Sagði ósatt í viðtalinu við Ísland í dag

Ummæli Hönnu Birnu á skjön við svör vara­rík­is­sak­sókn­ara

Sagði ósatt í viðtalinu við Ísland í dag

Hanna Birna fór með rangt mál í við­tal­inu á Stöð 2 í gær þegar hún sagði lög­reglu hafa skoðað síma hennar og tölvu við rann­sókn leka­máls­ins. 

Orðrétt sagði hún: „Ég er líka ráð­herra, sem þarf að vera viss um það að aðrar upp­lýs­ingar sem ég hef, til dæmis í sím­anum mínum sem var skoð­aður, tölv­unni minni sem var skoðuð, og aðgangskort­inu mínu sem var skoðað í ráðu­neyt­inu og svo fram­vegis, ég varð að vera viss um að þær upp­lýs­ingar sem menn fengu snéru ein­ungis að þessu máli. Þannig að þegar ég tal­aði við Stefán var það alltaf um svona almenn atriði er vörð­uðu slíka rann­sókn.” 

Eins og DV greindi frá í lok nóv­em­ber í fyrra var sím­notkun ráð­herra ekki rann­sökuð. Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari stað­festi þetta í svari við fyr­ir­spurn blaðs­ins. Hanna Birna fékk sér­með­ferð að þessu leyti, því lög­regla rann­sak­aði sím­notkun allra hinna sem höfðu vit­neskju um minn­is­blaðið um Tony Omos þann 19. nóv­em­ber.

Kjarninn benti á þetta mis­ræmi í svörum ráð­herra og svörum vara­rík­is­sak­sókn­ara í kvöld. Í frétt Kjarnans kemur fram að tölva Hönnu Birnu hafi heldur ekki verið skoðuð, og er það í sam­ræmi við þær upp­lýs­ingar sem Stundin hefur fengið. 

Í við­tal­inu í Ísland í dag sagði Hanna Birna að hún hefði þrá­spurt sam­starfs­menn sína til að reyna að átta sig á því hver hefði lekið minn­is­blað­inu. Á tíma­bili hefði hana grunað alla í kringum sig. Þetta er athygl­is­vert í ljósi þess að ráð­herra hélt því ítrekað fram á Alþingi og í fjöl­miðlum að ekk­ert benti til þess að gögnum hefði verið lekið úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, enda væri hið lekna minn­is­blað „ekki sam­bæri­legt við nein gögn í ráðu­neyt­inu”. Þetta sagði hún þótt hún hefði sjálf fengið skjal sent í tölvu­pósti þann 19. nóv­em­ber 2013 sem var nákvæm­lega eins og það sem fjöl­miðlar vitn­uðu til ef frá er talin ein setn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár