Sigmundur sagði einfalt að afnema verðtryggingu - reynist flókið

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði að ein­falt væri að afnema verð­trygg­ingu og var­aði við úrtölu­röddum. Aðeins er unnið að breyt­ingu á láns­tíma.

Sigmundur sagði einfalt að afnema verðtryggingu - reynist flókið
Eftir kosn­ingar Sig­mundur Davíð ræðir hér við frétta­menn á Bessa­stöðum eftir að til­kynnt var um að Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur mynd­uðu næstu rík­is­stjórn undir for­ystu Sig­mundar. Mynd: Pressphotos

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði fyrir síð­ustu kosn­ingar að ein­falt væri að afnema verð­trygg­ingu lána. Nú er hins vegar stað­fest að ekki sé enn unnið að beinu afnámi verð­trygg­ingar.

„Þetta er ekki flókið“

Sig­mundur Davíð birti pistil á blogg­síðu sinni rúmum mán­uði fyrir kosn­ing­arnar 2013 undir titl­inum „Afnám og leið­rétt­ing. Þetta er ein­falt.“

Í pistl­inum kvart­aði Sig­mundur undan efa­semda­röddum um lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins um leið­rétt­ingu og afnám verð­tryggðra lána: „Í fjögur ár höfum við talað um mik­il­vægi þess að leið­rétta verð­tryggð lán. Orðið afnám vísar til ein­hvers sem menn hætta til fram­tíðar á meðan leið­rétt­ing vísar til for­tíðar. Þetta er ekki flókið en það virð­ast ekki vera nein tak­mörk fyrir því hvað reynt er að snúa út úr hlut­unum. Verk­efnin eru tví­þætt, ann­ars vegar afnám verð­trygg­ingar til fram­tíðar, hins vegar leið­rétt­ingin.“

Við myndun ríkisstjórnar
Við myndun rík­is­stjórnar Bjarni Bene­dikts­son naut mestra vin­sælda ráð­herra í skoð­ana­könnun Capacent, en mesta óánægjan var með störf Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar.

Lánstími styttur

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra stað­festir í sam­tali við Frétta­blaðið að ekki sé til skoð­unar að banna verð­tryggð lán. Það sem sé til skoð­unar í vinnu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins varð­andi verð­tryggð lán sé ann­ars vegar að hækka lægsta láns­tíma úr fimm árum og svo að stytta hámarks­láns­tíma úr 40 árum niður í 25 ár. „Nei. Í hvor­ugu til­vik­inu erum við að ræða um það,“ segir Bjarni um bann eða fullt afnám verð­tryggðra lána.

Þessar tvær leiðir í breyt­ingu á tíma­lengd lána eru í sam­ræmi við skýrslu sem gerð var fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið í jan­úar í fyrra. Þar voru aðgerð­irnar lagðar til og mælst til þess að þær hefðu gengið í gegn „eigi síðar en 1. jan­úar 2015“. Nú liggur fyrir að það næst ekki, en til skoð­unar er að leggja fram frum­varp næsta haust. Ljóst er að afleið­ing­arnar yrðu að færri munu fá greiðslu­mat og yngra fólk eiga erf­ið­ara með að kom­ast inn á fast­eigna­mark­að­inn.

Boðaði einfalt afnám verðtryggingar
Boðaði ein­falt afnám verð­trygg­ingar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son skrif­aði pistil á heima­síðu sína fyrir kosn­ingar þar sem hann var­aði við úrtölu­röddum þeirra sem efuð­ust um áform hans um að afnema verð­trygg­ingu á ein­faldan hátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár