Óttaslegnir andstæðingar hinsegin fræðslu tengja hana við barnaníð og nauðganir

Söngv­ar­arnir Gylfi Ægisson og Leoncie safna liði gegn áformum um að fræða skóla­börn um sam­kyn­hneigð. Ásakanir um barn­a­níð og barnaklám færðar fram af and­stæð­ingum fræðsl­unnar.

Óttaslegnir andstæðingar hinsegin fræðslu tengja hana við barnaníð og nauðganir
Gylfi Ægisson og Leoncie Söngv­ar­arnir hafa tekið höndum saman um að berj­ast gegn hinseg­in­fræðslu.

Þjóð­laga­söngv­ar­inn Gylfi Ægisson safnar liði gegn til­lögu innan bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar að efla  hinsegin fræðslu í skólum bæj­ar­ins. Gylfi sakar bæj­ar­yf­ir­völd um „sál­ar­morð á börnum“, segir að verið sé að „skemma börnin og eyði­leggja“ og kveðst til­bú­inn að fara í fang­elsi fyrir bar­áttu sína gegn fræðsl­unni. Hann sakar Samtökin ‘78 um yfir­vof­andi heila­þvott. „Samtökin 78 fá að heila­þvo Grunn­skóla­börn í Hafn­ar­firði að vild,“ full­yrðir hann.

Efling hinseginfræðslu vekur hörð viðbrögð

Tillagan var lögð fyrir bæj­ar­stjórn 15. apríl síð­ast­lið­inn og var henni vísað til fræðslu­ráðs. Tillagan gerir ráð fyrir efl­ingu hinseg­in­fræsðslu og -ráð­gjafar:

„Full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar gera það að til­lögu sinni að farið verði í átak í efl­ingu hinseg­in­fræðslu og -ráð­gjafar í grunn­skólum Hafn­ar­fjarðar. Hafn­ar­fjarð­ar­bær leit­ist við að gera sam­starfs­samn­ing við Samtökin ‘78 um þróun náms­efnis fyrir öll stig grunn­skóla, frá 1. til 10. bekkjar og sér­fræð­ingar Sam­tak­anna haldi nám­skeið fyrir alla starfs­menn grunn­skóla Hafn­ar­fjarðar. Nemendum í ung­linga­deildum grunn­skóla verði sömu­leiðis gert kleift að sækja ein­stak­lings­ráð­gjöf hjá sér­fræð­ingum Sam­tak­anna án end­ur­gjalds.“

Tengja samkynhneigð við nauðganir

Fræðslu­ráð Hafn­ar­fjarðar kom saman í gær og var nið­ur­staða fund­ar­ins að fræðslu­stjóra yrði falið að taka saman upp­lýs­ingar um hvernig hinseg­in­fræðslu hefur verið háttað. „Einnig er óskað eftir umsögn skóla­stjóra og fjöl­skyldu­þjón­ustu um til­lög­una fyrir lok skóla­árs,“ segir í fund­ar­gerð.

And­stæð­ingar hinsegin fræðslu færa fram harðar ásak­anir og alhæf­ingar gegn sam­kyn­hneigðum og bæj­ar­stjórn­inni. Meðal þeirra sem taka undir með Gylfa á Facebook-síðu hans er söng­konan Leoncie. „Næst fara kenn­ara til skól­ans og heila­þvo börnin að það er allt í lagi að nauðga,“ full­yrðir hún.

Ummæli Leoncie
Ummæli Leoncie Söng­konan, sem barist hefur gegn for­dómum í sinn garð, tengir saman sam­kyn­hneigð og nauðg­anir í ummælum sínum á Facebook.

Í sam­tali við Stundina seg­ist Leoncie tengja nauðg­anir við sam­kyn­hneigð af trú­ar­legum ástæðum, vegna þess að páf­inn hafi for­dæmt bæði.

„Þetta snýst ekki um homma heldur enda­þarms­mök“

Leoncie þver­tekur fyrir að hún hati homma. Hún seg­ist aðeins hata enda­þarms­mök. Hún telur að hinsegin fræðslan sé heila­þvottur og segir að í Indlandi væri búið að reka „skóla­stjór­ann“. „Ég er kristin, kaþ­ólsk, og páf­inn kom til Indlands og sagði, það vita allir að enda­þarms­mök eru sið­ferði­lega röng. Það er það eina sem ég hugsa um. Þetta snýst ekki um homma heldur enda­þarms­mök hjá hverjum sem er. Kúkur kemur frá rass­gati og af hverju ætti ein­hver að vilja setja eitt­hvað þangað inn. Þetta er ógeðs­legt,“ segir Leoncie.

Leoncie hefur verið tíð­rætt um þó for­dóma sem hún seg­ist hafa orðið fyrir á Íslandi. Hún hafnar því að hræsni felist í afstöðu hennar gagn­vart sam­kyn­hneigð. „Þetta er ekki hat­ursá­róður. Homm­arnir á Íslandi hafa haft svo mikla for­dóma í minn garð. Hví ætti mér að varða um þá? Hommar í öðrum löndum hafa enga for­dóma gegn mér, en hérna Íslandi? Guð minn góður. Bullshit, þetta er ekki sam­bæri­legt við ras­isma. Ég veit hvað ras­ismi er. Rasismi er ekki bara for­dómar heldur hat­ursá­róður,“ segir Leoncie.

Ásakanir á Útvarpi sögu

Harðar umræður hafa sprottið um ákvörðun bæj­ar­stjórnar á útvarps­stöð­inni Útvarpi sögu. Í könnun á vef­síðu útvarps­stöðv­ar­innar kemur fram að 84% svar­enda eru and­snúnir hinsegin fræðslu í grunn­skólum lands­ins.

Í gær áttu sér stað umræður þar sem þátt­ar­stjórn­andi og inn­hringj­endur tengdu fræðsl­una meðal ann­ars við barnaklám:

Inn­hringj­andi á Útvarpi sögu kvart­aði undan því að mál­frelsið væri heft. „Fólk þorir ekki að tjá sig um þetta. Þetta er orðið svo langt gengið. Þetta er orðið svo yfir­gengi­legt.“

Annar inn­hringj­andi, Hulda, ýjaði að því að nem­endur yrðu látnir stunda kyn­líf: „Er þetta sýni­kennsla? Er þetta verk­leg kennsla?“

Þáttarstjórnandinn
Þátt­ar­stjórn­and­inn Pétur Gunn­laugs­son, þátt­ar­stjórn­andi á Útvarpi sögu, varar við hinseg­in­fræðslu.

„Ég bara vil ekki hugsa út í það einu sinni,“ svarar þátt­ar­stjórn­and­inn, Pétur Gunn­laugs­son.

„Þarf að fara að sýna þeim, eða kenna þeim eða káfa á þeim? Hver er mein­ingin?“ spyr hún.

„Þetta er inn­ræt­ing­ar­starf­semi. Það er alveg ljóst. Þetta er eins og trú­boð,“ full­yrðir þátt­ar­stjórn­and­inn.

„Út með þetta og inn með kristni­fræðsl­una,“ segir inn­hringj­and­inn að lokum.

„Er ekki barnaklám bannað?“

„Þetta er bara eins og barnaklám eða eitt­hvað,“ full­yrðir annar inn­hringj­andi, sem kallar sig Halldóru.

„Já, er ekki barnaklám bannað?“ svarar þátt­ar­stjórn­and­inn. „Halldóra, er þetta ekki bara galið?“ spyr þátt­ar­stjórna­d­inn. „Þetta er ógeðs­legt,“ svarar hún. Í kjöl­farið hvetur þátt­ar­stjórn­and­inn hlust­endur til að taka þátt í könn­un­inni á síðu stöðv­ar­innar.

„Ætla þeir að sýna hvernig þeir eðla sig?“

Önnur hringdi inn, að nafni Krist­jana, „bölv­uðu máli í sam­bandi við sam­kyn­hneigða. Að það skuli leyfa að kenna þetta í skólum. Ætla þeir að sýna hvernig þeir eðla sig? Ég ætla nú bara að vera dóna­leg. Ég myndi bara spyrja þessa nítján ára stelpu hvort hún ætlar að gera það.“

„Ég hugsa að sumir hugsi þannig að það sé bara allt í lagi,“ svarar þátt­ar­stjórn­and­inn. „Mér finnst að hún eigi bara að sýna hvernig hún og hennar lesbía myndi eðla sig fyrir framan börnin. Það er raun­veru­legt og þá ofbýður börn­unum, held ég að hljóti að vera,“ segir inn­hringj­and­inn og vísar til bæj­ar­full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar sem lagði fram til­lög­una. Krist­jana hvetur til þess að lög­regla ræði við hana.

„Það er bara verið að særa blygð­un­ar­kennd þess­ara barna. Ég skil bara ekki hvernig nokkrum dettur þetta í hug. Þetta er bara refsi­vert athæfi í raun og veru,“ segir þátt­ar­stjórn­and­inn.

Hlutfall samkynhneigðar metið misjafnlega

Þess ber að geta að engar sann­anir hafa verið færðar fram á tengsl sam­kyn­hneigðar við barnaklám eða nauðg­anir, en ásak­anir um slíkt hafa verið hluti af bar­áttu gegn sam­kyn­hneigðum um allan heim. Byggt á rann­sóknum félags­fræð­ings­ins Alfred Kinsey um miðja síð­ustu öld var áætlað að um 10% mann­fjöld­ans í vest­rænum sam­fé­lögum væri sam­kyn­hneigður, en  Í nýlegri banda­rískri rann­sókn er ályktað að hlut­fall þeirra sem lað­ast að eigin kyni sé allt að 20%. Hins vegar eru aðeins 1,5% Breta yfir­lýst sam­kyn­hneigðir sam­kvæmt opin­berum tölum þar í landi, en 93,5% eru yfir­lýst gagn­kyn­hneigðir. Þó hefur hlut­fall sam­kyn­heigðra af mann­fjölda í Bret­landi verið metið 5-7% í opin­berri ákvarð­ana­töku.

Hinseginfræðsla hefði komið í veg fyrir kvalir

Meðal þeirra sem for­dæmt hafa yfir­lýs­ingar Gylfa Ægis­sonar fyrir for­dóma eru Gunn­laugur Bragi Björns­son, við­skipta­fræð­ingur og hommi:

„Hefði ég fengið ein­hverja fræðslu um slíkt ... hefði mátt spara mér ára­langar vanga­veltur, efa­semdir, kvalir og sjálfs­vígs­hug­leið­ingar“

„Ég ætla ekki að rekja sögu mína í smá­at­riðum en lyk­il­at­riðið er að ég fékk enga fræðslu um hinsegin mál­efni. Enga fræðslu um hvað það er að vera fæddur inn í annan veru­leika en hið gagn­kyn­hneigða norm. Hefði ég fengið ein­hverja fræðslu um slíkt á minni grunn­skóla­göngu, haft ein­hverjar fyr­ir­myndir að horfa til, hefði mátt spara mér ára­langar vanga­veltur, efa­semdir, kvalir og sjálfs­vígs­hug­leið­ingar ... Hlotnist mér sá heiður að verða faðir mun ég vernda mitt barn. Ég mun vernda það fyrir fáfræði og vondum gömlum körlum,“ segir Gunn­laugur á blogg­síðu sinni.

Vill vernda börnin fyrir fordómafullu fólki

Þá hvetur Rafn Stein­gríms­son for­rit­ari í bloggi á Stund­inni til þess að börn verði vernduð fyrir Gylfa Ægissyni. „Hinsegin fólk er ekki skað­legt börnum og hafa slíkar full­yrð­ingar marg­sinnis verið hraktar. Fordómar gegn hinsegin fólki geta hins­vegar verið skað­legir börnum, eða öllu heldur þá óhörðn­uðum ung­lingum sem eru kannski í þann mund að átta sig á eigin kyn­hneigð og eiga oft í erf­ið­leikum með að horfast í augu við það að vera „öðru­vísi“. Þessir krakkar eiga oft mun erf­ið­ari ung­lingsár heldur en gagn­kyn­hneigðir jafn­aldrar þeirra og eru við­kvæm fyrir hverskyns for­dómum frá sam­fé­lag­inu. Til dæmis frá fólki eins og Gylfa sem kallar þá rassálfa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hinsegin fræðsla í Hafnarfirði

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár