Panamaskjölin: Karl Wernersson stofnaði félag hjá Mossack Fonseca sem tók við milljörðum frá Íslandi

Karl Wernersson not­aði félag á Seychelles-eyjum til að taka við arði, lána pen­inga og fá lán frá Íslandi. Leiftri ltd. tók meðal ann­ars við tæp­lega þriggja millj­arða láni frá Milestone sem aldrei fékkst greitt til baka. Karl segir að Leiftri hafi tapað öllu sínu í hrun­inu. Panama­skjölin sýna að félagið var lagt niður árið 2012 skömmu eftir að það afskrif­aði millj­arðs króna skuld móð­ur­fé­lags lyfja­versl­un­ar­innar Lyfja og heilsu á Íslandi.

Panamaskjölin: Karl Wernersson stofnaði félag hjá Mossack Fonseca sem tók við milljörðum frá Íslandi
Afskrif­aði skuld og var svo lagt niður Félagið Leiftri ltd. á Seycheylles-eyjum afskrif­aði skuld upp á millj­arðs hjá móð­ur­fé­lagi Lyfja og heilsu í lok árs 2011 Íslandi og var svo lagt niður í árs­byrjun árið 2012. Þetta kemur fram í Panama­skjöl­unum frá Mossack Fonseca.

Karl Wernersson, sem var stærsti hlut­hafi Milestone og trygg­inga­fé­lags­ins Sjóvar á árunum fyrir hrunið 2008, stofn­aði fyr­ir­tæki í skatta­skjól­inu Seychelles-eyjum í gegnum lög­manns­stof­una Mossack Fonseca í Panama til að halda utan um hlut sinn í fyr­ir­tækjum á Íslandi. Þetta kemur fram í gögnum úr Panama­lek­anum svo­kall­aða þar sem fram koma upp­lýs­ingar um við­skipta­vini lög­manns­stof­unnar. Fyr­ir­tækið var stofnað í árs­byrjun 2006. Karli Wernerssyni var veitt umboð til að stýra félag­inu, sem þá kall­að­ist Dialog  Holding Ltd. í jan­úar árið 2006 en nafni þess var svo breytt í Leiftra ltd. Leiftri ltd. var svo aftur í eigu félags á Tortóla sem hét Valservice ltd. sam­kvæmt gögn­unum.

Við­skipti Leifta ltd. fóru í gegnum Glitni banka í Lúx­em­borg en Karl var einn stærsti hlut­hafi bank­ans á árunum fyrir hrunið og sat meðal ann­ars í stjórn hans þar til um vorið 2007. Í lek­anum er meðal ann­ars að finna skjöl frá Glitni banka í Lúx­em­borg sem var við­skipta­banki félags­ins. 

Stundin birtir á næstum vikum fréttir upp úr Pana­ma­gögn­unum í sam­starfi við Reykja­vík Media ehf. sem aftur á í sam­starfi við þýska blaðið Süddeutsche Zeitung og alþjóð­legu blaða­manna­sam­tökin ICIJ. Fyrstu upp­lýs­ing­arnar sem urðu opin­berar úr Panama­leik­anum í síð­asta mán­uði voru þau tíð­indi að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefði átt félagið Wintris Inc. sem skráð er á Bresku Jóm­frú­areyjum. Sig­mundur Davíð sagði af sér eftir þá opin­berun og umræð­una sem fylgdi í kjöl­farið.

Stofnað í ársbyrjun 2006
Stofnað í árs­byrjun 2006 Félag Karls Wernerssonar var stofnað af Mossack Fonseca í byrjun árs 2006 eins og þetta skjal sýnir.

Tók við mörg hundruð milljóna króna arði

Leiftri var stærsti hlut­hafi Milestone fyrir hrunið 2008 með 32 pró­senta hlut. Milestone tók meðal ann­ars við tæp­lega 20 millj­örðum króna frá trygg­ing­ar­fé­lag­inu Sjóvá á árunum fyrir hrunið 2008 og var rösk­lega einn millj­arður króna greiddur út til hlut­hafa Milestone, meðal ann­ars Leiftra. 

Milestone greiddi meðal ann­ars út tæp­lega 500 millj­óna króna arð til hlut­hafa sinna eftir hrunið 2008 þegar eig­in­fjár­staða fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins - eignir mínus skuldir - var nei­kvæð um rúma 80 millj­arða króna. Leiftri tók því á móti nokkur hund­ruð millj­óna króna arði frá Milestone á tíma­bil­inu fyrir hrunið og eftir það; arði sem meðal ann­ars byggði á arð­greiðslum sem Milestone hafði tekið við frá Sjóvá. 

Eins og komið hefur fram þurfti íslenska ríkið að leggja Sjóvá til um 11,6 millj­arða króna á vor­mán­uðum 2009 til að bjarga trygg­ing­ar­fé­lag­inu frá gjald­þroti en slíkt þrot hefði haft í för með sér til­heyr­andi tap fyrir við­skipta­vini þess. Ástæðan fyrir tapi Sjóvár voru meðal ann­ars lán til Milestone og eign­ar­halds­fé­lags­ins Vafnings, sem síðar var nefndur Föld­ungur, upp á um 20 millj­arða króna.  Sjóvá var svo selt til fjár­festa árið 2011 og er nú skráð á markað en íslenska ríkið á ennþá hlut í gegnum Seðla­banka Íslands. Áætlað tap rík­is­ins vegna björg­unar Sjóvár er um fjórir millj­arðar króna. 

Starf­semi Leiftra ltd. á Seychelles-eyjum teng­ist því bæði beint og óbeint harm­sögu Sjóvár sem end­aði nán­ast í gjald­þroti vegna rekst­urs Milestone á félag­inu.

Eitt af um 600 félögum
Eitt af um 600 félögum Fyr­ir­tæki Karls Wernerssonar sem Mossack Fonseca stofnað er eitt af unm 600 fyr­ir­tækjum sem lög­manns­stofan í Panama stofn­aði fyrir Íslend­inga.

„Ég held að þeir fjármunir sem voru inni í Leiftra hafi tapast í hruninu“

Karl segir allt hafa tapast

Karl Wernersson segir aðspurður að eignir Leiftra ltd. hafi tap­ast að mestu í hrun­inu. „Ég á ekki Leiftra lengur. [...] Ég held að þeir fjár­munir sem voru inni í Leiftra hafi tap­ast í hrun­inu. Stærsta eign Leiftra á þessum tíma var hlutafé í Milestone og þegar það tap­að­ist þá var held ég ekk­ert eftir.“

Karl segir að hann minn­ist þess ekki að hafa tekið neinn arð út úr Leiftra ltd. „Arð­greiðslur eða svo­leiðis út úr Leiftra? Ekki svo ég muni eftir nei.“ Hann segir að við­skipti félags­ins við Milestone hafi að mestu leyti, eftir því sem hann man rétt, verið jöfnun á kröfum milli Leiftra og Milestone og því hafi pen­ingar ekki farið þarna á milli.

Miðað við þessi orð Karls tók hann enga fjár­muni út úr Leiftra ltd. en í gögn­unum um félagið frá Mossack Fonseca er ekk­ert yfir­lit yfir fjár­streymi til og frá félag­inu sem annað hvort getur sannað orð Karls eða sýnt fram á hið gagn­stæða.

„Svo verður hrunið og við lendum í miklum erf­ið­leikum“

Leiftri fékk 2,7 milljarða frá Milestone sem aldrei voru endurgreiddir

Leiftri ltd. stund­aði líka ýmis konar lána­við­skipti á árunum fyrir hrunið og tók meðal ann­ars við 2,7 millj­arða króna láni frá Tortóla­fé­lag­inu Milestone Import Export ltd. Það Tortóla­fé­lag hafði fengið fjár­mun­ina lán­aða frá Milestone á Íslandi. Milestone fékk lánið aldrei frá Milestone Import Export þar sem Leiftri ltd. greiddi það aldrei til baka. 

Karl Wernersson tjáði sig um þetta lán fyrir dómi árið 2014, í mála­ferlum sér­staks sak­sókn­ara gegn honum. Þá sagði Karl að mark­miðið hefði verið að Leiftri myndi end­ur­greiða lánið með arð­greiðslu frá Milestone. „Milestone átti í miklum við­skiptum þarna árið 2007 og 2008. Þarna í lok árs 2007 eru íslenskar eignir Milestone fluttar út í sænskt fjár­mála­fyr­ir­tæki. Svo átti að skrá það félag á markað árið 2008, greiða út arð það sama ár, meðal ann­ars til Leiftra sem þá myndi borga skuld sína við MIE sem aftur myndi greiða skuld sína vð Milestone […] Svo verður hrunið og við lendum í miklum erf­ið­leikum. Allt fer í upp­nám hjá Milestone, allar íslenskar eignir urðu einskis virði og félagið fór illa út úr því. Til voru íslenskar eignir metnar á núll í Svíþjóð og við lentum í miklum erf­ið­leikum með sænska fjár­mála­eft­ir­litið.” Lánið sem Leiftri ltd. fékk var því aldrei end­ur­greitt.

Karl stýrði félaginu
Karl stýrði félag­inu Karl hafði umboð til að stýra félag­inu á Seychelles eins og sést á þessu skjali.

Leiftri hjálpaði Karli að halda Lyfjum og heilsu

Árið 2011 afskrif­aði Leiftri svo skuld Aurláka ehf., móð­ur­fé­lags Lyfja og heilsu á Íslandi, upp á einn millj­arð króna. Leiftri hafði veitt Aurláka lánið til að kaupa Lyf og heilsa af dótt­ur­fé­lagi Milestone í aðdrag­anda hruns­ins árið 2008. Kaup­verðið var þrír millj­arðar króna og var það greitt með yfir­töku skulda og umræddu láni frá Leiftra ltd. Karl Wernersson er eig­andi Lyfja og heilsu í dag og er það eina fyr­ir­tækið sem hann hélt eftir hrunið árið 2008. 

Athygli vekur að áður en Leiftri ltd. afskrif­aði skuld Aurláka skipti Leiftri ltd. um hendur og fékk nýjan eig­anda, eins og DV rakti í októ­ber 2013. Þá eign­að­ist maður að nafni Friðrik Arnar Björns­son, æsku­vinur Karls, félagið á Seychelles og var það því hans ákvörðun form­lega - ekki Karls - að afskrifa kröf­una á hendur Aurláka.

Karl sagði í við­tali við DV árið 2013 að honum hafi verið ráð­lagt að vera ekki sjálfur eig­andi Leiftra ltd. þegar skuldin væri afskrifuð og því hafi hann fengið „Frikka“ til að eign­ast félagið áður en skuldin var afskrifuð. „Mér var ráð­lagt að það væri betra að það væru svokölluð „arms length“ við­skipti þegar gefið væri grænt ljós á þetta: Þannig að þetta væri ekki bara sami mað­ur­inn allan hring­inn. Þannig að þá var þetta nið­ur­staðan. Hans samn­ingur er þannig að hann getur haft af þessu dálít­inn fjár­hags­legan ávinn­ing og eign­ast, eftir ákveð­inn tíma, hlut í félag­inu. […] Já, mér fannst þetta betra svona.“

Leiftri afskráður

Eftir við­skipti Leiftra og Aurláka var félagið afskráð sam­kvæmt gögn­unum frá Mossack Fonseca úr Panama­lek­anum. Þá var félagið meðal ann­ars búið að taka við arð­greiðslum frá Milestone, láni frá Milestone upp á nærri þrjá millj­arða auk þess sem félagið var búið að afskrifa kröfu upp á millj­arð á fyr­ir­tæki, Aurláka ehf., í eigu Karls Wernerssonar sem á og rekur Lyf og heilsu.

Tekið skal fram að Aurláki ehf. var dæmdur til end­ur­greiða þrota­búi Milestone tæpan millj­arð króna vegna við­skipt­anna í byrjun árs 2015 þannig að fjár­mun­irnir gætu komið aftur inn í Milestone. Aurláki áfrýj­aði þeirri nið­ur­stöðu hins vegar og verður málið tekið fyrir í Hæsta­rétti Íslands þann 12. maí næst­kom­andi. Aurláki ehf. gæti því þurft að greiða millj­arð­inn sem Leiftri ltd. afskrif­aði aftur inn í þrotabú Milestone.

Í síð­asta skjal­inu um Leiftra ltd. frá Mossack Fonseca kemur fram að á fundi stjórn­enda félags­ins hafi verið ákveðið að þeir hættu störfum fyrir félagið. Í bréfi frá Mossack Fonseca til hluta­fé­laga­skrár­innar á Seychelles-eyjum var sömu­leiðis beðið um það í febr­úar 2012 að Leiftri ltd. yrði afskráður. Þetta var ein­ungis þremur mán­uðum eftir að æsku­vinur Karls eign­að­ist Leiftra ltd. sem svo afskrif­aði kröf­una á hendur Aurláka ehf. út af kaup­unum á Lyf og heilsu.

Engar frek­ari upp­lýs­ingar eru til um félagið í Panama­skjöl­unum eftir eftir þetta. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár