Hluthafi í VÍS segir fimm milljarða arðgreiðsluna „fullkomlega eðlilega“

Gestur Breið­fjörð Gestsson er hluthafi í Óskabeini ehf. sem á ríflega 5 prósenta hlut í Vátrygginga­félagi Íslands. Félagið keypti hlutinn í nóvember á tæplega 1300 milljónir og gæti nú fengið tæplega 280 milljóna arð út úr trygginga­félaginu. Gestur segir fjárfesta fara inn í fyrirtæki til að fá greiddan arð.

1/5 hluti kaupverðsins til baka
1/5 hluti kaup­verðs­ins til baka Gestur Breið­fjörð Gestsson segir arð­greiðsl­una frá VÍS sem stefnt er að vera „full­kom­lega eðli­lega“. Fyr­ir­tæki hans mun fá um 1/5 hluta af kaup­verði bréf­anna í VÍS til baka ef af verður.

Eignarhalds­félagið Óskabein ehf., sem meðal annars er í eigu fjár­festanna Andra Gunnars­sonar og Gests Breiðfjörðs Gests­sonar, gæti fengið um 1/5 af kaupverði hluta­bréfanna í Vátryggingar­félagi Íslands til baka ef trygginga­félagið greiðir út fimm milljarða króna arð til hluthafa þess eins og stjórn fyrir­tækisins ætlar að gera. Óskabein keypti ríflega 5,5 prósenta hlut í VÍS í nóvember síðastliðnum og var samningurinn um kaupin undir­ritaður í lok október þegar gengi bréfa í VÍS var hærra en það hafði verið mánuðina á undan og eins mánuðina á eftir. Kaupverð bréfanna miðað við gengið í VÍS þann 28. október var rúmlega 1.261 milljónir króna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Arðgreiðslur tryggingafélaganna

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár