„Stjórnvöld og eftirlitsaðilar hafa leyft bönkum að okra á neytendum“

Íslensku bank­arnir munu auka tekjur sínar um 400 millj­ónir króna af yfir­drátt­ar­lánum einum og sér vegna stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans. Neyt­enda­sam­tökin gagn­rýna aðstöðumun almenn­ings og banka harð­lega.

„Stjórnvöld og eftirlitsaðilar hafa leyft bönkum að okra á neytendum“
Seðla­banka­stjóri Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hefur talið sig þurfa að standa fyrir vaxta­hækk­unum til að tryggja að verð­bólga auk­ist ekki eftir launa­hækk­anir og fleira. Mynd: Pressphotoz

Bank­arnir munu auka tekjur sínar af yfir­drátt­ar­lánum um 400 millj­ónir króna vegna nýlegrar stýri­vaxta­hækk­unar Seðla­bank­ans, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu Neyt­enda­sam­tak­anna. Bank­arnir hafa hagn­ast um 370 millj­arða króna frá hruni, ef frá er tal­inn hagn­aður á líð­andi ári.

„Neyt­endur standa varn­ar­lausir frammi fyrir fákeppni á íslenskum banka­mark­aði,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Fákeppnin lýsir sér í hæstu útláns­vöxtum sem þekkj­ast á vest­ur­löndum og óheyri­lega miklum vaxta­mun. Þá inn­heimta stóru bank­arnir mik­inn fjölda þjón­ustu­gjalda af við­skipta­vinum sínum ofan á þá okur­vexti sem þeir inn­heimta. Þessum gjöldum hefur fjölgað frá því hinir föllnu bankar voru end­ur­reistir á nýjum kenni­tölum haustið 2008.“

Bank­arnir hafa nú hækkað óverð­tryggða yfir­drátt­ar­vexti sína um 0,5 pró­sent vegna stýri­vaxta­hækk­unar Seðla­bank­ans. Stýri­vaxta­hækk­unin er komin til vegna áhyggja af því að launa­hækk­anir valdi verð­bólgu. Verð­bólgan mun aukast hratt á næst­unni, sam­kvæmt spám Seðla­bank­ans. Miðað við upp­færða verð­bólgu­spá í ágúst má gera ráð fyrir að verð­tryggt 30 millj­óna króna hús­næð­is­lán hækki um 1,2 millj­ónir króna á næsta ári, eða 50 þús­und krónur á mán­uði. Sjá nánar hér. 

Yfir­lýs­ingin í heild sinni: 

„Neyt­enda­sam­tökin mót­mæla harð­lega vaxta­hækkun bank­anna á útlán nú um mán­að­ar­mótin en bank­arnir hækk­uðu allir óverð­tryggða útláns­vexti um 0,5 pró­sentu­stig í kjöl­far stýri­vaxta­hækk­unar Seðla­bank­ans þann 19. ágúst sl. Þessi hækkun ein og sér eykur tekjur bank­anna af yfir­drátt­ar­lánum til ein­stak­linga um ríf­lega 400 millj­ónir á ári miðað við að þessi lán nema alls um 87 millj­örðum.

Neyt­endur standa varn­ar­lausir frammi fyrir fákeppni á íslenskum banka­mark­aði. Fákeppnin lýsir sér í hæstu útláns­vöxtum sem þekkj­ast á vest­ur­löndum og óheyri­lega miklum vaxta­mun. Þá inn­heimta stóru bank­arnir mik­inn fjölda þjón­ustu­gjalda af við­skipta­vinum sínum ofan á þá okur­vexti sem þeir inn­heimta. Þessum gjöldum hefur fjölgað frá því hinir föllnu bankar voru end­ur­reistir á nýjum kenni­tölum haustið 2008.

Stjórn­völd og eft­ir­lits­að­ilar hafa leyft bönkum að okra á neyt­endum og ekki gripið til eðli­legra ráð­staf­ana til að stemma stigu við fákeppn­inni á banka­mark­aði hér á landi. Þessu mót­mæla Neyt­enda­sam­tökin harð­lega og krefj­ast úrbóta án tafar. Full­reynt er að bank­arnir munu ekki að eigin frum­kvæði sýna hóf­semd og still­ingu í gjald­töku sinni og vaxta­stigi og því ber stjórn­völdum skylda til að grípa í taumana. Neyt­enda­sam­tökin telja að miðað við gríð­ar­legan hagnað bank­anna frá því þeir voru end­ur­reistir sé ekki ástæða til slíkra hækk­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár