Tímasetning uppsagnar tilfallandi og greiðslur til hluthafa „eðlilegur hluti af fyrirtækjarekstri“

Sjóvá vísar því á bug að samn­ingi við FÍB um vega­þjón­ustu hafi verið sagt upp í hefnd­ar­skyni. Tíma­setn­ingin hafi verið til­fallandi. Mark­aðs­stjóri Sjóvá segir greiðslur til hlut­hafa „eðli­legan hluta af fyr­ir­tækja­rekstri“.

„Við erum á sam­keppn­is­mark­aði eins og aðrir og erum að fara að semja við aðra um þessa vega­að­stoð fyrir okkar við­skipta­vini, tíma­setn­ingin er bara til­fallandi,“ segir Jóhann Þórsson, mark­aðs­stjóri Sjóvá, um full­yrð­ingu Félags íslenskra bif­reiða­eig­enda (FÍB) þess efnis að Sjóvá hafi rift samn­ingi um vega­þjón­ustu í hefnd­ar­skyni eftir að félagið gagn­rýndi trygg­inga­fé­lagið fyrir fimm millj­arða króna greiðslur til hlut­hafa.

[links]Upp­sögnin barst í lok októ­ber, fjórum vikum eftir að FÍB birti áskorun til Sjó­vár um að skila ofteknum iðgjöldum til við­skipta­vina frekar en láta þau renna í vasa hlut­hafa. Jóhann segir að til hafi staðið að segja upp samn­ingi við FÍB áður en félagið gagn­rýndi Sjóvá í fjöl­miðlum í haust en ákveðið hafi verið að fram­lengja samn­ing­inn til að koma í veg fyrir að upp­sögnin liti út eins og hefnd­ar­að­gerð. Það virð­ist hins vegar ekki hafa tek­ist, að minnsta kosti ekki að mati FÍB.

Hafa ekkert út á FÍB að setja

„FÍB gagn­rýnir okkur allt árið, síðan segjum við upp samn­ingi og þá á það að vera í hefnd­ar­skyni. Við höfum ekk­ert út á FÍB að setja þannig, það er gott að ein­hver er að standa vörð um eig­endur bíla á Íslandi. Þetta er alls ekki af því að þau eru að gagn­rýna okkur, við fengum aðila sem er, að okkar finnst, betri í þetta. Tíma­setn­ingin er til­fallandi,“ segir Jóhann. Við­skipta­vinum Sjóvá verður greint frá hver nýi aðil­inn er áður en það verður til­kynnt form­lega en von er á því á næstu vikum.

[adspot]

Samn­ingur FÍB við Sjóvá rennur form­lega út í lok febr­úar. „Á sama tíma erum við búin að semja við aðila sem á að taka við þessu. Það er sann­leik­ur­inn í þessu,“ segir Jóhann.

Varðandi gagn­rýni FÍB um fimm millj­arða króna greiðslur til hlut­hafa segir Jóhann þær eðli­legan hluta af fyr­ir­tækja­rekstri. „Þetta eru fyrst og fremst líf­eyr­is­sjóðir sem eru að fá pen­ing, allir sem fjár­festa í hluta­fé­lögum gera ráð fyrir að fá til baka fyrir fjár­fest­ing­una sína.“

Gagnrýni FÍB er samt sem áður skilj­an­leg að mati Sjóvá. „En á sama tíma felldum við niður iðgjöld bif­reiða­trygg­inga 2020 og við end­ur­greiðum við­skipta­vinum okkar sem eru tjón­lausir einu sinni á ári, við erum vissu­lega að borga við­skipta­vinum okkar til baka þegar það er hægt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

FÍB

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár