Útilokar ekki að setjast í ríkisstjórn á kjörtímabilinu – Bakkar frá kosningum: Orðalagið „stefnt sé að“ var lykilatriði

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins er snú­inn aftur í stjórn­málin og segir að yfir­lýs­ingar Bjarna Bene­dikts­sonar og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar um kosn­ingar í haust, eftir fjöl­menn mót­mæli, hafi hugs­an­lega verið bjart­sýni. Lyk­il­orðin séu „stefnt sé að“. Nú sé kannski hægt að stefna að kosn­ingum fyrir ára­mót.

Útilokar ekki að setjast í ríkisstjórn á kjörtímabilinu – Bakkar frá kosningum: Orðalagið „stefnt sé að“ var lykilatriði
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Bægir sér undan frétta­mönnum eftir að hafa sótt heim­ild til for­seta Íslands um að rjúfa þing. Mynd: Kristinn Magnússon

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, úti­lokar ekki að hann muni setj­ast í rík­is­stjórn fyrir kosn­ingar. Þetta kemur fram í við­tali við hann á for­síðu Morg­un­blaðs­ins í dag. „Ég met það hverju sinni hvað er best til að ná fram­gangi mála og mun gera það á hverjum degi. Það er mik­il­væg­ast,“ segir Sig­mundur.

Í gær­kvöldi sagði hann að lyk­il­at­riði í yfir­lýs­ingum um að kosn­ingar yrðu haldnar í haust væri orða­lagið „stefnt sé að“. Í við­tali við RÚV útskýrði hann hvers vegna rík­is­stjórnin hefði ekki raun­veru­lega lofað að flýta kosn­ingum til hausts­ins.

Sig­mundur Davíð kennir stjórn­ar­and­stöð­unni um og segir nú að „kannski“ sé hægt að „stefna að því að það verði kosið fyrir ára­mót“. Hann segir „frá­leitt“ að ákveða kjör­dag.

Sig­mundur vill ekki að kosn­ingar séu haldnar fyrr en fram­sókn­ar­menn hafi náð að afnema verð­trygg­ing­una og koma á heil­brigðu fjár­mála­kerfi. 

Yfir­lýs­ingar um kosn­ingar í haust bár­ust sam­hliða afsögn Sig­mundar Davíðs sem for­sæt­is­ráð­herra eftir að hann var stað­inn að ósönnum yfir­lýs­ingum og gekk út úr sjón­varps­við­tali. Í kjöl­far þess mót­mæltu tug­þús­undir rík­is­stjórn­inni og Sigmundi á Aust­ur­velli, sem leiddi til afsagnar hans og yfir­lýs­inga um kosn­ingar í haust. 

„Virkja lýðræðið í landinu“

Eftir afsögn Sig­mundar sagði Bjarni Bene­dikts­son að komið yrði til móts við kröfur um að virkja lýð­ræðið í land­inu.

„En við ætl­um að stíga við­bót­ar­skref til þess að mæta kröf­um um að virkja lýð­ræðið í land­inu og til að koma til móts við þá stöðu sem hef­ur mynd­ast þá hyggj­umst við stefna að því að halda kosn­ing­ar í haust og stytta þar með kjör­tíma­bilið um eitt lög­gjaf­arþing.“

Þá sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son að ein­hugur hafi verið um að flýta kosn­ingum í þing­flokki Fram­sóknar. Þing­flokk­ur­inn fund­aði reyndar án Sig­mundar Davíðs sama dag og Sig­mundur sótti sér umboð til for­seta Íslands um að rjúfa þing, án þess að hafa ráð­fært sig við þing­flokk­inn.

Lykilorðið „stefnt að“

Sig­mundur útskýrði í sam­tali við RÚV í gær­kvöldi hvernig ekki hefði raun­veru­lega verið lofað kosn­ingum í haust. „Þetta er einmitt lyk­il­orð sem kemur bæði fram í máli fjár­mála­ráð­herr­ans og for­sæt­is­ráð­herr­ans núver­andi að „stefnt sé að“, og það var alltaf sett í sam­hengi við að mönnum tæk­ist að klára ákveðin mál. Með þessu var að sjálf­sögðu verið að gera til­raun til að ná sem flestum saman um að klára þau mál í sam­ein­ingu.“ 

Nú segir Sig­mundur að það hafi hugs­an­lega verið bjart­sýni. „Þegar talað var um að kosn­ingum yrði hugs­an­lega flýtt var það alltaf sett í sam­hengi við að þessi til­teknu mál yrðu kláruð fyrir þann tíma. Menn geta velt fyrir sér hvort það væri of mikil bjart­sýni að það gæti tek­ist fyrir haustið, fyrir sept­em­ber, októ­ber. En hvað sem því líður, þá hefur þetta alltaf verið sett í sam­hengi við þessi verk­efni.“ 

Kennir stjórnarandstöðunni um

Sig­mundur sagði í við­tal­inu við RÚV að það væri á ábyrgð stjórn­ar­and­stöð­unnar að málin, sem hann vill að kláruð séu, hafi ekki klár­ast.

„En það sem gerð­ist hins vegar í beinu fram­haldi af þessum fundi á tröpp­unum er að stjórn­ar­and­staðan lýsti yfir van­trausti á rík­is­stjórn­ina. Hún með öðrum orðum tók ekki þátt í sam­starfi um þessi mál, hún reyndi að fella rík­is­stjórn­ina. Það mistókst. Eftir það hafa menn tek­ist á um ýmis mál og kannski farið meiri tími í þau heldur en hefði þurft að vera.“

Þegar Sig­mundur var spurður hvort hann teldi ekki rétt að halda kosn­ingar í haust lýsti hann þeirri stefnu að boða kosn­ingar í vor sem hvata fyrir stjórn­ar­and­stöð­una til að sam­þykkja mál rík­is­stjórn­ar­innar. „Ég hef oft haldið því opnu, ef menn lang­aði til þess að við­halda þessum hvata, til þess að kjósa fyrr, ef menn teldu að stjórn­ar­and­staðan væri það áfram um að kom­ast í kosn­ingar sem fyrst, að þeir myndu gera eitt­hvað til þess að sú yrði raunin, þá yrði það allt í lagi.“ 

„Kannski er hægt að stefna að því í sam­ein­ingu að það verði kosið fyrir ára­mót.“

Nú sé hins vegar tekið að halla sumri. „Nú erum við komin allt í einu komin í þau stöðu að sum­arið, það er ekki að klár­ast, en það er langt liðið á sumar, og menn eiga enn eftir að klára nokkur grund­vall­ar­mál. Mál sem þurfa að klár­ast áður en kemur til kosn­inga,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Þegar gengið var á eftir Sigmundi með tíma­setn­ingu kosn­inga sagði hann: „Kannski er hægt að stefna að því í sam­ein­ingu að það verði kosið fyrir ára­mót.“

Sigurður Ingi og Bjarni Bene­dikts­sonRæða við frétta­menn í tröppum Alþingis eftir mót­mæli og greina frá fyr­ir­ætl­unum um að flýta kosn­ingum til hausts til að koma til móts við kröfur fólks.

 

Boðaði ofsafengin viðbrögð

Sig­mundur boð­aði fulla end­ur­komu sína í stjórn­mál í bréfi til flokks­manna í fyrra­dag. „Á næst­unni mun ég því aftur hefja fulla þátt­töku í stjórn­mála­bar­átt­unni. Það mun vekja við­brögð. Látið það ekki slá ykkur út af lag­inu. Viðbrögð, jafn­vel ofsa­fengin við­brögð gegn mér og okkur eru nú sem fyrr til marks um að and­stæð­ingar telji sér að sér standi ógn af okkur.“

Hann gaf til kynna að áhrifa­miklir and­stæð­ingar stæðu gegn bar­áttu Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir almanna­hags­munum, en nefndi ekki hverjir and­stæð­ing­arnir væru eða útskýrði hvernig þeir ynnu gegn almanna­hags­munum. „Að und­an­förnu höfum við til dæmis kynnst því að það er ekki auð­velt að berj­ast fyrir almanna­hags­munum þegar menn mæta eins áhrifa­miklum and­stæð­ingum og þeim sem við höfum verið að takast á við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Wintris-málið

Leyndu tilvist Wintris og greiddu ekki skatta í samræmi við lög
FréttirWintris-málið

Leyndu til­vist Wintris og greiddu ekki skatta í sam­ræmi við lög

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og eig­in­kona hans við­ur­kenndu í bréfi til rík­is­skatt­stjóra að hugs­an­lega hefðu þau ekki farið að reglum með því að skila ekki CFC-skýrslum. Þurftu að láta leið­rétta skatt­fram­töl mörg ár aftur í tím­ann. Útsvar, auð­legð­ar­skattur og tekju­skattur var end­ur­á­kvarð­aður.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár