Björgólfur úr stjórn Sjóvá „vegna anna“

Björgólfur Jóhannsson hefur ákveðið að víkja tíma­bundið úr stjórn Sjóvá. Hann var stjórnar­formaður félagsins. Björgólfur tók nýverið við forstjóra­stöðunni hjá Samherja.

Björgólfur Jóhannsson, sem verið hefur stjórnar­formaður Sjóvá, tilkynnti á stjórnar­fundi í dag um þá ákvörðun sína að víkja tíma­bundið úr stjórn Sjóvá „vegna anna“. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kaup­hallar Íslands.

Þar segir enn fremur að Hildur Árna­dóttir, stjórnar­maður, muni taka við stjórnar­formennsku í stað Björgólfs. Þá mun Erna Gísla­dóttir, varamaður í stjórn Sjóvá, taka sæti í stjórn félagsins.

Björgólfur var kjörinn í stjórn Sjóvár í mars síðastliðnum og tók þá samstundis við hlutverki stjórnar­formanns.

Björgólfur tók tíma­bundið við sem for­stjóri Sam­herja í lok síðustu viku af Þor­steini Má Bald­vins­syni. 

Þor­steinn Már steig tíma­bundið til hliðar á fimmtudag í sam­komu­lagi við stjórn fyr­ir­tæk­is­ins vegna ­yf­­ir­stand­andi innri rann­­sóknar á ætl­­uðum brotum dótt­­ur­­fé­lags í Namib­­íu. Í yfir­­lýs­ingu frá Sam­herja sagði að ráð­­stöf­unin gildi þar til að nið­­ur­­stöður þeirrar rann­­sóknar Sam­herja á eigin ætl­­uðum brotum liggja fyr­­ir. Rann­­sókn­in, sem er í höndum alþjóð­­legu lög­­­manns­­stof­unnar Wik­borg Rein, mun heyra beint undir stjórn félags­­ins.

Umfjöll­unin á þriðju­dag í síðustu viku, sem unnin var í sam­­­­starfi Kveiks, Stund­­­­ar­innar, Al Jazeera og Wiki­leaks sýndi fram á að hópur sem inn­­­i­hélt meðal ann­­­­ars sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs- og dóms­­­­mála­ráð­herra Namib­­­­íu, hefði fengið 1,4 millj­­­arð króna hið minnsta greiddan frá Sam­herja á und­an­­­­förnum árum. Auk þess hafi ráð­herra í Angóla fengið greiðsl­­­­ur. Namibísku ráð­herr­­­arnir hafa báðir sagt af sér emb­ætti.

Í umfjöll­un­inni kom einnig fram að rök­studdur grunur sé um stór­­­­fellda skatta­snið­­­­göngu Sam­herja við að koma ágóð­­­­anum af þeim við­­­­skiptum sem fyr­ir­tækið stund­aði þar undan og til skatta­­­­skjóla. Þá liggur fyrir að norski bank­inn DNB, sem er að hluta til í eigu norska rík­­­­is­ins, stöðv­­­­aði við­­­­skipti við félög tengd Sam­herja á Kýpur og Mar­s­hall-eyjum vegna þess að reglur um varnir gegn pen­inga­þvætti voru ekki upp­­­­­­­fyllt.

Þau mál eru til skoð­unar hjá bank­anum sjálf­um, norsku efna­hags­brota­­­­deild­inni og deildar emb­ættis hér­­­­aðs­sak­­­­sókn­­­­ara þar í landi, sam­­­­kvæmt Stund­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár