Lögreglan beitti slökkvitæki á einnota grill mótmælenda

Nokkrir mót­mæl­endur söfn­uð­ust nærri heim­ili Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og kveiktu í einnota grilli. Lög­reglan stöðv­aði gjörn­ing­inn.

Lögreglan beitti slökkvitæki á einnota grill mótmælenda
Lög­reglan stendur vörð Lög­reglan bann­aði mót­mæl­endur að kveikja í grill­inu, en þeir sinntu ekki til­mæl­unum. Mynd: Beinar aðgerðir

Lög­reglu­menn, sem voru með við­búnað nærri heim­ili Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, slökktu í einn­nota grilli mót­mæl­enda með slökkvi­tæki í gær. Á með­fylgj­andi mynd­bandi má sjá lög­reglu beita slökkvi­tæki á grill mót­mæl­enda og þá mót­mæla aðferð lög­reglu.

„Ekkert svona,“ sagði lög­reglu­mað­ur­inn, áður en hann spraut­aði á grillið. „Þetta hefur skapað miklu meiri skaða en einn eldur nokkurn tím­ann,“ mót­mælti einn skipu­leggj­enda mót­mæl­anna. „Hérna. Þið eruð að óhlýðn­ast fyr­ir­mælum. Það er hægt að kæra ykkur fyrir það,“ svarar lög­reglu­mað­ur­inn.

Á vettvangi
Á vett­vangi Lög­reglu­maður stendur vörð um grillið.

Fram hefur komið í fjöl­miðlum að lög­reglan hafi verið kölluð að heim­ili fjár­mála­ráð­herra vegna umdeildra mót­mæla sem boðuð höfðu verið við heim­ili Bjarna. Lög­reglan hafði hins vegar ekki verið kölluð út að frum­kvæði Bjarna, heldur við­hafði hún við­búnað eins og hefð­bundið er við boðuð mót­mæli.

Mót­mæl­enda­hóp­ur­inn sendi frá sér yfir­lýs­ingu í morgun þar sem umfjöllun fjöl­miðla var gagn­rýnd, en sagt hafði verið frá því að lög­reglan hefði verið kölluð út vegna mót­mæl­anna. 

„Þá voru bæði RÚV og Vísir með mynda­vélar á staðnum frá byrjun með­mæl­anna og lýsa með­mæl­endur yfir undrun sinni á því að fjöl­miðl­arnir hafi ákveðið að birta ekki neitt af því myndefni sem safn­að­ist. Mynd­irnar hefðu sýnt fram á þá rólynd­is­stemn­ingu sem uppi var og þann fárán­leika sem felst í því að láta sem lög­reglu hafi þurft að kalla til sér­stak­lega vegna atburð­ar­ins,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Mótmælin
Mótmælin Mót­mæl­endur héldu sig í sæmi­legri fjar­lægð frá heim­ili fjár­mála­ráð­herra.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár