Þingmaður bregst við voðaverkunum: Vill huga að aukinni vopnvæðingu íslensku lögreglunnar

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, veltir fyrir sér þörf­inni á auknum vopna­burði lög­regl­unnar. „Hvílík rör­sýn,“ skrifar Egill Helgason.

Þingmaður bregst við voðaverkunum: Vill huga að aukinni vopnvæðingu íslensku lögreglunnar

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður atvinnu­vega­nefndar, kallar eftir því að íslenska lög­reglan fái aukin úrræði til að tryggja öryggi borg­ar­anna og stöðva mis­ynd­is­menn. Þetta kemur fram í hug­leið­ingu hans á Facebook þar sem hann gefur í skyn að þörf sé á auk­inni vopn­væð­ingu lög­regl­unnar.

„Maður er sleg­inn óhug eftir voða­at­burði í Frakk­landi og Tyrk­landi síð­ustu daga. Hörmu­legur atburður í Frakk­landi var mikið ræddur hjá hópi fólks sem ég hitti í gær­kvöldi. Eðlilega var fólk að velta því upp hvort svona atburðir gætu átt sér stað í okkar frið­sama sam­fé­lagi. Í senn er þetta okkur svo fjar­lægt þó voða­at­burð­irnir eigi sér stað nán­ast í næsta húsi,“ skrifar Jón og bætir við: „Þeirri spurn­ingu var velt upp hvernig við gætum tryggt öryggi borg­ar­anna ef við stæðum frammi fyrir slíku ástandi. Við vorum sam­mála um það að það kæmi að litlu gagni ef lög­reglu­menn hefðu ekki önnur úrræði en að banka með kylfu á glugga far­ar­tækis mis­ynd­is­manna og biðja þá að hætta. Við hljótum að þurfa að taka þessa umræðu og hugsa fyrir því hvernig við gerum lög­reglu­mönnum okkar kleift að mæta aðstæðum þeim sem við mögu­lega stöndum frammi fyrir.“

Egill Helgason fjöl­miðla­maður gerir athuga­semd við ummæli Jóns og telur frá­leitt að huga að auk­inni vopn­væð­ingu lög­regl­unnar á Íslandi, enda sé það lang­frið­sælasta ríki heims. „Hvílík rör­sýn,“ skrifar hann hann og vitnar í svo­nefnt Global Peace Index máli sínu til stuðn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár