Ummæli Gunnars Braga á skjön við fullyrðingu Sigmundar

Sig­mundur að loknum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum: „Að sjálf­sögðu kemur til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu“ - Gunnar Bragi nú: „Engin þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla í mynd­inni, um þetta var bara ein­fald­lega samið“

Ummæli Gunnars Braga á skjön við fullyrðingu Sigmundar

Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra greindi frá því í sjón­varps­þætt­inum Eyjunni á sunnu­dag að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefðu kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum að ekki yrði haldið áfram aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið né haldin þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla á kjör­tíma­bil­inu. „Um þetta var bara ein­fald­lega samið,“ sagði hann og bætti við: „Nið­ur­staðan af þessum við­ræðum var þessi.“

Frásögn Gunnars Braga stang­ast á við ummæli sem Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra lét falla á blaða­manna­fundi þann 22. maí 2013 rétt eftir að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum lauk. „Að sjálf­sögðu kemur til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu en við ákvörðun tíma­setn­ingar á henni verður að meta aðstæður,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann þegar stefnu­yf­ir­lýs­ing rík­is­stjórn­ar­innar var kynnt og blaða­menn spurðu þá Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um fyr­ir­hug­aðar aðgerðir á kjör­tíma­bil­inu. 

Ummæli Gunnars Braga og Sig­mundar Davíðs má sjá í heild hér að neðan.

Utan­rík­is­ráð­herra, 15. mars 2015:

Gunnar Bragi: „Þessi rík­is­stjórn er ekk­ert að fara að hefja við­ræður á ný við Evr­ópu­sam­bandið og mun ekk­ert gera það. Og þess vegna er engin þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla í mynd­inni. Um þetta var bara ein­fald­lega samið. En báðir flokkar eru með það skýrt frá sínum æðstu stofn­unum, lands­fundi og flokks­þingi, að Ísland eigi að vera utan Evr­ópu­sam­bands­ins og við erum að fylgja því eftir.”

Spyrill: „Þannig að for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þessum við­ræðum um myndun nýrrar rík­is­stjórnar eftir kosn­ingar lagði ekki áherslu á það sem hún hafði sagt rétt fyrir kosn­ingar, að þessu yrði vísað til þjóð­ar­innar?“

Gunnar Bragi: „Ja, sko, nið­ur­staðan af þessum við­ræðum var þessi, nið­ur­staðan var sú – það breytir í sjálfu sér ekki hvað menn sögðu fyrir kosn­ingar eða við borðið þegar var verið að semja eða eitt­hvað slíkt – en þetta var nið­ur­staða þess­ara tveggja flokka því þeir eru mjög sam­mála um þetta mál.“

 

For­sæt­is­ráð­herra, 22. maí 2013:

„Að sjálf­sögðu kemur til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, en menn hljóta við ákvörðun um tíma­setn­ingu slíks að taka inn í reikn­ing­inn aðstæður og þess vegna er mikvægt að byrja á því að leggja mat á aðstæð­urnar bæði hvað varðar umsókn Íslands en líka varð­andi þróun Evr­ópu­sam­bands­ins. við höfum ekki rætt neitt um tíma­setn­ingu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar.“

Myndband af ummælum Sig­mundar Davíðs má sjá á Youtube:

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ESB

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár