Starfsmaður Fjölskylduhjálpar hringdi í Útvarp Sögu og klagaði Tony Omos

Anna Valdís Jóns­dóttir, verk­efn­is­stjóri úti­bús Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands í Reykja­nesbæ, hringdi í Útvarp Sögu og greindi frá því sem hæl­is­leit­and­inn Tony Omos á að hafa sagt við hana. Óvana­legt er að starfs­menn hjálp­ar­sam­taka kvarti opin­ber­lega yfir nafn­tog­uðum ein­stak­lingum sem þurfa að leita á náðir þeirra.

Starfsmaður Fjölskylduhjálpar hringdi í Útvarp Sögu og klagaði Tony Omos
Pétur Gunn­laugs­son Pétur ræddi við Önnu Valdísi í beinni útsend­ingu í dag. Mynd: Rúv

Verk­efn­is­stjóri Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands í Reykja­nesbæ, hringdi í Útvarp Sögu í dag og klag­aði hæl­is­leit­and­ann Tony Omos fyrir mein­tan dóna­skap. Starfs­mað­ur­inn seg­ist í sam­tali við Stundina telja að hæl­is­leit­endur eigi að sýna Íslend­ingum kurt­eisi.

Óvana­legt er að starfs­menn hjálp­ar­sam­taka kvarti opin­ber­lega yfir nafn­tog­uðum ein­stak­lingum sem þurfa að leita á náðir þeirra. 

Trún­að­ar­gögnum um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos var lekið úr Inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu eins og frægt er orðið og var aðstoð­ar­maður Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir brotið. Tony, sem er níger­ískur, kom upp­haf­lega til Íslands frá Sviss árið 2011. Hann sneri aftur til Íslands fyrr í ár eftir hafa verið sendur úr landi árið 2013.

Tjáir sig opinberlega um aðstoðarbeiðni

Verk­efn­is­stjór­inn, Anna Valdís Jóns­dóttir, sagði í útvarp­inu að Tony hafi sýnt frekju í garð starfs­manna og kraf­ist þess að fá sól­gler­augu og upp­þvotta­bursta ókeypis. 

„Hann segir að þetta sé frítt en ég segi honum að burst­inn kosti 300 krónur vegna þess að við þurfum að passa hverja ein­ustu krónu, við erum bara fátæk hjálp­ar­sam­tök og hann veit það því hann þarf að leita á náðir okkar, og ég segi strax við hann að ég skuli bara taka við burst­anum ef hann hafi ekki pen­inga til þess að borga hann en hann segir nei og að þetta sé frítt fyrir hann,“ er haft eftir Önnu Valdísi í frétt Útvarp Sögu um inn­hring­ingu hennar. Fréttin hefur nú verið fjar­lægð af vef Útvarps sögu. Haft er eftir Önnu Valdísi í frétt­inni að hún hafi verið hrædd við Tony. 

Hér má hlusta á upp­töku Útvarps Sögu af sam­tali Önnu Valdísar og Péturs. Samtal þeirra byrjar á átt­undu mín­útu.

Blöskrar fjárveiting til flóttamanna

Í sam­tali við Stundina heldur Anna Valdís því fram að ekk­ert óeðli­legt sé við það að hún hafi hringt í Útvarp Sögu og kvartað undan skjól­stæð­ingi. Hún seg­ist hafa hringt í Útvarp Sögu þar sem henni blöskr­aði hversu mikið fé flótta­menn fengju frá rík­inu. „Það er búið að liggja svo­lítið á okkur að hér komi 20 flótta­fjöl­skyldur á fimmtu­dögum í mat­ar­út­hlutun. Ég hringdi til að spyrja hvað hver ein­stak­lingur hefði til fram­færslu frá rík­inu því þegar gamla fólkið okkar er búið með pen­ing­ana sína fjórða hvers mán­aðar þá er maður að heyra það að þetta fólk sé með skatt­frjáls­ar­tekjur og hafi fjórar millj­ónir á ári hver og einn. Ef þetta er rétt þá trúi ég þessu varla,“ segir Anna Valdís.

Frétta­blaðið fjallað á dög­unum um árlegan kostnað af hverjum flótta­manni. Úttektin mið­að­ist við flótta­konu með tvö börn en sam­kvæmt Frétta­blað­inu kostar sú fjöl­skylda ríkið sam­tals 3,5 millj­ónir á ári í fjár­hags­að­stoð, styrki og bætur, meðal ann­ars vegna leik­skóla­gjalda og ann­ars sem á ekki við um alla flótta­menn. Fram­færslu­styrkur ein­stak­lings á mán­uði er þó umtals­vert minni eða um 140 til 170 þús­und krónur á mán­uði, eða upp undir tvær millj­ónir á ári. 

„Ég sagði bara svona að maður sem er af þessu þjóð­erni, er búinn að vera hér og er vísað í burtu og kemur hér aftur með dóna­skap. Mér finnst það ekki eðli­legt.“ 

Hún seg­ist svo hafa farið að segja Pétri Gunn­laugs­syni útvarps­manni sögu af Tony Omos. „Ég nefndi það við hann að það hafi komið hingað í gær flótta­maður og að hann hafi verið að leyfa sér að vera með dóna­skap vegna þess að þessum manni var vísað héðan úr landi. Ég var við afgreiðslu hér í nytja­mark­að­inum okkar og hann ætl­aði að kaupa upp­þvotta­bursta og ætl­aði ekk­ert að borga. Hann myndi ekki leyfa sér það í Bónus. Hann marg­sagði það að hann ætl­aði að eiga þetta. Svo var hann að máta sól­gler­augu ásamt fleirum vinum sínum sem eru af sama þjóð­erni. Ég var ekk­ert að kvarta, ég var bara að segja þessa sögu. Mér finnst að þessi maður eigi að sýna almenna kurt­eisi gagn­vart okkur löndum. Þessi maður er búinn að sýna okkur því­líkan dóna­skap á árum áður ásamt fleiri mönnum. Ég er ekk­ert að kvarta undan honum sem slíkum. [...] Ég sagði bara svona að maður sem er af þessu þjóð­erni, er búinn að vera hér og er vísað í burtu og kemur hér aftur með dóna­skap. Mér finnst það ekki eðli­legt,“ segir Anna Valdís.

Hún leggur áherslu á að flótta­menn til Íslands skuli vera kurt­eisir. „Mér finnst að fólk sem er að þiggja hæli hér af okkur Íslend­ingum geti bara komið fram eins og mann­eskjur,“ segir Anna Valdís. Hún hörð á því að ekki hafi verið um að ræða mis­skiln­ing eða tungu­mála­örð­ug­leika. „Er það ekki dóna­skapur að segja: „frítt fyrir Tony, frítt fyrir Tony“?“ spyr Anna Valdís. 

Stundin leit­aði eftir við­brögðum Ásgerðar Jónu Flosa­dóttur, for­manns Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands, við þess­ari frá­sögn á opin­berum vett­vangi af manni sem þangað leit­aði, en hún hefur ekki svarað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár