Sátt um mál Lindu P. eftir leynilegan fund

Lög­reglan dylgj­aði um ann­ar­legt ástandi feg­urð­ar­drottn­ing­ar­innar sem sak­aði þá um harð­ræði. Þá gagnkærðu lög­reglu­menn­irnir Lindu fyrir ofbeldi. Lyfja­próf leiddi sak­leysi Lindu í ljós. Lögmaður og lög­reglu­stjóri héldu einka­fund um málið

Sátt um mál Lindu P. eftir leynilegan fund
Linda og lög­reglan Linda Pét­urs­dóttir sagði sögu sína í helg­ar­blaði DV. Málið vakti þjóð­ar­at­hygli og þá sér­stak­lega þáttur lög­regl­unnar.

Undir lok árs­ins 1994 varð mikið fjöl­miðla­fár vegna þess að Linda Pét­urs­dóttir, var hand­tekin og flutt á lög­reglu­stöð ásamt þáver­andi unnusta sínum. Hún lýsti því að þar hefði hún verið beitt harð­ræði og nið­ur­lægð. Lög­reglan lak skýrslu þar sem hún var sögð vera í ann­ar­legu ástandi. Linda kærði lög­regl­una og lög­reglan kærði Lindu fyrir ofbeldi. Hún lýsti þessu í helg­ar­við­tali við DV.

„Fyrst var ég ofboðs­lega hrædd því ég vissi ekki hvað var að ger­ast. Síðan varð ég reið þegar þeir fóru að taka á mér. Ég kall­aði á Les og sagði að þeir væru að meiða mig. Þeir beygðu mig fram á borðið og sneru upp á hönd­ina á mér, ég var í stuttu pílsi og þetta var alveg hræði­leg nið­ur­læg­ing. Þeir skip­uðu mér að hætta að öskra og þegar ég hélt því áfram þá tóku þeir fyrir munn­inn á mér. Stuttu síðar fékk ég svo fót­inn á honum í aft­ur­end­ann á mér og hann sagði að þó að ég væri Linda P. þá væri ég ekk­ert merki­legri en annað fólk,“ sagði Linda Pét­urs­dóttir, feg­urð­ar­drottn­ing Íslands og Miss World, í við­tali við DV á þessum tíma um erf­iða lífs­reynslu sína þegar hún 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Gamla fréttin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár