Samstaða um að sniðganga glæsiveisluna

Öll stjórn­ar­and­staðan situr heima á meðan stjórn­ar­liðar djamma í Bænda­höll­inni.

Samstaða um að sniðganga glæsiveisluna
Þing­veisla Stjórn­ar­and­staðan ætlar ekki að mæta í þing­veisl­una.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar ætla allir sem einn að snið­ganga þing­veisl­una sem boðið hefur verið til í Súlnasal Hótels Sögu klukkan 19 í kvöld. Stundin upp­lýsti um áform Alþingis um að bjóða til veisl­unnar. Sú hug­mynd ráða­manna Alþingis að djamma í Bænda­höll­inni fellur í grýtta jörð. Birgitta Jóns­dóttir þing­maður Pírata, upp­lýsti í athuga­semda­kerfi Stund­ar­innar að hún og aðrir Píratar myndu snið­ganga veisl­una.

Össur Skarp­héð­ins­son, alþing­is­maður Sam­fylk­ingar, sagði frá því á Facebook að hann hefði ævin­lega snið­gengið nið­ur­greiddar þing­veislur.

„Á 25 árum hef ég aldrei farið í nið­ur­greidda þing­veislu.“ Hann sagði í sam­tali við Stundina að eng­inn úr þing­flokki Sam­fylk­ingar ætl­aði að mæta.

Árni Páll Árnason for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hefur þetta um málið að segja á Facebook-síðu sinni: „Við mætum ekki. Það er ekki hægt að neita minni hluta um öll lýð­ræð­is­leg rétt­indi fyrir hádegi og bjóða svo í partí um kvöldið.“

„Við mætum ekki. Það er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ESB

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár