Segir það barnaskap að mæta ekki í veisluna

Vigdís Hauks­dóttir mætir til þing­veisl­unnar í sínu fín­asta pússi. Skilur ekki „mót­þróakast" stjórn­ar­and­stöð­unnar.

Segir það barnaskap að mæta ekki í veisluna
Fer í spari­fötin Vigdís Hauks­dóttir alþing­is­maður ætlar að mæta í Bænda­höll­ina í kvöld. Hún botnar ekker í stjórn­ar­and­stöð­unni að skrópa.

„Ég nátt­úr­lega tala bara fyrir mig. Að sjálf­sögðu mæti ég í þing­veisl­una, sýni þing­inu þá virð­ingu að við­halda þessum sið sem tek­inn var aftur upp núna. Þetta var fellt út í sparn­að­inum á sein­asta kjör­tíma­bili, en við erum að borga inn í þetta,“ segir Vigdís Hauks­dóttir, alþing­is­maður, sem ætlar að mæta í umdeilda þing­veislu í Bænda­höll­inni í kvöld. Hún vísar til þess að þing­menn greiði hluta af kostn­að­inum eða 5 þús­und krónur.  

„Ég mæti í mínu fín­asta pússi,” segir hún.

Stjórn­ar­and­staðan hefur öll sam­ein­ast um að snið­ganga veisl­una. Vigdís segir það vera barna­skap.

„Mér finnst þetta bara barna­legt, afar barna­legt. Ég veit ekki hvað þau ætla að fá fram með þessu. Ég veit ekki í hvaða mót­þróakasti þau eru. Það er örugg­lega búið að kaupa veit­ingar frá hót­el­inu og við áttum að melda okkur síð­asta mið­viku­dag. Þegar svona er tel ég veik­indi geta verið einu for­föllin. Þingið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ESB

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár