Þeir sem þrífa diskana og drífa áfram hagvöxt í nýja góðærinu

Erlendu vinnu­afli fjölgar í lág­launa­störfum tengdum ferða­þjón­ustu. Síðustu ár hefur ferða­þjón­ustan drifið áfram mik­inn hag­vöxt og kaup­máttur launa er nú í sögu­legu hámarki. Erlendir starfs­menn lenda á botni tekju­skipt­ing­ar­innar og vinna störf við ræst­ingar og þjón­ustu sem knýja áfram vöxt ferða­þjón­ust­unnar.

Þeir sem þrífa diskana og drífa áfram hagvöxt í nýja góðærinu

Vöxtur ferða­þjón­ust­unnar hefur verið gríð­ar­legur síð­ustu ár sem er orðin stærsta atvinnu­grein vinnu­mark­að­ar­ins með 12% vinnu­afls. Störfum í ferða­þjón­ustu heldur áfram að fjölga sem eru í flestum til­fellum ófag­lærð lág­launa­störf við þjón­ustu eða þrif. Á sama tíma sækja fleiri Íslend­ingar fram­halds- og háskóla­menntun og hefur nýjum störfum því í miklum mæli verið mætt með erlendu vinnu­afli. Sér­fræð­ingur í mál­efnum inn­flytj­enda segir algengt að erlendir starfs­menn séu á of lágum launum og fjöldi þeirra vinni í svartri starf­semi, algjör­lega rétt­inda­laus. Allt frá hruni hefur ferða­þjón­ustan verið drif­kraftur hag­vaxtar hér á landi. Á síð­asta ári mæld­ist met­hag­vöxtur, 7,2%, og hefur aðeins verið hærri árið 2007 og 2004. Með­al­laun á Íslandi eru orðin ein þau hæstu í heim­inum og hefur kaup­máttur launa aldrei verið hærri. Upp­gangur ferða­þjón­ust­unnar heldur áfram að knýja áfram hag­vöxt hér á landi og verða störf í atvinnu­grein­inni sífellt fleiri. Áætlað er að einn af hverjum fjórum sem starfa í ferða­þjón­ustu séu erlendir rík­is­borg­arar og gert er ráð fyrir að hlut­fallið muni aukast á næstu miss­erum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár