Ungum hælisleitanda varpað út í óvissuna

Abd var sendur til Ítalíu á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar í gær­kvöldi. Hann hefur hrak­ist um heim­inn frá 15 ára aldri.

Ungum hælisleitanda varpað út í óvissuna
Abd í við­tali Hér sést Abd í við­tali við Ragn­heiði Ingunni Jóhanns­dóttur, nem­anda í Lauga­lækj­ar­skóla.

Abd Errachia Buzu, 25 ára hæl­is­leit­andi frá Níger, var sóttur af lög­reglu­þjónum og sendur úr landi í gær­kvöldi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Að eigin sögn bíður hans ekk­ert nema líf á göt­unni á Ítalíu, en þar hefur honum þegar verið neitað um hæli. Abd hefur dvalist á Íslandi í rúm­lega ár, en ferð­ast um heim­inn síðan hann var 15 ára gam­all.

Ragn­heiður Ingunn Jóhanns­dóttir og Júlíus Óskar Ólafsson eru nýút­skrifuð úr Lauga­lækj­ar­skóla. Í loka­verk­efni sínu við skól­ann fjöll­uðu þau um hæl­is­leit­endur og kjör þeirra á Íslandi. Á meðal við­mæl­enda þeirra var Abd. Hér að neðan má sjá við­tal Ragn­heiðar við hann:

Í við­tal­inu kemur fram að Abd hélt ungur að aldri frá Níger til Ghana og Líbíu. Þaðan fór hann yfir Mið­jarð­ar­hafið til Ítalíu þar sem hann dvald­ist í átta ár við slæm kjör.

Hann dvaldi um skeið í Þýska­landi, en þaðan lá leiðin til Kanada þar sem hann von­aði að sín biði betra líf. Þegar hann átti við­komu á Íslandi var hann grip­inn með fölsuð skil­ríki á Kefla­vík­ur­flug­velli. Í kjöl­farið sótti hann um hæli hér.

Abd hefur búið í litlu her­bergi ofar­lega á Lauga­vegi síðan í júlí í fyrra. Þar hefur hann beðið fregna af hæl­is­um­sókn sinni. Fyrir um fimm mán­uðum var honum til­kynnt að hann yrði fluttur aftur til Ítalíu á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Úr þessu varð ekki fyrr en í gær­kvöldi.

Blaða­maður Stund­ar­innar hitti Abd um helg­ina, en þá kvaðst hann ánægður með að óvissan yrði brátt á enda. Nú vissi hann að minnsta kosti hvað biði sín; líf betlar­ans á göt­unni á Ítalíu. 

Tekið skal fram að nem­and­inn sem tók við­talið við Abd, Ragn­heiður Ingunn Jóhanns­dóttir, teng­ist Stund­inni með þeim hætti að hún er systir blaða­manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu