­unar­ferl­inu, hver sýn­ist ykkur vera mun­ur­inn á því að fjár­magna verk­efni með hóp­fjár­mögnun og til dæmis að sækja um styrki fyrir því?

Ingrid: Þetta er mun meiri vinna.

Melkorka: Flest okkar klár­uðu nám fyrir svolitlu síðan og þekkjum vel hvernig það er að reyna að búa til verk­efni og láta þau verða að veru­leika, ef maður stendur utan við ákveðnar stofn­anir. Það er meira en að segja það. En ­Karolina Fund hjálpar með slíkt.

Þetta er kannski meiri vinna, eða öðru­vísi vinna. Stór hluti vinn­unar er í raun mark­aðs­setn­ing sem maður þyrfti líka að vinna ef maður fengi styrk. Svo finnst mér reyndar líka á ein­hvern hátt skemmti­legra að gera þetta svona.

Eins og í okkar til­felli, þá erum við að safna fyrir plötu­út­gáfu og þeir sem styrkja okkur fá plötu, eða meira til, svo þetta er í raun­inni bein leið milli þess sem fram­kvæmir/fram­leiðir og til þess sem nýtur afurð­ar­innar. Það er meiri þátt­taka og teng­ing við sam­fé­lagið.

Ingrid: Maður er virk­ari í því að pró­mótera verk­efnið og maður verður virki­lega að standa og falla með því. Svo er maður í meira návígi við „audiencið“.


Þriðjungur kominn


Hvernig hefur söfn­unin gengið?

Melkorka: Við erum í 32%. Svo það er kom­inn þriðj­ungur á rúmri viku, sem von­andi gefur fyr­ir­heit um að þetta gangi eftir.

Áður en þið fórið af stað með ykkar söfnun höfðuð þið styrkt önnur verk­efni. Hver haldið þið að sé ástæðan fyrir því að fólk styrki svona hóp­fjár­mögnun?

Melkorka: Ég hafði bara styrkt tvö, en ég fann að þetta gæti orðið svo­lítil fíkn að styrkja svona. Það er svo gaman að fylgj­ast svo með því hvernig verk­efnið gengur. Fólk á ein­hvern veg­inn smá part í þessu þegar það kemur að þessu svona. Fylgist með fæð­ing­unni og verður jafn­vel stolt þegar verk­efnið verður að veru­leika.

Ingrid: Svo kannski hugsar fólk líka að það væri synd ef þetta myndi ekki ganga. Það hefur trú á okkur og verk­efn­inu. Eða ég vona það alla­vega.

Melkorka: Já, maður er svo ánægður með einka­fram­takið og þakk­látur fyrir að fólk drífur í að skapa og búa til verk­efni. Það eru svo mörg skemmti­leg og áhuga­verð verk­efni á Karolina Fund.
Ingrid: Ótrúlega mikil gróska.

Munu halda tónleika í stofunni þinni


Hvað getur fólk fengið að launum fyrir að styðja verk­efnið ykkar?

Melkorka: Það getur fengið diskinn, eða miða á útgáfu­tón­leik­ana, eða jafn­vel einkatón­leika eða nýja útsetn­ingu eftir Hjört. Og líka mikið þakk­læti.
Ingrid: Mig langar svo að ein­hver leggi í einkatón­leika.

Hvernig myndi það virka?

Ingrid: Við myndum koma og halda tón­leika í stofu við­kom­andi. Flytja öll lögin og að auki óska­lag valið af við­kom­andi sem Hjörtur myndi útsetja fyrir hóp­inn.
Við verðum samt með ókeypis stofu­tón­leika í Stofunni næst­kom­andi sunnu­dags­kvöld.

Melkorka: Já, þeir eru einmitt hugs­aðir fyrir þá sem eru for­vitnir um verk­efnið og til að vekja athygli á söfn­unni.

Þeir sem vilja leggja söfn­un­inni lið geta gert það á verk­efna­síðu þess á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár