Aðili

Sjóvá

Greinar

Tryggingasali telur sig svikinn eftir veikindi
Viðtal

Trygg­inga­sali telur sig svik­inn eftir veik­indi

Halldór Ragnar Hall­dórs­son var trygg­inga­sali til 25 ára. Eftir alvar­leg veik­indi fyrir rúmum ára­tug varð Halldór öryrki með liða­gigt og síþreytu og þurfti að reiða sig á afkomu­trygg­ingu frá trygg­inga­fé­lag­inu. Í fyrra ákvað félagið, eftir mat læknis sem er ekki gigt­ar­læknir, að helm­inga útgjöld til hans. Fjöldi gigt­ar­lækna hafa stað­fest óvinnu­færni Halldórs, en það hefur ekki haggað stöðu trygg­inga­fé­lags­ins. Nú bíður hann og fjöl­skylda hans eftir yfir­mati og hugs­an­legu dóms­máli. Sjóvá segir að mál Halldórs sé í „eðli­legum far­vegi“.
Panamaskjölin: Karl Wernersson stofnaði félag hjá Mossack Fonseca sem tók við milljörðum frá Íslandi
FréttirPanamaskjölin

Panama­skjölin: Karl Wernersson stofn­aði félag hjá Mossack Fonseca sem tók við millj­örðum frá Íslandi

Karl Wernersson not­aði félag á Seychelles-eyjum til að taka við arði, lána pen­inga og fá lán frá Íslandi. Leiftri ltd. tók meðal ann­ars við tæp­lega þriggja millj­arða láni frá Milestone sem aldrei fékkst greitt til baka. Karl segir að Leiftri hafi tapað öllu sínu í hrun­inu. Panama­skjölin sýna að félagið var lagt niður árið 2012 skömmu eftir að það afskrif­aði millj­arðs króna skuld móð­ur­fé­lags lyfja­versl­un­ar­innar Lyfja og heilsu á Íslandi.
Gagnrýnir FME harðlega: „Hvernig geturðu dælt peningum út úr bótasjóðunum áður en lögin taka gildi?“
FréttirArðgreiðslur tryggingafélaganna

Gagn­rýnir FME harð­lega: „Hvernig get­urðu dælt pen­ingum út úr bóta­sjóð­unum áður en lögin taka gildi?“

Fram­kvæmda­stjóri félags Íslenskra bif­reiða­eig­enda, Runólfur Ólafsson, hefur gagn­rýnt Fjár­mála­eft­ir­litið vegna aðgerð­ar­leysis gagn­vart trygg­inga­fé­lög­unum og fyr­ir­hug­uðum 8,5 millj­arða króna arð­greiðslum þeirra. FME segir að arð­greiðsl­urnar brjóti ekki gegn lögum.
Þetta er fólkið sem fær hluta af milljarðaarðinum frá Sjóvá og VÍS
FréttirArðgreiðslur

Þetta er fólkið sem fær hluta af millj­arðaarð­inum frá Sjóvá og VÍS

Stærstu hlut­hafar Sjóvár og VÍS eru líf­eyr­is­sjóðir, bankar og fjár­fest­inga­sjóðir en einnig ein­stak­lingar og eign­ar­halds­fé­lög. Fyr­ir­tækin tvö greiða út sam­tals átta millj­arða króna arð. Síld­ar­vinnslan, for­stjóri B&L, Árni Hauksson og Friðrik Hall­björn Karlsson, Steinunn Jóns­dóttir og óþekkt félag eru meðal þeirra sem fá arð­inn.

Mest lesið undanfarið ár