Mótmæltu slátrun á lömbum á Selfossi: „Mynduð þið drepa börnin ykkar?“

Róttækar veg­anar mót­mæltu við Slát­ur­fé­lag Suð­ur­lands á Selfossi þegar lömb voru flutt í slát­ur­húsið. Þeir trúa því að slátrun dýra til mann­eldis sé sið­ferð­is­lega sam­bæri­leg við dráp á mönnum.

Mótmæltu slátrun á lömbum á Selfossi: „Mynduð þið drepa börnin ykkar?“
Mót­mæl­endur Telja slátrun lamba sið­ferð­is­lega ranga. Mynd: Aktívegan

Meðlimir rót­tæka dýra­vernd­un­ar­hóps­ins Aktí­vegan mót­mæltu drápi á lömbum við slát­ur­hús Slát­ur­fé­lags Suð­ur­lands á sunnu­dag­inn. Meðlimir hóps­ins trúa því að slátrun á dýrum til mann­eldis sé sið­ferð­is­lega röng, sam­bæri­legt við dráp á mönnum. Mót­mæl­end­urnir grétu við slát­ur­fé­lagið og hróp­uðu þegar lömb voru flutt af gripa­flutn­inga­bíl inn í slát­ur­húsið. Þeir líktu lömbunum við börn.

„Þau eru lif­andi. Hjartað slær. Þetta eru útrým­ing­ar­búðir. Morð­ingjar. Mynduð þið drepa börnin ykkar? Nei!“ hróp­aði mót­mæl­andi við grind­verkið utan um slát­ur­húsið.

„Hvernig getið þið elskað sum dýr, en drepið önnur?“ spurði annar.

„Þau eru á leið í dauð­ann út af græðgi ykkar, manns­ins!“ hróp­aði mót­mæl­andi.  „Við þurfum ekki lamba­kjöt. Það er til margt jafn­gott ef ekki betra en lamba­kjöt á bragðið. Við þurfum engan veg­inn á þessu að halda.“

Myndband af mót­mæl­unum hefur verið birt á Facebook. Mót­mæl­end­urnir lýsa því yfir það þeir muni halda áfram að mót­mæla í fram­hald­inu á hverjum sunnu­degi.

Mót­mæl­end­urnir spurðu hvernig starfs­menn slát­ur­fé­lags­ins gætu sofið á nótt­unni. Þeir hafa fengið blendin við­brögð við aðgerðum sínum.  

Mótmæltu áður slátrun svína

Meðlimir hóps­ins hafa áður mót­mælt við slát­ur­fé­lagið. Stundin fylgdi þeim eftir í aðgerð við Slát­ur­fé­lag Suð­ur­lands í ágúst. 

Þann 7. ágúst mynd­aði hóp­ur­inn svín á leið til slátr­unar. Atburð­inum var lýst í grein Stund­ar­innar: Dýrin eru svelt dag­ana fyrir slátrun og mynd­bandið sýnir vank­aða, froðu­fellandi og drullu­skítuga ein­stak­linga, alsetta smá­vægi­legum sárum og skurðum. Þegar bíl­stjór­inn sá þau vatt hann sér í geðs­hrær­ingu að þeim, spurði þau hver þau væru og hvers vegna þau væru að mynda innan í bílnum. Tókst þeim að mestu að gefa honum engar upp­lýs­ingar, enda vildu þau ekki setja frek­ari aðgerðir sínar í upp­nám. Að lokum komst bíll­inn þó að slát­ur­hús­inu. Þau mynd­uðu bíl­stjór­ann á meðan hann spark­aði dýr­unum inn í húsið þar sem þau myndu enda jarð­vist sína. Mynd­band­inu sem þau unnu upp úr þessum atburði deildu þau svo á net­inu. Það áttu eftir að reyn­ast vera tölu­verð mis­tök. 

Nánar er fjallað um bar­áttu hóps­ins hér. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Veganismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár