Með súrtunnu í ísskápnum

Mat­ar­spjall við Þráin Árna Bald­vins­son.

Með súrtunnu í ísskápnum

​Þráinn Árni Bald­vins­son, gít­ar­leik­ari Skálmaldar, var alinn upp norður í Köldu­kinn í Þing­eyj­ar­sýslu og seg­ist ennþá vera mik­ill sveita­maður í sér, sér­stak­lega þegar kemur að mat enda sé hann mik­ill mat­maður.

„Ég er alin upp við gamla góða sveita­mat­inn og það sem var á borð­inu var borðað, ekk­ert rugl. Mamma var góður kokkur og amma líka, fyr­ir­myndar upp­eldi sem maður fékk þegar kom að góðum mat.“

Þú ert alin upp á hrossa­búi en samt borðarðu hrossa­kjöt, má það?

„Það var aldrei verið að rugla eitt­hvað með svona hluti. Afi og pabbi voru saman með fjárbú og maður er alinn upp þannig að um leið og búið er að slátra dýr­inu þá er þetta orð­inn matur. Litlu fal­legu lömbin úti á túni? Maður velti þessum hlutum í raun aldrei fyrir sér, þetta var bara lífið og það var eins með hest­ana. Auðvitað voru ein­hver hross sem alls ekki voru étin og sum voru heygð í virð­ing­ar­skyni en ann­ars var þetta bara eins og þetta var; sveitin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár