Gagnrýnir FME harðlega: „Hvernig geturðu dælt peningum út úr bótasjóðunum áður en lögin taka gildi?“

Framkvæmda­stjóri félags Íslenskra bifreiða­eigenda, Runólfur Ólafsson, hefur gagnrýnt Fjármála­eftirlitið vegna aðgerðar­leysis gagnvart trygginga­félögunum og fyrir­huguðum 8,5 milljarða króna arðgreiðslum þeirra. FME segir að arðgreiðsl­urnar brjóti ekki gegn lögum.

Telja arðgreiðslurnar ekki lagabrot
Telja arð­greiðsl­urnar ekki laga­brot FME segir að arð­greiðsl­urnar trygg­ing­ar­fé­lag­anna séu ekki brot á lögum. Unnur Gunn­ars­dóttir er for­stjóri FME.

Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiða­eigenda, segir að Fjármála­eftirlitið svari ekki ekki þeirri gagnrýni sem félagið hefur sett fram á það um að stofnunin sinni ekki eftirlits­hlutverki sínu með trygginga­félögunum í landinu. Runólfur hefur gagnrýnt stóru trygginga­félögin þrjú, VÍS, Sjóvá og Trygginga­miðstöðina, harðlega vegna fyrir­hugaðra 8,5 milljarða króna arðgreiðslna út úr félögunum á sama tíma og félögin hafa hækkað iðgjöld. VÍS ráðgerir að greiða mest, eða fimm milljarða, Sjóvá ætlar að greiða þrjá og Trygginga­miðstöðin hálfan milljarð. 

Hann hefur auk þess gagnrýnt Fjármála­eftirlitið fyrir að sinna ekki eftirlits­hlutverki með trygginga­félögunum en forstjóri stofnunarinnar, Unnur Gunnars­dóttir, svaraði þeirri gagnrýni í gær í viðtali við frétta­stofu RÚV þar sem hún sagði meðal annars: „Ég vil nú vísa því algjör­lega á bug og tel að þarna sé talað af vanþekkingu á hlutverki og starfsemi Fjármála­eftirlitsins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Arðgreiðslur tryggingafélaganna

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár